Morgunblaðið - 15.09.2016, Blaðsíða 52
52 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
Með erindi þessu
vil ég ítreka þá
áskorun mína til kín-
verska sendiráðsins,
sem ég setti fram í
blaðagrein í Morgun-
blaðinu fyrir þremur
árum, að það selji
hús sitt að Víðimel
29, sem hefur nú
staðið autt í fimm ár.
Hefur greinarhöf-
undur undanfarna
áratugi búið að Reynimel 28, en
hliðar húsanna snúa saman, og
haft nú í rúm 40 ár þá vafasömu
ánægju að hafa daglega fyrir aug-
unum vanhirðuna á garði sendi-
ráðsins og nú á sjálfu húsinu, sem
er tilefni þessarar ítrekuðu áskor-
unar.
Húsið að Víðimel 29 var byggt
árið 1945, steinað með silfurbergi
og hrafntinnu og með koparþaki
og taldist til betri bygginga í bæn-
um, eins og húsin tvö við hliðina á
í austurátt, en þau hús voru ný-
lega endursteinuð og reyndar
fleiri í nágrenninu og eru um-
hverfinu til sóma. Árið 1973 keypti
kínverska alþýðulýðveldið Víðimel
29. Bjó sendiherrann fyrst á efri
hæðinni, en á þeirri
neðri var skrifstofa
sendiráðsins. Nokkr-
um árum seinna var
koparinn á þakinu
málaður og jafnframt
málað yfir steiningu
hússins, sem kín-
verskir verkamenn
sáu um. Þá voru
smíðaðir járnrimlar
fyrir alla glugga, en
afgangur efnisins
settur út í beð í garð-
inum, sem fljótt hvarf
í gras og arfa og lá
þar næstu áratugina.
Vanhirðan á garðinum og sóða-
skapurinn hefur alla tíð verið
starfsmönnum sendiráðsins á
hverjum tíma til vansæmdar svo
eftir er tekið. Frá upphafi var ein-
göngu látið nægja að slá garðinn í
mesta lagi tvisvar á sumrin. Í
fyrra var hann sleginn einu sinni í
byrjun hausts, en þá brást sendi-
ráðsmönnunum úthaldið og skildu
eftir 12 fulla svarta ruslapoka í
garðinum, þar sem þeir eru enn og
verða væntanlega næstu árin. Í
sumar var garðurinn aldrei sleg-
inn og getur lengi vont versnað.
Er nú svo komið að búið er í
gegnum árin að fleygja inn í garð-
inn allra handa rusli, svo sem
vörubretti, plastkeilu sem dæmi og
er ekki til að laga ástandið á garð-
inum. Finnst manni undarlegt að í
öll þessi ár hafi aldrei verið feng-
inn garðyrkjumaður til að sjá um
garðinn, eins og flest önnur sendi-
ráð gera, sem hafa séð sóma sinn í
því að hafa snyrtilegt kringum sig,
enda er sendiráð andlit þjóðar
sinnar út á við í viðkomandi landi.
Hef ég gegnum árin iðulega séð
fólk, einkum útlendinga, stansa á
göngu sinni og benda inn í sendi-
ráðsgarðinn og hrista höfuðið af
hneykslan yfir umhverfissóða-
skapnum, sem getur ekki verið
góð landkynning fyrir Kínverja,
sérstaklega ef þeir hafa áhuga á
að reka einhverja starfsemi hér á
landi í framtíðinni. Þá skal hér
nefnt að margir hafa reynt að ná
sambandi við sendiráðið í ýmsum
erindagjörðum, svo sem vegna
áhuga á kaupum á húsinu eða til
að fá leyfi til að eitra fyrir kerfl-
inum sem var farinn að dreifa sér
í næstu garða eða til að láta vita
að þakgluggi á húsinu hefði rifnað
upp með tilheyrandi hávaða-
skellum og vatnselg inn í ris húss-
ins. Aldrei var erindum svarað, en
hvort það stafaði af því að kín-
verskir sendiráðsmenn telja það
fyrir neðan sína virðingu að svara
Íslendingum eða ástæðan er ein-
hver önnur er ekki vitað.
Fyrir fimm árum flutti kín-
verska sendiráðið í nýtt og stórt
húsnæði þar sem Sjóklæðagerðin
var áður til húsa, nú Bríetartún 1.
Húsið Víðimelur 29 hefur síðan
staðið autt, án þess að vart verði
við mannaferðir í húsinu. Hefur
maður haft á tilfinningunni að eig-
andinn hafi alveg gleymt því og
þannig verði það væntanlega
áfram að óbreyttu. Ekki má líta á
hús í grónu íbúðarhverfi eins og
einhvern hlut sem eigandinn er
hættur að nota og hefur sett í
geymslu, en ætlar kannski að nota
einhvern tímann í framtíðinni, ef
svo ber undir. Hér mætti húseig-
andinn einu sinni taka tillit til okk-
ar nágrannanna eftir alla þessa
áratugi og láta sig hverfa og gréti
það enginn.
