Morgunblaðið - 15.09.2016, Page 42
42 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
VIÐTAL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Helsta einkenni alræðisríkja er að
þau reyna að stjórna öllu sem
þegnar þeirra gera,“ segir Tunne
Kelam, þingmaður Evrópuþingsins
fyrir Eistland. En þetta er helsti
veikleiki þeirra líka, því það mun
alltaf mistakast að ná fullkomnu
valdi á fólki. Lítil rispa sést því
þegar á gljáfægðu yfirborðinu.“
Kelam var hér á landi í lok síð-
asta mánaðar til þess að minnast
þess að 25 ár voru liðin frá því að
Eystrasaltsríkin fengu sjálfstæði
sitt að nýju, eftir að hafa verið und-
ir stjórn Sovétríkjanna frá því í
júní 1940. Flutti hann meðal ann-
ars erindi á Háskólatorgi um
reynslu sína og var gerður góður
rómur að.
Kelam tók virkan þátt í
sjálfstæðisbaráttu Eistlands á sín-
um tíma og rifjar upp með stolti
þegar hann bætti „nokkrum risp-
um við áferð Sovétríkjanna“ árið
1972, en þá sendi hann og félagar
hans í tveimur andspyrnuhópnum
bréf til Sameinuðu þjóðanna og
Kurt Waldheim, framkvæmda-
stjóra alþjóðasamtakanna, og báðu
um að Sameinuðu þjóðirnar skipu-
legðu frjálsar kosningar í landinu
og vísuðu Rauða hernum úr landi.
„Eini tilgangur þess var að sýna að
Eistar væru ekki allir sáttir við yf-
irráð Rússa og að kosningaúrslit,
sem sýndu 99% stuðning við
Kommúnistaflokkinn, væru röng.“
Vesturlönd veittu líflínu
Kelam er sagnfræðingur að
mennt, en segist lítið hafa ástundað
fræðin, hann hafi meira verið í að
skapa söguna sjálfur. Hann segir að
í söguvitund Eista hefði alltaf verið
mjög sterk tilfinning um að það sem
kennt var í ríkisskólunum um að-
draganda þess að Sovétríkin tóku
Eystrasaltsríkin yfir væri rangt.
„Foreldrar og afaforeldrar héldu
sögunni á lífi fyrir börnum sínum, en
það var ekki án áhættu, því að barn-
ið hefði getað staðið upp í skólanum
og sagt: „Það sem þú kennir okkur
er lygi!“ með alvarlegum afleið-
ingum.“
Kelam segir að það hafi verið
mikilvægt fyrir Eystrasaltsríkin að
Bandaríkin og önnur vestræn ríki
viðurkenndu aldrei lögmæti gjörn-
ingsins 1940. „Sendiherrar frá
Eystrasaltsríkjunum héldu til dæm-
is stöðu sinni í Washington og voru
hluti af diplómatahópnum þar,“ seg-
ir Kelam og bætir við að Bandaríkja-
forseti hefði þá markað þjóðhátíðar-
dag Eistlands á hverju ári með því
að afhenda sendiherranum kveðju
sína og óskir um að landið yrði
frjálst á ný, sem fór mjög í taug-
arnar á Sovétmönnum á þeim tíma.
„Það var okkar helsta líflína að
fremsta lýðræðisríki heims og flest
önnur vestræn ríki viðurkenndu
aldrei glæpinn,“ segir Kelam.
