Morgunblaðið - 15.09.2016, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 15.09.2016, Qupperneq 55
UMRÆÐAN 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016 Axlar-Björn glímir enn við gráa folann að norðan og reiðir tros á helvítinu þessi fallegi hestur frísar alltaf prjónar og slítur bölvandi reytir Axlarbóndi úfið skeggið forugur og þvældur svo beinast hvassar sjónir inn eftir götum að förufólki sem nálgast í kvöldhúminu. Hann var fimm ára gamall látinn í fóstur til Orms hins ríka á Knerri. Það bar þannig til að Ormur rakst á Björn og bróður hans, Magnús, þar sem þeir bræður áttu harðan leik á rekafjöru. Veitti Birni betur, þó yngri væri. Ormi hugkvæmdist þá að taka Magnús í fóstur, því hart var í ári, en foreldrarnir fátækir. Reið hann því um í Húsanesi og ræddi við foreldrana. Vildi móðirin þá heldur að Ormur tæki Björn. Fór því Björn með Ormi að Knerri. Síðan segir í Þjóðsögum Jóns Árnasonar: „Björn leggur þar vináttulag við unglingsmann, fjósamann Orms og höfðust þeir nálega við nætur og daga í fjósinu. Það var mikið hús og í 30 naut. Björn tók fljótum þroska eftir að hann kom til Orms, en dul- ur þótti hann í skapi og harðlyndur.“ Hér er rétt að staldra við. Dreng- urinn var dulur, harð- ur og fáskiptinn. Hann hefur orðið fyrir áfalli, þegar móðirin biður Orm að taka hann frekar en Magn- ús. Þessi afneitun ger- ir tilfinningalífið al- kula. Björn litli var því auðveld bráð fyrir nautamanninn sem tekur hann al- veg til sín í fjósið. Þar fékk svo drengurinn næga mjólk aukalega og honum fleygir fram líkamlega. En Björn hefur þurft að gjalda þessa góðsemi dýru verði og orðið fyrir misnotkun allan uppvöxtinn. Það kemur vel í ljós þegar segir frá hvarfi nautamannsins því þá er hann sagður lagsmaður (þ.e. rekkjunautur) Björns. Þegar Björn er orðinn fullvaxta er uppgjörið við nautamanninn óumflýjanlegt. Þá er líka komin ný persóna til sögunnar, Steinunn nokkur, vinnukona á Knerri og þjónusta Björns. Hún leggur ást á hann og Björn endurgeldur. Þarna verður barátta sem veldur Birni áhyggjum og þunglyndi . Hann brýtur til dæmis óskráð lög fóstra síns um að allir skyldu kirkju sækja og liggur í rúmi sínu um messu þarna á Knerri. En þá dreymir hann manninn sem vísar honum til axarinnar á Axlarhyrnu.Var þá ten- ingunum kastað svo upp kom morð. Nautamaður hverfur með öllu. Og viti menn! Þau Björn og Steinunn giftast og efna til búskapar í Öxl. Brátt fóru menn að líta tortrygg- isaugum þangað. Þeir sem bjuggu í stóðrenni við Öxl tóku eftir því að hrossum Björns fjölgaði ört. Kom þá upp grunur um að hann myrti ferðamenn til fjár. Það er svo mið- vikudag fyrir páska árið 1596 að systkinin tvö komu að Öxl í sudda- veðri undir kvöld og báðust hinnar örlagaríku gistingar. Björn er svo handtekinn á páskadag við kirkju á Knerri. Þau hjónin voru svo bæði dæmd til dauða á Laugarbrekku- þingi og Björn líflátinn. Höfðu þau þá játað á sig morðið á nautamann- inum og götvun líksins undir fjós- flórnum og svo öll hin morðin. Steinunni í Öxl var ekki fisjað saman. Vanfær horfir hún á lim- lestingar og líflát bónda síns. Kemst hún svo allt norður í