Húsið sjálft mun með sama
framhaldi halda áfram að grotna
niður og ástand garðsins er orðið
skelfilegt, eins og menn geta séð
með eigin augum, t.d. hylur brot-
inn trjástofn undan snjóþyngsl-
unum í vetur stóran hluta grasflat-
arins, þar sem sjálfsprottinn
trjágróður er farinn að koma upp
og svalatröppurnar sem liggja út í
garðinn eru þaktar mosaslepju.
Ítreka ég þá áskorun mína að kín-
verska sendiráðið sjái sig um hönd
og selji húsið sem það hefur enga
þörf fyrir lengur og þá helst ein-
hverjum Íslendingi sem hefði bæði
áhuga á og mikla fjárhagslega
getu til að koma húsinu í upp-
haflegt stand og jafnframt hirða
um garðinn. Búi þar helst sjálfur
en breyti því ekki í enn eitt gisti-
húsið, sem er svo önnur saga. Sér
maður strax fyrir sér húsalínuna
með húsunum þremur milli Furu-
mels og Espimels, þegar húsið að
Víðimel 29 hefur verið tekið í gegn
að utan sem innan og þá garð-
urinn einnig. Þannig verði líf í
húsinu og það lýst upp, en sé ekki
þetta myrkrabæli eins og það hef-
ur verið síðastliðin fimm ár við
þessi fjölmennu gatnamót Víðimels
og Furumels nú þegar vetur fer í
hönd og börnin byrjuð að streyma
í skólana snemma á morgnana.
Ítrekuð áskorun til kínverska sendiráðsins
Eftir Jónas
Haraldsson »Húsið sjálft mun
með sama framhaldi
halda áfram að grotna
niður og ástand garðs-
ins er orðið skelfilegt,
eins og menn geta séð
með eigin augum.
Jónas
Haraldsson
Höfundur er lögfræðingur.
Í tilefni af grein
Hauks Ingibergssonar
í Mbl 12. september
sl., sem hann nefndi
„Uppfærum lífeyris-
kerfi eldri borgara
1.1.2017“, leyfi ég mér
að gagnrýna fram-
setningu hans og upp-
gjöf gagnvart því að
ná fram leiðréttingu á
greiðslum frá lífeyris-
sjóðum til þeirra sem þær greiðslur
ættu að eiga án skerðingar og
greiðslum almannatrygginga, sem
áttu að tryggja lágmarksframfærslu
einstaklinga til að geta lifað, sam-
kvæmt lögum frá 1946.
Hvað er uppfært
lífeyriskerfi?
Að mínu mati eignaupptaka rík-
isins, mismunandi skerðingar og of-
urskattur á vinnu til lífsbjargar.
Það er núverandi kerfi og breytist
nær ekkert með nýrri löggjöf.
Vinstri stjórnin skerti kjör ör-
yrkja og eldri borgara miskunn-
arlaust og kom á skerðingum, langt
umfram alla aðra, þannig að eldri
borgarar voru skertir miðað við
stöðuna í dag um 150.000 á mánuði.
Núverandi stjórn bætti stöðuna
aðeins, afnám skerðingar á grunnlíf-
eyri allra, sem er um 30 til 40 þús-
und á mánuði, og setti á frí-
tekjumark sem hækkaði úr 45
þúsund í um 110 þúsund kr. á mán-
uði. Á flokksþingi Framsóknar-
flokksins 2013 var samþykkt að
kjaraskerðing aldraðra og öryrkja,
sem tók gildi 1. júlí 2009, yrði aft-
urkölluð og að lífeyrir aldraðra og
öryrkja yrði hækkaður vegna kjara-
skerðingar þeirra eftir hrun. Á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2013
var samþykkt að sú
kjaraskerðing, sem
eldri borgarar og ör-
yrkjar urðu fyrir 1. júlí
2009 yrði tafarlaust aft-
urkölluð og að leiðrétta
ætti kjaragliðnun
krepputímans. Í kosn-
ingabréfi Bjarna Bene-
diktssonar fyrir kosn-
ingar var sagt: „Við
ætlum að afnema
tekjutengingu ellilíf-
eyris.“
Núverandi stjórn-
arflokkar lofuðu þannig fyrir kosn-
ingar 2013 að kjör eldri borgara og
öryrkja yrðu að lágmarki 350 þús-
und á mánuði fyrir utan skatt, en
hér á landi er fátækt skattlögð eða
allt umfram 145 þúsund á mánuði.
