Morgunblaðið - 15.09.2016, Síða 2

Morgunblaðið - 15.09.2016, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 AFSLÁTTUR 25% KOMDU NÚNA! TEMPUR-DAGAR TEMPUR® HYBRID HEILSUDÝNAN Frumlegasta hönnun TEMPUR til þessa! QUICKREFRESH™ ÁKLÆÐI Rennilás gerir það afar einfalt er að taka QuickRefresh áklæðið af dýnunni og þvo. Ekki er hægt að kvarta yfir haustinu enn sem komið er og ættu þeir sem vinna úti við að una sér vel í veðurblíðunni. Von er á svipuðum hita á landinu á morgun og spáð er í dag, en síðan gengur á með sunnan og suðvestan átt og skúrum, en úrkomulitlu veðri norðaustanlands. Veðrið yfir helgina ætti að verða skaplegt, suðlægar áttir og stöku skúrir, en þurrt og bjart verður á Norðausturlandi. Unnið í miðbænum í veðurblíðunni Morgunblaðið/Golli Spáð er þokkalegu veðri næstu daga Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Arnarlax og fleiri fyrirtæki í Vesturbyggð og á Tálknafirði leggja fram fjármuni til að unnt verði að koma á almennings- samgöngum á milli þéttbýlisstað- anna á sunnanverðum Vestfjörðum. „Við erum ánægð með að vera kom- in með þetta í gang. Það hefur verið skoðað áður, en þá strandaði á fjár- mögnun. Síðan þá hefur margt breyst. Hér er mikill uppgangur og fólk vantar til vinnu og húsnæði vantar á Bíldudal og víðar,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir, verk- efnisstjóri hjá Vesturbyggð. Þörfin er fyrir hendi og óskað hefur verið eftir þessari þjónustu. Gerður bendir á að margir fari á milli staðanna vegna vinnu, ung- menni frá öllum stöðunum sæki nám í framhaldsskóladeildinni á Patreksfirði og börn sæki íþrótta- æfingar á Patreksfirði. Þá þurfi fólk að sækja þjónustu til Patreks- fjarðar en ekki eigi allir bíl. Sveitarfélögin Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur standa fyrir strætórekstrinum. Arnarlax kemur myndarlega inn í verkefnið með því að greiða þriðjung kostnaðar og fyrirtæki á svæðinu styrkja Héraðs- sambandið Hrafna-Flóka til að taka þátt vegna íþróttaæfinga barnanna. Áætlunin er sett þannig upp að fólk sem sækir vinnu á Bíldudal frá Patreksfirði og Tálknafirði, og öf- ugt, geti komist þangað á morgn- ana og framhaldsskólakrakkarnir komist til skóla í bakaleiðinni. Önn- ur ferð er um miðjan daginn og sú þriðja síðdegis. Með þeim getur fólkið aftur komist til síns heima og börnin til og frá æfingum. Strætóinn er tilraunaverkefni til eins árs. Áætlað er að það kosti 30 milljónir alls. Segir Gerður að í ljós komi á þessum tíma hvernig fólk nýti þjónustuna og hver þörfin sé í raun. Fyrirtækin taka þátt Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Patreksfjörður Nú eiga íbúar að komast greiðlega á milli þorpanna.  Almenningssam- göngur á sunnan- verðum Vestfjörðum Vigdís Hauksdóttir, formaður fjár- laganefndar Alþingis, kveðst spennt fyrir því að fá óháða aðila til að fara yfir skýrslu meirihluta nefndarinnar um einkavæðingu bankanna hina síðari og leggja mat á málið. Stingur hún upp á því að erlendir aðilar verði fengnir til verksins. Skýrslan var lögð fram á fundi fjárlaganefndar í gær. Góð umræða var um hana, að sögn Vigdísar, þó aðeins tæknileg en ekki efnisleg. Ákveðið var að ræða málið síðar. Vigdís reiknar með að meirihluti fjárlaganefndar