Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2016, Síða 74

Náttúrufræðingurinn - 2016, Síða 74
Náttúrufræðingurinn 146 sm á ári í 10–15° halla.a Ekki þarf nema fárra gráðu halla til þess að eitthert jarðsil verði. Í lítt grónum brekkum myndar jarðsilið oft sepa með grónum, bröttum framkanti, en í vel grónum, bröttum brekkum getur jarðvegurinn hrukkast svo vegna jarðsilsins, að brekkan verður sem hallandi þvottabretti. Hvergi hérlendis er meira af slíkum brekkum en í Vestur-Skaftafellssýslu. Góð dæmi um slíkar þvottabrettisbrekkur er víða að sjá undir hömrum í Mýrdal og á Síðu. En hvergi hérlendis hefi ég séð eins myndarlega jarðsilsbrekku, eða með eins stórum og reglulegum fellingum, og brekku sunnan í Pétursey, eða Eynni há, eins og hún heitir í Sturlungu (2. mynd). Þessi brekka er gegnt Eyjarhól (Nikhól), sem er gígtappi úr basalti, um 35 m hár, sunnan vegar. Grasbrekkan er um 75 m há, halli neðst í henni um 20° og fellingarnar þar orðnar óglöggar vegna túnræktar. Ofar í brekkunni er hallinn sumsstaðar allt að 40°, en meðalhalli brekkunnar í heild 35–36°. Í þessari brekku höfum við talið 112 fellingastalla, en sumsstaðar er álitamál hvað telja skuli einn stall, því hér og þar greinist einn stallur í tvo (sbr. mynd). Meðal hæðarmunur milli stalla er um 65 sm, en hæð frambrúnar að meðaltali um 20 sm. Meðalbreidd milli stalla er nálægt 1 m, fremri hlutinn, 20–30 sm, nokkurnveginn láréttur, en efri hlutinn með svipuðum halla og brekkan í heild. Í jarðsilsbrekkum af þessu tagi má oft sjá sauðkindur ganga eftir stöllunum, og eiga þær líklega einhvern þátt, þó alls ekki afgerandi, í að skerpa þá. Brekkan gegnt Eyjarhól er nú komin á náttúruverndarskrá og verður væntanlega friðlýst sem náttúruvætti.4 Helgi Torfason jarðfræðingur birti smágrein í Náttúrufræðingnum 1984 sem hann kallar „Jarðsil í Pétursey“ og fylgir henni mynd af hópskoðun stallabrekkunnar, líklega úr einni af kennsluferðum Sigurður Þórarinssonar. Þar ritar Helgi: Jarðsil er það nefnt þegar vatnsmettaður jarðvegur sígur af þunga sínum undan halla, stundum á frosnu undirlagi. Þá myndast jarðsilþrep, sem eru eins og breiðar tröppur í hlíðum fjalla. Mjög algengt er að sjá jarðsilþrep í hlíðum fjallanna í Mýrdal og undir Eyjafjöllum. Þrepin eru um 1 metri á breidd og hæð þeirra 50–60 cm. Hraði jarðsils hefur ekki verið mældur hérlendis svo mér sé kunnugt, en fróðlegt væri að sjá mælingar á silhraðanum í Pétursey.5 Síðan getur Helgi um annars- konar myndanir af völdum jarðsils, svo sem öldur eða tungur sem oft séu 5–10 m breiðar og allt að metri á þykkt. Þær eru algengar ofantil í hlíðum fjalla með ruðningsjarðvegi, oftast berar að ofan en grónar að framan. Þær eru óreglulegar og mynda mjög sjaldan reglulega stalla. 2. mynd. Stallabrekkan fræga sunnan í Pétursey. Ljósm. Snorri Baldursson, ágúst 2016. a Ólafur Arnalds bendir í athugasemdum sínum við þessa grein á að hér hafi e.t.v. misritast „sm“ fyrir „mm“.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.