Morgunblaðið - 15.09.2016, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
AT
H
YG
LI
-O
kt
ób
er
20
15
Klettagörðum5 | 104 Reykjavík | stolpigamar.is
ÍtölskuMABER
vinnulyfturnar hafa reynst
vel við íslenskar aðstæður
á undanförnumárum.
MABERvinnulyftur
ÝMSAR TEGUNDIR AF VINNULYFTUM,
S.S. VÖRU-, FÓLKS- OG VINNUPALLALYFTUR.
Hafðu
samband
5680100
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Kraftur hefur verið í framkvæmdum
í Urriðaholti síðustu misseri og eftir
erfiða fæðingu er nú áætlað að hverf-
ið verði fullbyggt eftir 5-7 ár. Þar eins
og í fleiri hverfum á höfuðborg-
arsvæðinu teygja byggingarkranar
sig upp í loft, iðnaðarmenn eru á þön-
um og húsin verða íbúðarhæf hvert af
öðru.
Jón Pálmi Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Urriðaholts ehf., áætl-
ar að 1.500-1.600 íbúðir verði í holtinu
og miðað við þrjá íbúa í hverri íbúð
gæti íbúafjöldinn í heild orðið allt að
fimm þúsund manns. Til sam-
anburðar má nefna að 4.693 manns
voru skráðir með búsetu í Fjarða-
byggð 1. júní í sumar, en þar eru m.a.
bæirnir Neskaupstaður, Eskifjörður
og Fáskrúðsfjörður.
Búið er að reisa hús með 248 íbúð-
um í Urriðaholti sem ýmist hefur ver-
ið flutt inn eða eru í lokafrágangi. Ver-
ið er að reisa hús með 356 íbúðir þar til
viðbótar og á næstu mánuðum verður
byrjað á húsum með 39 íbúðum. Í
skipulagsferli eru svo 315 íbúðir þar
sem framkvæmdir hefjast á næsta ári.
Alls gera þetta 958 íbúðir. „Það er
vissulega mikið að gerast í Urriðaholti
og tölur um hátt í þúsund íbúðir á 3-4
árum í nýju hverfi tala sínu máli,“ seg-
ir Jón Pálmi.
Urriðaholt ehf. var stofnað í árs-
byrjun 2005 í þeim tilgangi að þróa
uppbyggingu í Urriðaholti í Garðabæ.
Félagið er í eigu Oddfellow-reglunnar
á Íslandi og Viskusteins ehf., eign-
arhaldsfélags í eigu Sigurðar Gísla og
Jóns Pálmasona.
Fyrirtækið er eigandi allra lóða í
Urriðaholti og selur þær til bygging-
arfyrirtækja og einstaklinga. Garða-
bær byggir upp innviði í þessu nýja
hverfi og hófst sú uppbygging árið
2007. Á þessu ári hefur sveitarfélagið
lagt um 400 milljónir í gatnagerð og
350 milljónir í leik- og grunnskóla í
Urriðaholti, sem verður tekinn í notk-
un í ágúst á næsta ári.
Fjölbýlishús með
litlar leiguíbúðir
Í skipulagi Urriðaholts er lögð
áhersla á fjölbreytni í íbúðaformum.
Jón Pálmi segir að til þessa hafi held-
ur færra barnafólk flutt í hverfið en
ráð hafi verið fyrir gert. Það skýrist
meðal annars af því að í byrjun hafi
meira framboð verið af eignum sem
frekar hafi hentað eldra fólki.
Nú er í skipulagsferli hjá Garðabæ
bygging fjölbýlishúss með litlar íbúðir,
25-45 fermetrar að stærð. Gert er ráð
fyrir 36 leiguíbúðum í húsinu og eru
ströng skilyrði um bygginguna, m.a.
um eignarhald þannig að stakar íbúðir
verði ekki seldar í húsinu. Þessi til-
raun hefur fengið jákvæð viðbrögð
bæjaryfirvalda að sögn Jóns Pálma.
Lögð er áhersla á sjálfbærni og að
Urriðaholt sé umhverfisvæn byggð í
grennd við Urriðavatn. Skipulag
hverfisins hefur fengið alþjóðlega
vistvottun og ýmsar viðurkenningar.
Með þessa þætti í huga hefur verið
reynt að nýta innan svæðis sem mest
af því grjóti sem fellur til.
Efnið er malað niður og unnið fyrir
gatnagerð og húsgrunna. Ekki hefur
verið hægt að nýta allt efnið í Urriða-
holtinu og talsvert verið keyrt út fyrir
hverfið og nýtt í byggingarefni ann-
ars staðar. Jón Pálmi segir að eigi að
síður hafi á þennan hátt tekist að
fækka kolefnissporum fram-
kvæmdanna.
Hátt í þúsund íbúðir á 3-4 árum
Kraftur í framkvæmdum í Urriðaholti Fullbyggt eftir 5-7 ár Íbúafjöldi gæti orðið allt að 5.000
Urriðaholt
» Skipulag Urriðaholts var
samþykkt 2007.
» Ýmsir þeirra sem fyrstir
festu sér lóðir á svæðinu lentu
í erfiðleikum eftir efnahags-
hrunið.
» Fyrstu íbúarnir fluttu inn í
einbýlishús við Keldugötu í
apríl 2010.
» Fyrstu íbúðirnar í fjölbýli
voru afhentar eigendum haust-
ið 2014.
» Hverfaþjónusta verður efst
á holtinu en stutt er í stórversl-
anir af ýmsum toga í Kauptúni
þar sem Costco opnar í mars á
næsta ári.
Morgunblaðið/Eggert
Urriðaholt Kraftur hefur verið í framkvæmdum á svæðinu síðustu misseri og byggingarkranar verið áberandi. Áhersla er lögð á að í Urriðaholti verði umhverfisvæn byggð.
Morgunblaðið/Eggert
Mjakast áfram Húsin eru af ýmsum gerðum og mislangt komin.
Ljósmynd/Urriðaholt/Helifilms
Uppbygging Séð yfir fjölbýlishús við Holtsveg og hluta Urriðaholts úr lofti.