Morgunblaðið - 15.09.2016, Síða 81
DÆGRADVÖL 81
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn
19. september
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Heimili & hönnun
fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 23. sept
Húsgögn og innréttingar, skrautmunir og fylgihlutir fyrir
heimilið, litir og lýsing ásamt mörgu öðru sem prýða má
heimilin með.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt það freisti að láta berast með
straumnum skaltu íhuga hvað er í húfi
hverju sinni. Að ná færni á sínu sviði gefur
því aukinn ljóma.
20. apríl - 20. maí
Naut Hætta er á óhöppum í dag og farðu
því varlega. Lyftu þér samt upp og fáðu þér
orkuforða til framtíðarinnar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vinsældir þínar í einkalífi og starfi
eru miklar um þessar mundir og allir vilja
hafa þig með. Láttu ekkert koma þér á
óvart þegar leitað verður eftir stuðningi
þínum við ákveðið mál.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þið hafið verið mjög upptekin og
skipulögð en nú þurfið þið á hvíld að halda.
En málið er ekki að allt sé auðvelt. Segðu
ég geri það og þá er það ákveðið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Foreldrar þínir, yfirmenn eða aðrir yf-
irboðarar geta gefið þér góð ráð varðandi
vinnuna í dag. Þó færð mikinn innblástur í
dag en hann er þó ekki nóg til þess að þú
getur lifað á honum einum saman.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þeir eru margir sem líta til þín í von
um að geta lært guðsótta og góða siði.
Ekki það að þú viljir að fólk þjóni þér, held-
ur hefurðu sýn sem þarfnast samvinnu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það getur boðið upp á alls konar mis-
skilning ef ekki er kveðið skýrt að hlut-
unum. Hægðu á og gefðu þér tíma til að
undirbúa framkvæmdina.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Dagurinn batnar þegar á líður.
Skemmtanir, ferðalög og leikur við börnin
munu setja svip sinn á líf þitt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Öðrum kann að virðast erfitt að
fylgja þér eftir og finnast þú segja eitt í dag
og annað á morgun. Einnig gæti rofað til í
útgáfumálum. Síðar kemur betri tíð með
blóm í haga.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ættir að nota daginn til að
skipuleggja þig betur. Leyfðu léttleikanum
að vera með í för og þá muntu komast létt
í gengum þetta tímabil.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér finnst þú hafa komið ár
þinni vel fyrir borð og átt því að hafa eitt-
hvað aflögu handa öðrum. Leyfðu þér að
njóta þín.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér hættir til að reyna að troða þín-
um skoðunum á aðra í dag. Hann nær
augnablikssambandi við ljós lífs síns og
áhrifin eru hreint út sagt undursamleg.
Arnþór Helgason var á fimmtu-dag á leið til Parísar og
Shanghai og skrifaði á Leir að „ég
sit hér í háloftunum með þráðlaust
net og farsíma og dáist að tækninni.
Ég ætla því að kasta einni leirkúlu
og athuga hvort hún hittir Ísland.
Ég er farinn að nálgast Frakkland.
Annað veit ég ekki.
Flýg ég nú á vængjum víðum
og vænti bráðum lendingar.
Í bláum frakka sit nú síðum
og sendi ykkur hendingar.“
Næsta dag sagði Pétur Stef-
ánsson við sjálfan sig á Leirnum:
„Nú detta einhverjir í það í kvöld“:
Ég er laus úr glaumsins gný,
geðraun og allri þykkju.
Vaxinn er ég uppúr því
að iðka slark og drykkju.
Veit ég margt er manna böl,
margir í glötun sveima.
Meðan drekka ýmsir öl
uni ég glaður heima.
Sigrún Haraldsdóttir tók undir
með honum: „Já, Pétur minn, þetta
er að verða ósköp rólegt“:
Voðalega víðri flík
vef um líkamsmassann,
bumbugreyið stóra strýk,
stari á imbakassann.