Snerist fyrst um sannleikann
Kelam rifjar upp í þessu samhengi
að þegar sjálfstæðisbarátta Eystra-
saltsríkjanna hófst af alvöru árið
1987 hafi hún fyrst um sinn snúist
um að fá á hreint hvað hefði gerst í
aðdraganda þess að Sovétríkin tóku
ríkin yfir. „Við héldum stór mótmæli
á 48 ára afmæli griðasáttmála Molo-
tovs og Ribbentrops og kröfðumst
þess að fá að vita hvað hefði gerst,
hvort þetta hefði verið hernám,
byggt á samkomulagi tveggja ein-
ræðisherra, eða var það eins og okk-
ur var kennt í skólunum að eistneska
þjóðin hefði beðið um að ganga í hin
miklu Sovétríki?“
Ári síðar hefði sannleikurinn kom-
ið í ljós, þegar Gorbatsjoff, þáver-
andi leiðtogi Sovétríkjanna, birti
leyndu viðaukana við griðasáttmál-
ann, en tilvist þeirra hafði alltaf ver-
ið neitað. „Þá er eins og máltækið
segir: „Sannleikurinn gerir yður
frjálsan“. Það var augljóst af skjöl-
unum að við höfðum rétt á frelsi okk-
ar, því að við vorum fórnarlömb
ólöglegs hernáms og þar af leiddi að
þetta var „nauðungarhjónaband“
sem myndi ekki einu sinni krefjast
lögformlegs „skilnaðar“,“ segir Ke-
lam. Boltinn sem þá hafi farið að
rúlla hafi verið óstöðvandi.
Kelam segir að verulega hafi
skort á uppgjör við kommúnismann
eftir fall Sovéríkjanna. Skýr pólitísk
og siðferðileg þörf sé á því að for-
dæma glæpina sem framdir voru í
nafni hans. „Ef slíkt uppgjör hefði
átt sér stað fyrir 25 árum þegar Sov-
étríkin leystust upp myndum við
ekki búa við það vandamál sem Pút-
ín og ágengni Rússa er í dag. Getur
þú ímyndað þér að fyrrverandi liðs-
foringi í Gestapo hefði getað orðið
kanslari lýðræðisríkisins Þýska-
lands?“ spyr Kelam og svarar því til
að það væri óhugsandi, því að glæpir
nasismans hefðu verið svo augljósir.
„En ofursti í KGB getur ekki bara
orðið þjóðhöfðingi Rússlands, heldur
eru enn skýr tengsl á milli landsins
og Sovétríkjanna. Ef við hefðum for-
dæmt glæpi kommúnismans á skýr-
an hátt þegar í stað hefði verið hægt
að komast hjá þeirri stöðu sem er
nú, þar sem menn hafa áhyggjur af
því á hverjum einasta degi hvað Pút-
ín muni gera og hvernig við getum
brugðist við.“
Smáríki geta skipt sköpum
Kelam segir að í þeim hnút sem
alþjóðamál eru komin í geti lítil ríki
eins og Ísland og Eistland skipt
sköpum. „Í slíkri stöðu geta lítil ríki
tekið skýrari afstöðu en þau stærri,
því að þau bera minni byrðar af al-
þjóðahagsmunum,“ segir Kelam.
Hann segir framgöngu Íslands þeg-
ar Eystrasaltsríkin fengu sjálfstæði
þar gott dæmi. „Lítil ríki geta minnt
hin stærri á hvaða gildi þau standa
fyrir, á það hvað eining skiptir miklu
máli og á það hvaða áhrif ákvarðanir
stærri ríkjanna geta haft til lengri
tíma, í staðinn fyrir að einbeita sér
að „realpolitik“ dagsins í dag.“ Ke-
lam segir það fagnaðarefni í þessu
ljósi að Íslendingar minnist enn þess
sem gerðist fyrir 25 árum og þess
mikilvæga hlutverks sem landið
gegndi í sjálfstæðisbaráttu Eystra-
saltsríkjanna.
Höfum upplifað allt
Kelam segir að auðvitað sé litið á
Rússa og ágengni þeirra sem ógn í
Eystrasaltsríkjunum. „Sú ógn gæti
orðið mjög raunhæf, því að Pútín
gæti freistast til þess að reyna að
veikja Atlantshafsbandalagið eða
eyðileggja trúverðugleika þess með
því að ráðast á eitt Eystrasaltsríkj-
anna,“ segir Kelam.