Skattar á þá betur settu voru lækk-
aðir, en skattleysismörkin látin
halda sér!
Formaður LEB, sem jafnframt er
framkvæmdastjóri samtakanna,
upplýsir að samtökin hafi samþykkt
þær breytingar á almannatrygg-
ingalöggjöfinni, sem eru núna til
umfjöllunar, þrátt fyrir að fjölmenn-
asta félag samtakanna, FEB í Rvík,
hefði hafnað tillögunum og boðað til
útifundar við Austurvöll, þar sem
fjölmenni mætti og hafnaði þeirri
smánarlagfæringu sem boðuð er.
Þess var krafist að staðið væri við
kosningaloforð stjórnarflokkanna.
Hverjar eru bætur
frumvarpsins?
Þeir sem njóta aðeins líftrygg-
ingar frá Tryggingastofnun, sem er
um 170 til 220 þús. á mánuði, hækka
ekki um krónu – jafnvel lækka.
Hækkunin verður að hámarki 30
þúsund á mánuði fyrir þá sem njóta
lífeyrisgreiðslna, stiglækkandi frá
220 þúsund að 500 þúsund á mán-
uði, en jafnframt er grunnlífeyrir
aflagður, sem sparar þá útgjöld rík-
issjóðs! 110 þúsund króna frí-
tekjumark, lækkað í 35 þúsund á
mánuði fyrir þá sem hafa unnið sér
til lífsbjargar fyrir þá upphæð og
greitt skatt af!
Formaður LEB vitnar til Öldr-
unarráðs, sem fagnar breytingum á
frumvarpinu, og til samstarfs-
nefndar félagsmálaráðherra um
málefni aldraðra, sem hann á sjálfur
sæti í. Samstarfsnefndin setti ný-
lega fram tillögur til ráðherra í 11
liðum sem snúa að „einföldun al-
mannatryggingakerfisins, heilsuefl-
ingu og aukinni virkni aldraðra,
rétti aldraðra til sjálfstæðrar búsetu
og sjálfræðis“ o.s.frv. Það er auðvelt
að sitja í nefnd ráðherra og skrifa
fallegar setningar, þegar engir fjár-
munir eru lagðir fram til fram-
kvæmda, en allt hækkar sem á að
greiða fyrir, til að auka fátækt og
smán þeirra sem minnst hafa.
Þetta ráð, samstarfsnefndin með
formanni og framkvæmdastjóra
LEB, hefur engu áorkað gagnvart
þeim hrikalega órétti sem um 20
þúsund öryrkjar og 10 til 15 þúsund
eldri borgarar eru beittir – að ætla
þeim að lifa af sem einstaklingar
með um 200 þús. á mánuði, þegar
opinberar stofnanir segja að til lág-
marksframfærslu einstaklings þurfi
300-350 þúsund krónur á mánuði.
Um 40 þúsund eldri borgarar
gera þá réttmætu kröfu að lífeyr-
issjóðsgreiðslur sem einstaklingar
hafa áunnið sér með greiðslum af
eigin launum séu ekki skertar af
ríkinu til Tryggingastofnunar með
ólögum, sem fyrir löngu hefði átt að
mæta með lögsókn til að sækja lög-
varða eign einstaklinga í lífeyr-
issjóðum.
Formanni LEB hefði verið meiri
sómi að því að beita sér fyrir þeirri
lögsókn, fremur en að mæla með
samþykkt á uppfærðu lífeyriskerfi.
Uppgjöf formanns LEB
Eftir Halldór
Gunnarsson
Halldór Gunnarsson
»Um 40 þúsund eldri
borgarar gera þá
réttmætu kröfu að líf-
eyrissjóðsgreiðslur séu
ekki skertar af ríkinu til
Tryggingastofnunar
með ólögum.
Höfundur er fyrrverandi sóknar-
prestur í Holti og formaður kjararáðs
EB í Rangárvallasýslu.
Ámorgun 16. september gefur Íslandspóstur út þrjár
frímerkjaraðir og eina smáörk. Efni frímerkjanna er
tileinkað RÚV sjónvarpi 50 ára, lífríki hafsbotnsins við
landið og villtum gróðri. Smáörkin er tileinkuð því að 80 ár
eru frá því að franska rannsóknaskipið Pourquoi-Pas? fórst
á skerinu Hnokka út af Álftanesi á Mýrum í Borgarfirði.
Fyrstadagsumslög fást á helstu pósthúsum.
Einnig er hægt að panta þau hjá
Frímerkjasölunni. Sími: 580 1050.
Netfang: stamps@stamps.is
Heimasíða: www.stamps.is
facebook.com/icelandicstamps
Safnaðu litlum listaverkum
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
Atvinnublað alla laugardaga
mbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?