Morgunblaðið - 15.09.2016, Page 14
Drag-sýningar eru ævinlega líflegar í
meira lagi, fyndnar og ýktar í alla
staði, þar sem drottningar og kóngar
fara á kostum. Nú blæs Drag Súgur í
tíunda sinn til slíkrar sýningar á
morgun, föstudag, á Gauknum við
Tryggvagötu í Reykjavík. Húsið verð-
ur opnað kl. 20.30 en sýningin hefst
kl. 21. Fyrir þá sem vilja tryggja sér
borð er um að gera að mæta
snemma. Gestgjafi kvöldsins verður
hinn fyndni og frábæri Jonathan
Duffy, en fram koma Aurora Borealis,
Drama Tík, Miss Gloria Hole, Gógó
Starr, Jenny Purr, Pixy Strike, Ragna
Rök, Russel Brund, Turner Strait, Ur-
sula Vanity og Wonda Starr. Gaman!
Á Gauknum verður gleði
Jenny Purr Ein af þeim sem ætla að
koma fram á Gauknum á morgun.
Dragsúgur
með glimmeri
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
Lilja Katrín Gunnarsdóttir elskar að
baka og hún hefur haldið úti mögn-
uðu bökunarbloggi og afar vinsælu á
slóðinni www.blaka.is þar sem hún
bakar eins og enginn sé morgundag-
urinn. Og nú hefur hún ákveðið að
blása til bökunarmarþons þar sem
hún ein ætlar að baka samfellt í
sólarhring, eða 24 tíma, og bjóða
hverjum sem vill að koma og bragða
á því sem hún bakar. En megintil-
gangurinn er að safna peningum fyrir
Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk
sem greinst hefur með krabbamein
og aðstandendur. Þeir sem koma til
hennar geta lagt til frjáls framlög til
samtakanna, svo þetta er svokallaður
góðgerðarviðburður. Lilja Katrín ætl-
ar að byrja bakstursmaraþonið kl. 12
á hádegi næstkomandi laugardag, 17.
september, og síðasta kakan fer inn í
ofn hjá henni kl. 12 á hádegi daginn
eftir, sunnudaginn 18. september.
Hún segir alla velkomna í kaffi og
með’í á heimili hennar sem er í Mel-
gerði 21 í Kópavogi, og er fólk hvatt
til að styrkja Kraft á staðnum eða
leggja inn á bankareikning félagsins.
Sérstakir styrktarbaukar verða í
kaffisamsætinu. Og eðli málsins
samkvæmt rennur allur ágóði til
Krafts.
Hægt verður að fylgjast með þessu
skemmtilega framtaki á Facebook-
og Instagram-síðu Blaka, og líka á
snapchattinu hennar: liljagunn. Lilja
Katrín ætlar að setja allar uppskriftir
sem hún bakar eftir í maraþoninu inn
á blaka.is.
Hún segir á viðburðasíðunni að
kannski eigi hún eftir að sofna með
andlitið ofan í smjörkremi en hún
muni ekki láta það á sig fá, gleðin
verði við völd. Hún hvetur fólk til að
koma, hóa saman vinum og fjöl-
skyldu og kíkja í kaffi til hennar og
styrkja gott málefni í leiðinni. Hún
lofar að nóg verði af syndsamlega
góðu gúmmelaði á boðstólum og að
andrúmsloftið verði kolvetnaþrungið.
Allir velkomnir á góðgerðarviðburðinn Bökunarmaraþonið
Lilja Katrín kökubloggari ætlar
að baka samfleytt í sólarhring
Lilja Katrín Hún elskar að baka.
Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA í Pepsi-deild kvenna, semur einn texta á nýrri plötu Guðna
Bragasonar, sem fengið hefur heitið XL. Jóhann er þekktari fyrir afrek sín á knattspyrnuvellinum en hann
gerði Þór/KA að Íslandsmeisturum árið 2012. Hann hefur þó oft ort ljóð og texta en aldrei birt opinberlega.
Hann er í góðum félagsskap textasmiða á plötunni þar sem Guðni spilar á flest hljóðfæri sjálfur.
Benedikt Bóas
benedik@mbl.is
Trúlega kannast fleiri viðafrek Jóhanns KristinsGunnarssonar, þjálfaraÞórs/KA, á hliðarlínum
knattspyrnuvalla en í ljóðalist og
textasmíð. Jóhann hefur stýrt Þór/
KA meðal annars til Íslandsmeist-
aratitils árið 2012 og í kjölfarið
var hann valinn þjálfari ársins í
Pepsi-deild kvenna.
Jóhann er einn af textasmið-
um á nýrri plötu Guðna Bragason-
ar, tónlistarkennara frá Húsavík,
sem kallast XL. Þar eru nokkrir
landsliðsmenn í textasmíð fengnir
til að setja orð við lög Guðna,
meðal annars Skálmeldingurinn
Snæbjörn Ragnarsson og Ljótu
hálfvitarnir Oddur Bjarni Þorkels-
son og Sævar Sigurgeirsson.
„Mér er enginn greiði gerður
með því að vera í þessum hópi.
Þetta eru agalegir landsliðsmenn
sem þarna yrkja,“ segir Jóhann
Kristinn sem samdi textann fyrir
nokkrum árum. Ættingjar og vinir
hafa lengi fengið að njóta orð-
heppni hans en aldrei hefur neitt
opinberlega komið út fyrr en nú.
