Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 31
103
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
í einstökum landshlutum.
Breytingar á útbreiðslu birkis á 23
ára tímabili í fimm landshlutum,
Vesturlandi, Vestfjörðum, Norður-
landi, Austurlandi og Suðurlandi,
voru bornar saman við breytingar
á hitafari og fjölda sauðfjár í
viðkomandi landshlutum (sjá
landshlutaskiptingu á 6. mynd).
Notast var við sumarhita, mældan
í mánaðarmeðaltölum júní, júlí
og ágúst, og var við það byggt
á landfræðilegum hitafars-
gagna grunni frá Veðurstofu
Íslands, sem nær fram til 2006.40
Um er að ræða gagnagrunn á
rastaformi með 900×900 m mynd
einingum og er því hægt að reikna
mánaðarmeðaltöl fyrir birkilendið
innan hvers landshluta. Hitafars-
breytingar voru síðan reiknaðar með
því að draga hitagildi ársins 1989
frá meðaltali árana 1990–2006. Gögn
um breytingar á fjölda sauðfjár
skipt á landshlutana fimm voru
fengin hjá Hagstofu Íslands.41,42
NIÐURSTÖÐUR
Flatarmál birkilendis á Íslandi
í þessari nýju kortlagningu var
1.506 km2 (6. mynd). Útbreiðslan
reyndist nokkuð misjöfn eftir
landshlutum (1. tafla). Mest var
hún á Vesturlandi, 391 km2, og
minnst á Austurlandi, 186 km2.
Hæð fullvaxta birkis skiptist þannig
að rúmur þriðjungur flokkaðist sem
birkikjarr eða kjarrskógur (<2 m),
rúmur helmingur sem lágskógur
(2–5 m) og 8% flokkaðist sem
háskógur (>5 m). Hlutfall birkis yfir
2 m á hæð reyndist nokkuð svipað
milli landshluta eða um ¾ hlutar, að
undanskildum Vestfjörðum þar sem
hlutfallið var innan við þriðjungur.
Aðeins á Vestfjörðum var ekkert
birkilendi skráð í háskógarflokk.
Núverandi hæð birkis skiptist
þannig að á 1.072 km2 (71%) voru
tré undir 2 m, á 414 km2 (27%) voru
þau 2–5 m og á 20 km2 (1%) hærri en
5 m (2. tafla og 7. mynd). Núverandi
hæð birkis reyndist nokkuð misjöfn
milli landshluta. Á Norðurlandi var
rúmur helmingur birkis yfir 2 m á
hæð, en einungis 2% á Vestfjörðum.
4. mynd. Hávaxtarform birkis á Íslandi. Háskógur (> 5 m fullvaxta) í Vaglaskógi í
Fnjóskadal. – High stature of birch woodland. Forest (> 5 m height at maturity) in
Vaglaskógur forest in North Iceland. Ljósm./Photo: Arnór Snorrason 2016.
5. mynd. Þegar metin var fullvaxta hæð birkis var litið til elstu trjánna á svæðinu. Þau
voru oft á tíðum ekki í ríkjandi trjálagi eins og sjá má á þessari mynd úr nágrenni Langár
á Mýrum. – The oldest trees were examined when assessing height at maturity. They were
often not in the dominant tree layer.