Markmiðið yrði að sýna fram á að
bandalagið væri bara pappírstígur
eða kjaftabandalag, sem gerði síðan
ekkert þegar 50 eða 100 þúsund
rússneskir hermenn væru komnir
yfir landamærin. „Það myndi ekki
snúast um Eystrasaltsríkin heldur
Atlantshafsbandalagið, ríkin yrðu
bara tæki í höndum Pútíns til að
niðurlægja bandalagið.“
Kelam segir þó að íbúar Eystra-
saltsríkjanna séu ekki of tauga-
strekktir, af einfaldri ástæðu. „Við
höfum upplifað allt sem alræðisríki
getur gert. Ekkert gæti gerst sem
er verra en það. Eystrasaltsríkin
hafa aldrei staðið betur í sögunni, við
erum í helstu bandalögunum, við
eigum vini og tryggingar fyrir vörn-
um og sjálfstæði okkar, sem eru ekki
bara í orði.“
Refsiaðgerðirnar nauðsyn
Kelam leggur áherslu á nauðsyn
þess að ríki Vesturlanda standi sam-
an gegn ágengni Rússa. „Það hefur
verið mikil pressa á þessu ári til þess
að létta á refsiaðgerðunum, en Pútín
sjálfur hefur staðið sig vel í að rétt-
læta áframhaldandi aðgerðir gegn
sér,“ segir Kelam.
Hann bætir við að margir stjórn-
málamenn í Evrópu séu á því að að-
gerðirnar virki ekki og að gagn-
aðgerðir Pútíns hafi valdið þeim
meiri skaða en Rússum. „En ef Evr-
ópusambandið og Bandaríkin hefðu
ekki tekið aðgerðirnar upp tel ég að
Úkraína öll væri undir hervaldi
Rússa í dag. Aðgerðirnar veiktu
Pútín og drógu mátt úr áformum
hans og það er mikið afrek,“ segir
Kelam.
Hann telur þetta vera spurningu
um trúverðugleika vesturveldanna,
því aðgerðirnar sýni samstöðu
þeirra og andstöðu við ágengni. „Við
verðum því að vera staðföst, þetta er
taugastríð eins og í pókerspili við
mafíósa. Þeir virða bara mátt og
staðfestu. Ef enginn er tilbúinn til að
standa fyrir sínu, þá virða þeir mann
ekki,“ segir Kelam og vísar í hina
frægu spurningu Stalíns: „Hversu
margar herdeildir hefur páfinn?“
„En það eru ekki bara herdeildir
sem skipta máli í þessu samhengi,
það er hægt að sýna siðferðilegan
styrk líka,“ segir Kelam.
Dýrkeyptur lærdómur
-En hvaða lærdóm má draga af
sögu Eystrasaltsríkjanna og þeirri
hálfu öld sem þau voru undir oki
Sovétríkjanna? „Ég held að það sé
sami lærdómur og hægt er að draga
af München-samkomulaginu 1938.
Ef þú reynir að forðast átök með því
að láta undan ágengni verður verðið
sem þarf að borga þúsund sinnum
hærra,“ segir Kelam.
Það geti reynst dýrkeypt að velta
vandamálinu á undan sér með frið-
þægingu. „Þetta er svipað og skað-
inn sem gagnaðgerðir Rússa valda,
já, margir óttast þær og þær valda
óþægindum, en skaðinn af þeim er
enginn á við þann sem stórstyrjöld
getur valdið,“ segir Kelam að lokum.
Litlar rispur
geta fellt
alræðisríki
Tunne Kelam, Evrópuþingmaður
fyrir Eistland, vill að glæpir komm-
únismans verði gerðir upp
Morgunblaðið/Golli
Eystrasaltsríkin Tunne Kelam á fyrirlestri sínum um baráttu Eystrasaltsríkjanna fyrir sjálfstæði. Hann segir að
skort hafi á uppgjör við Sovétríkin og kommúnismann og segir að ekki megi láta undan ágengni Pútíns og Rússa.
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000
www.kemi.is - kemi@kemi.is
Fyrir börn - Fyrir fullorðna - Fyrir fagmenn