„Það er mjög langt síðan
hann fékk mig til að gera þetta.
Hann var að leika sér að semja
lög með útgáfu í huga fyrir þó
nokkru síðan. Svo hálfpartinn
gleymdi maður þessu en hann var
alltaf að vinna í lagasmíðum.
Ég hef aldrei gert neitt
svona, ég er stundum beðinn um
að gera eitthvert tækifærisdæmi
fyrir fjölskyldu, vini og vanda-
menn. Þetta liggur ágætlega fyrir
manni og það var lítið mál að
henda upp einum texta fyrir
Guðna.“
Ekki endilega niðurstaðan
Jóhann gerði reyndar fleiri
texta en þennan eina sem rataði á
plötuna, meðal annars á ensku,
sem Guðni hefur spilað á tón-
leikum. „Þegar hann bað mig um
að gera texta átti það að vera um
eitthvað ákveðið. Við munum
reyndar hvorugur hvort það var
niðurstaðan en þetta lag kom út
og er niðurstaðan.
Guðni fékk okkur sem skrif-
uðum textana á plötunni hans til
að setja niður nokkrar línur, um
hvað textinn okkar væri. Þá varð
ég að fá textann minn aftur til að
lesa hann yfir því það var svo
langt síðan ég hafði ort hann og
var löngu búinn að gleyma um
hvað hann var. Guðni semur lögin
með rugl-lensku. Raular einhverja
laglínu og bullar með. Hann lét
mig hafa þannig demó þar sem
hann var með kassagítarinn og
raulaði laglínuna með einhverjum
óskiljanlegum orðum. Þetta átti að
vera texti um nostalgíska og syk-
urhúðaða minningu um eitthvað
sem var og rættist kannski og
kannski ekki. Eitthvað sem flestir
ættu kannast við. Ég held að ég
hafi meira að segja dottið í smá
rómantík með textann.“
Textasmíð virðist eiga vel við
Jóhann Kristin þrátt fyrir að ekk-
ert hafi komið út eftir hann fyrr.
„Ég geri of lítið af því að yrkja,
eiginlega bara þegar ég er beðinn
um það. Ég get vel trúað því að
það sé stórkostleg skemmtun til
dæmis að mæta á hagyrðingakvöld
og þó að ég skoði alltaf auglýs-
ingar um slík kvöld hef ég enn
ekki mætt.“
Guðni Bragason er rótgróinn
Húsvíkingur og hálfgert tónlistar-
undur enda spilar hann á öll hljóð-
færi inn á plötuna XL sem kom út
í ágúst s.l, nema rafmagnsgítar.
Hann kennir tónlist við Þingeyjar-
skóla og var í hljómsveitinni Kalk,
sem Skálmeldingarnir Þráinn Árni
Baldvinsson og Jón Geir Jóhanns-
son voru í ásamt Braga Valdimar
Skúlasyni svo nokkrir séu nefndir.
Upphafið?
Spurður um framhaldið, hvort
von sé á fleiri textum frá Jóhanni,
segir hann að þetta gæti verið
upphafspunktur.
„Ég er ekkert að gefa mig út
fyrir þetta. Við Guðni erum búnir
að þekkjast lengi og hann hafði
hjálpað mér þegar ég var að
skrifa leikrit fyrir mörgum árum.
Hann hjálpaði mér þá með lögin
sem voru í leikritinu. Hann vissi
alveg að ég gæti þetta en það eru
ekkert fleiri textar í pípunum.
Ekki í bili allavega. Fyrst þarf að
klára tímabilið með Þór/KA.“
Íslandsmeistari semur texta
Snæbjörn Hann á texta á plötunni.
Textasmiðir Sævar Sigurgeirsson og
Oddur Bjarni Þorkelsson.
Stór G
uðni B
ragaso
n
gaf út
diskinn
XL.
Ég get vel trúað því
að það sé stórkostleg
skemmtun til dæmis
að mæta á hagyrð-
ingakvöld.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Liðtækur Jóhann Kristinn hefur
lengi haft orð á sér að vera orð-
heppinn maður. Nú er hans fyrsta
opinbera verk komið út og aldrei að
vita nema fleiri fylgi í kjölfarið.
Íslandsmeistari Jóhann Kristinn (til hægri) heldur betur kátur þar sem
hann kyssir bikarinn árið 2012 þegar Þór/KA hafði unnið deildina.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Í tilefni af því að fjörutíu ár eru liðin
frá því fyrstu jafnréttislögin voru sett
og fimm manna Jafnréttisráð skipað
til að annast framkvæmd þeirra er
boðað til ráðstefnu í dag kl. 11 og er
hún haldin í Menningarhúsinu Hofi á
Akureyri í tengslum við árlegan
landsfund sveitarfélaga um jafnrétt-
ismál. Í tilkynningu kemur fram að á
ráðstefnunni verði farið yfir þróun
jafnréttislaga, stöðuna í dag og hvað
sé brýnast að gera. Ráðstefnan er öll-
um opin og eru upplýsingar um dag-
skrá og skráning á heimasíðu
Jafnréttisstofu: www.jafnretti.is.
Í Hofi á Akureyri
Ráðstefna
um jafnrétti
Morgunblaðið/Eggert
Jafnrétti Það er stöðug barátta.