Morgunblaðið - 15.09.2016, Qupperneq 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
majubud.is
„Nóttin er skemmtilegur tími í sólar-
hringnum og gæðatími blaðberans.
Nú í vikunni var gaman að sjá
stjörnurnar og norðurljósin dansa á
himninum og þegar klukkan nálg-
aðist sex kom dagsbirtan. Það var
gaman að fylgjast með þessu,“ segir
Elín G. Ingvarsdóttir í Kópavogi.
Hún dreifir Morgunblaðinu við göt-
urnar Arnarsmára og Bollasmára
en þegar best lætur er dagskammt-
urinn þar um 170 blöð. Einnig ber
Elín blaðið út í hús við ýmsar aðrar
götur í bænum, eftir því sem dreif-
ingardeild Árvakurs þarf hverju
sinni.
„Ég er komin úr húsi fljótlega eft-
ir kl. fjögur á morgnana en blað-
burðinum á að vera lokið um klukk-
an sjö. Yfirleitt gengur þetta vel og
ég er búin að vera í þessu starfi í tíu
ár,“ segir Elín sem er leikskólakenn-
ari og starfar sem slík við leikskól-
ann Arnarsmára í Kópavogi.
Blaðburðurinn er góður fyrir lík-
ama og sál, segir Elín. Hreyfingin sé
góð fyrir líkamann og beinlínis
nauðsynleg og næturröltið nýtist
líka vel til að skipuleggja verkefni
framundan.
„Ég mæli með því að fólk finni sér
laust hverfi og fari að bera út blöð.
Það munar líka um tekjurnar í þessu
starfi, þetta eru peningar sem væru
ekki gripnir upp úr götunni að öðr-
um kosti. Þegar ég þurfti að kaupa
þvottavél komu þessir peningar sér
vel og þegar bíllinn fór á verkstæði.
Þá hafa skemmtilegar utanlands-
ferðir dottið inn og blaðburðurinn
borgað þær,“ segir Elín að síðustu.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Aðalstarfið Elín G. Ingvarsdóttir er kennari í leikskólanum Arnarsmára.
Blaðberinn sér
norðurljós dansa
Dreifir Morgunblaðinu í Kópavogi
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Það eru áætlanir um að byggja
þarna 78 íbúðir í lágreistri byggð, á
skandínavíska vísu með opnum garði,
en svo er eitt hús stærra sem vísar út
á sjó, sem er í takt við umhverfið,“
segir Gísli Örn Bjarnhéðinsson, fram-
kvæmdastjóri Búseta. Húsnæðissam-
vinnufélaginu Búseta var á dögunum
úthlutað lóð við Keilugranda 1 í
Reykjavík, en borgarstjórn Reykja-
víkurborgar greiddi atkvæði um mál-
ið í byrjun september.
Deiliskipulagshönnun tekur mið af
því að hægt sé að bjóða upp á fleiri
litlar einingar að sögn Gísla og því
standi til að byggja minni og ódýrari
íbúðir. „Við erum með íbúðir allt nið-
ur í 35 fm á teikniborðinu, en það er
alveg nýtt hér á landi,“ bætir hann
við, en þannig vilji Búseti tryggja
ákveðna breidd og leggja áherslu á
fjölbreytta byggð. „Það er vonandi já-
kvætt að yngri kynslóðin og ákveðinn
hluti þjóðarinnar hafi meira val.“
Hefja framkvæmdir vorið 2017
Um 10% íbúðanna sem þarna verða
byggðar fara til Félagsbústaða, en
það var hluti af samkomulagi Búseta
við borgina þegar lóðinni var úthlut-
að. „Við borgum fyrir lóðina og nið-
urrif og kostum alla deiliskipulags-
hönnun þannig að við fáum þetta ekki
frítt eins og margir halda – lóðin kost-
ar vel á fjórða hundrað milljónir,“
segir hann, en fyrirhugað er að hefja
framkvæmdir á vordögum 2017.
Íbúðirnar eru háðar búseturétti og
því mitt á milli kaups og leigu að sögn
Gísla.
Andstaða var í borgarstjórn við út-
hlutun lóðarinnar til Búseta, en
minnihluti Sjálfstæðisflokks og
Framsóknar og flugvallarvina vildi
skilgreina reitinn sem íþrótta- og úti-
vistarsvæði. Gísli telur hins vegar
ákvörðun meirihlutans hluta af al-
þjóðlegri þróun þar sem blöndun
byggðar sé tryggð í höfuðborgum
með húsnæði til eignar, leigu og bú-
seturéttar ásamt félagslegu húsnæði.
Ódýrari og minni íbúð-
ir við Keilugranda
Búseti byggir 35 fm íbúðir Hluti af alþjóðlegri þróun
Nýtt Keilugrandi 1, svokallaður SÍF-reitur, verður nýttur til uppbyggingar
fjölbreyttra íbúða á vegum Búseta sem býður upp á búseturéttaríbúðir.
Bjóða hagstæðar íbúðir
» Reykjavíkurborg úthlutaði
Búseta lóðina að Keilugranda 1
» Búseti hefur byggingu
ódýrra og minni íbúða á svæð-
inu ásamt 78 íbúðum í lág-
reistri byggð á vordögum 2017
» Ekki er krafa um stæði í bíla-
stæðakjallara á lóðinni, sem
gerir Búseta kleift að bjóða
upp á hagstæðari íbúðir