Svart- árdal þar sem hún fæddi barnið. Hún hafði goldið ástina dýru verði. Það var ekki tilviljun að nautamaðurinn var myrtur. Þá varð heldur ekki til baka snúið með allar brýr brotnar. Og hún studdi Björn sinn til loka. Sagt var að Steinunn hefði eftir barnsburðinn verið tekin af lífi „án þess hún vikn- aði“. Heimild: Þjóðs. Jóns Árnasonar sem seg- ist vitna nær orðrétt í handrit séra Sveins Nielssonar á Staðarstað Myrkir dagar morðingjans í Öxl Eftir Helga Kristjánsson » Þau hjónin voru svo bæði dæmd til dauða á Laugarbrekkuþingi og Björn líflátinn. Höfðu þau þá játað á sig morð- ið á nautamanninum og götvun líksins undir fjósflórnum og svo öll hin morðin. Helgi Kristjánsson Höfundur býr í Ólafsvík. Við verðum að standa við loforð okkar frá París. Við getum margt gert, t.d. að end- urheimta votlendið sem bændur voru lokkaðir til að auka mikið við undanfarin ár. Ég held að sumt votlendi hafi verið eyðilagt í fljót- færni. Sorglegasta vot- lendisskemmd sem ég hef séð er framræsla Glámsflóa á Snæfellsnesi. Kannski er Glámsflói mér svo í minni vegna þess að við komu okkar að Glámsflóa blasti við sá staður sem ég hafði séð í barnaæsku sem ólýsanlega vin. Glámsflói er í landi Stakkhamars í Eyja- og Mikla- holtshreppi. Á Stakkhamri er ágætis fólk og hef ég alltaf haldið að Glámsflói hafi verið ræstur fram af fljótfærni, að minnsta kosti held ég að núverandi eigendur myndu ekki ræsa flóann aftur og væru kannski til í að veita vatni á hann aftur. Ég ætla að vísa í grein er ég hef skrifað um heimsókn okkar Svenna bróður í Glámsflóann á góðri stundu 1942. Sú grein er í Morgunblaðinu. Tjörn er stutt frá Glámsflóa en ekki er mér kunnugt um hvort Stakk- hamar hefur leyfi til að ráðstafa þess- ari tjörn þó að vinátta sé góð í hreppnum. Það er sífellt til umhugs- unar fyrir bændur og umráðamenn jarða að byrja nú strax að endur- heimta votlendi, fuglavinum og öllum heiminum til ánægju. Þetta er senni- lega fljótvirkasta að- ferð okkar til að minnka gróðurhús- áhrifin á Íslandi. Nú er þetta allt greitt, ef marka má fréttir, bændur þurfa ekki lengur að borga þetta úr eigin vasa. Væri ég jarðeigandi og yngri mundi ég vinna stöðugt að endurheimt votlend- is. Það getur enginn ímyndað sér nema sá sem prófar hve dýrð- legt er að koma að votlendi sem er þéttsetið fuglum og öðru lífríki. Sennilega verður lítið úr verki nema með miklu átaki margra aðila. Ekki hafði maður heyrt mikið af þessu síðan frú Sigrún kom frá París 2015 þangað til forsetinn setti verkið af stað með Sigrúnu og Land- græðslustjóra frá Bessastöðum. Ég skora á bændur og aðra nátt- úruverndarsinna að láta nú hendur standa fram úr ermum og hefja stanslausan áróður fyrir endurheimt votlendis. Nú er verk að vinna. Senni- lega þyrfti að koma á sérstakri skyldu til að endurheimta votlendið og ríkið borgaði, það borgar hvort sem er alltaf. Eftir Karl Jóhann Ormsson » Væri ég jarðeigandi og yngri mundi ég vinna stöðugt að endur- heimt votlendis. Höfundur er fv. deildarstjóri. Karl Jóhann Ormsson Náttúruverndarsinn- ar af stað til starfa – ekki gleyma!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.