muni koma saman til að meta það hvað best sé að gera í framhaldinu. Gagnrýna tilurð skýrslunnar Minnihlutinn gagnrýndi tilurð skýrslunnar og sagði vinnubrögðin ekki til þess fallin að auka virðingu Alþingis. „Ég lagði fram, með stuðn- ingi minnihlutans, spurningar um samningu skýrslunnar; hver hefði samið hana, hvaða sérfræðingar hefðu fengið greitt og fyrir hvaða vinnu, og um aðkomu annarra í meirihlutanum en formanns og vara- formanns. Og síðan hvort þeir sem eru bornir þungum sökum í skýrsl- unni hefðu fengið að bera hönd fyrir höfuð sér eða segja sína hlið,“ sagði Oddný G. Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar og fulltrúi í fjár- laganefnd. Hún óskaði eftir skriflegum svör- um og sagði meirihlutann hafa tekið vel í að málið yrði rætt þegar þau lægju fyrir. Vigdís segir það góða hugmynd að kalla á fund nefndarinnar þá sem fjallað er um í skýrslunni. Sá fundur yrði opinn blaðamönnum, eins og við umræðu um rannsóknarskýrslu um sparisjóðina. Þá bendir hún á að ef menn vilji rannsaka málið frekar mætti taka þingsályktunartillögu hennar út úr stjórnskipunar- og eft- irlitsnefnd og hefja þá rannsókn. Erlendir aðilar rannsaki  Bankaskýrsla lögð fram í fjárlaganefnd Vigdís Hauksdóttir Oddný G. Harðardóttir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Kostnaður veitingastaða við vinsæla ferðamannastaði við þrif og kaup á nauðsynlegum rekstrarvörum vegna reksturs salerna hefur aukist veru- lega á síðustu árum vegna fjölgunar ferðamanna. Þannig hefur kostn- aður hjá N1 aukist á bilinu 10-30% frá síðasta ári. Kostnaðurinn er að- eins mismunandi eftir staðsetningu stöðvanna. Tekjur veitingastaðanna aukast vegna fjölgunar gesta en kostnaður- inn einnig. Ekki eru allir sem koma inn á stöðvarnar viðskiptavinir í þeim skilningi að þeir kaupi vörur eða þjónustu. „Fólk gerir ráð fyrir því að komast á salerni á stöðvunum og það er þjónusta sem við teljum sjálfsagt að veita,“ segir Guðný Rósa Þorvarðardóttir, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs N1, og bætir því við að veitingastaðir séu í flestum stöðvunum úti á landi og þar sé skylda að vera með salerni. Biðraðir myndast Þeir sem ferðuðust um landið í sumar komust ekki hjá því að verða varir við biðraðir við salerni á vin- sælum viðkomustöðum. Það gerist ekki síst þegar rútur með fjölmenna erlenda ferðahópa staldra við. N1 hefur fundið fyrir þessu. Guðný Rósa nefnir sem dæmi að brugðist hafi verið við með því að leigja fullbúinn salernisgám og setja upp fyrir utan stöð N1 á Hvolsvelli. Að- staðan innandyra var orðin of lítil. Hún segir að þessi þjónusta hafi fengið góðar viðtökur hjá þeim fjöl- mörgu sem komu við á þeirri stöð. Auk þess að draga úr biðröðum hafi þessi viðbótarþjónusta gert starfs- fólki auðveldara að afgreiða stóra hópa í veitingasal og verslun. Bættu við gámi með salernum  Bensínstöðvar við þjóðveginn finna fyrir fjölgun ferðafólks  Biðraðir mynd- ast við salernin  Kostnaður hjá N1 hefur aukist á bilinu 10-30% frá síðasta ári Morgunblaðið/Ómar Ferðafólk Biðraðir myndast við salerni þar sem stórir hópar koma eða margar rútur í einu. Kostnaður við salernispappír og þrif eykst.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.