Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúrufræðingurinn - 2016, Qupperneq 41

Náttúrufræðingurinn - 2016, Qupperneq 41
113 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 2. mynd. Þrívíddarloftljósmynd af gíg Hallmundarhrauns, séð frá norðvestri. Í gígnum virðist vera margsamfallin hrauntjörn, um 1.200 m á lengd og um 500 m á breidd. Hæð ýkt um 1,4. – Three-dimensional photograph of the Hallmundarhraun crater, seen from the NW, length appr. 1,200 m, width appr. 500 m. Height exaggerated by 1.4. Ljósm./Photo: Loftmyndir ehf. Fjallað er á fremur óhefðbundinn hátt um Surtshelli, eða um Surts hellis-Stefánshelliskerfið, lengsta og þekktasta hraunhelli landsins. Megináherslan er lögð á orsakasamhengi umferðar manna og skemmda í hellinum. Sögu- legar heimildir eru raktar allt frá Hallmundarkviðu til okkar daga. Gerð er grein fyrir helstu athugunum, ferðalýsingum og skýrslum allt til 1972 með tilliti til umferðar vísinda- og ferðamanna.a Þá fjallar annar höfunda um æskuár sín í uppsveitum Borg arfjarðar. Fundur Gullborgar hella sumarið 1957 er fléttaður við ummæli full- orðna fólksins í Kalmanstungu, fréttaflutning, mótvægisaðgerðir, náttúruverndarlög og friðlýsingu Náttúruverndarráðs á dropsteins- myndunum í hraunhellum landsins. Fjallað er um bága verndar- stöðu hraunhella á Íslandi. Stað- setningarhnit flestra hraun- helli s opa landsins liggja á lausu, ýmist í rituðum heimildum eða á netinu. Hellarnir eru því auð- fundnir og yfirleitt auðveldir yfir- ferðar. Þeir eru meira eða minna opnir ferðamönnum, sem leiðir undantekningarlaust til skemmda á viðkvæmum myndunum. Meginefni greinarinnar er athugun á umfangsmiklum skemmd um í stóru hellunum í Hallmundarhrauni, Surtshellis- Stefánshelliskerfinu, Víðgelmi og Borgarhelli í Gullborgarhrauni. Við talningu reyndust 84 dropsteinar hafa verið fjarlægðir úr Borgarhelli og 1.093 úr Víðgelmi. Allir fegurstu og sérstæðustu steinar í báðum hellunum eru horfnir, nánast hver einasti frístandandi steinn Borgarhellis og ríflega tveir af hverjum þremur dropsteinum Víðgelmis. Höfundar vissu að dropsteinsmyndanir Stefánshellis höfðu bókstaflega verið hreinsaðar burt en umfang skemmdanna kom engu að síður á óvart. Sérstaklega kom á óvart hve ótrúlegt magn dropstráa hafði verið brotið úr lofti hellisins. Niðurstaða höfunda er að Víðgelmir hafi verið skreyttasti stór- hraunhellir heims og að Stefánshellir komi næstur að magni og gerð fíngerðs skrauts. Í eftirmála rekja höfundar vernd ar stöðu hraunhella á helstu dyngjusvæðum veraldar utan Íslands. Inngangur Mannvist að fornu Í síðasta erindi Hallmundarkviðu í Bergbúa þætti, einum stysta sagna- þætti fornbókmenntanna, kveður jötunninn: Einn á ek hús í hrauni ... – og er þar líklega átt við Surtshelli.2 Í þættinum segir frá því að Þórður bóndi og húskarl hans leita skjóls í helli í dimmu og illviðri. Hellisbúinn, jötunn nokkur, amast ekki við nærveru þeirra, en kveður um nóttina tólf vísna flokk með þeim áhrínsorðum að takist þeim ekki að nema kvæðið hafi þeir verra af. Þórður bóndi lærði kvæðið og varð hamingjumaður. Vinnumaður sem ekkert gat munað fórst skömmu síðar. Hallmundarkviða er torskilin, arfur úr heiðni. Sviðið er fjöll, gljúfur, eldsumbrot, hraunbreiður og hraunhellar.3 Þrumuguðinn Þór og eldjötunninn Surtur takast á (1. mynd). Hallmundarhraun er 45 km langt og rúmmál þess er áætlað 5–6 rúmkílómetrar (2. mynd).4 Kristján Sæmundsson aldursgreindi hraunið 1966,5 taldi það myndað 662–1016 e.Kr. og benti á að Hallmundarhraun gæti hafa runnið um landnám (kringum 874). Halldór Laxness6 tók kýrhnútu úr Beinahelli/ Vígishelli til handargagns þegar hann var að semja Gerplu 1948. Við aldursgreiningu reyndist hnútan vera frá árabilinu 781– 1237 e.Kr. Haukur Jóhannesson kannaði jarðvegssnið undir Hall- mundarhrauni 19897 og fann hann landnámslagið rétt undir neðra borði hraunsins. Eldar Hall mundarhrauns munu hafa verið með fyrstu eldgosum sem landnámsmenn komust í kynni við. a Þýðing og viðbót við erindi sem höfundar héldu á 17. alþjóðlega hraunhellaþinginu á Hawaii í febrúar 2016.1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.