En var ekki ánaægð: „Nei, þetta
er ömurleg vísa, – geri aðra!“
Heyra vil ég sound og suð,
svitna, rjóð og hyper,
töfruð fíla taumlaust stuð
á tónleikum með Bieber.
Og það er bjart yfir Fíu á Sandi
sem endranær: „Það er nú ekki
vandinn að lifa lífinu á eftirlaun-
unum þó nokkuð langt sé að fara á
Biebertónleika.“
Að baki er allt mitt basl og puð
barlómurinn farinn.
Núna vel ég stanslaust stuð
og stefni í kvöld á barinn.
Páll Imsland heilsaði Leirliði á
leirdöprum degi. – „Hér er ein sillí
limra að innihaldi, eins og þær ger-
ast gjarnan í föðurlandi sínu.
Hann sundreið á Sörla’ yfir Jórsá
sem sameinast hvergi við Þjórsá,
en komst svo í land
þegar klárinn varð strand,
en steyptist þá beint oní bjórsá.“
Er nema von að Ingólfur Ómar
þakki fyrir sig:
Góða heilsu gafstu mér
og gáfur ærið snjallar.
Drottinn minn ég þakka þér
þessar gjafir allar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Í háloftunum og síðan
kom föstudagurinn
Í klípu
„OG EF ÞÚ GEISPAR GOLUNNI OG MISSIR
AF GJALDDAGA ÁBYRGJUMST VIÐ AÐ LÍKIÐ AF
ÞÉR MUNI FINNAST INNAN 90 VIRKRA DAGA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞESSU VAR FRESTAÐ.
HANN ER MEÐ HAUSVERK.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... ...að sjá raunverulegt
gildi hans.
HÉRNA ER ÉG, PIKKFASTUR
Í ÞESSU TRÉ...
GRETTIR!
KAKÓ!
MEÐ SYKURPÚÐA?!
VIÐ ÞURFUM AÐ
KOMAST YFIR
MÁLVERK!
EN FRÆG VERK
ERU Í STRANGRI
GÆSLU!
VERK EFTIR
FRÆGA MÁLARA
ERU GRÍÐARLEGA
VERÐMÆT!
RÉTT
ER ÞAÐ...
...EN FRÆGIR
MÁLARAR ERU
ÞAÐ EKKI!
EKKI
HÆTTA!
Víkverji á bíl og kann afskaplegavel við hann. Hann skýlir honum
frá dyntóttum veðurbrigðum sem
ganga reglulega yfir eyjuna Ísland,
hvar hann býr, og gerir honum kleift
að syngja hástöfum með góðum en
hallærislegum dægurlögum sem læð-
ast í útvarpið þegar vel liggur á.
Víkverji er að sama skapi ekki mik-
ið fyrir hjólreiðar en fagnar því þó að
aðrir hafi val um að hjóla um borgina,
kjósi þeir það. En stundum gengur
þó fram af Víkverja af hve miklu of-
forsi borgaryfirvöld setja niður hjóla-
stígana á kostnað viðhalds helstu um-
ferðaræða. Það mætti því með sanni
segja að Víkverji sé, að þessu sinni,
sérlegur vinur einkabílsins.
x x x
Víkverji var á leið til vinnu í gær-morgun, einu sinni sem oftar.
Hann æddi af stað á bílnum með út-
varpið í botni og morgungleðina
kyrfilega í farteskinu en það entist
ekki lengi. Þegar hann var kominn
steinsnar frá heimili sínu inn eftir
Sæbrautinni rekst hann á rammann
vegg annarra bifreiða sem sátu pikk-
fastar á götunni. Í ljós kom að það
voru vegaframkvæmdir hjá Sprengi-
sandi — kl. 8.30 á háannatíma.
Víkverji hugsaði með sér hvernig
þetta gæti bara verið, að einhver ein-
hvers staðar hefði ákveðið að hefja
viðhald helstu umferðaræðar borgar-
innar á virkum morgni milli átta og
níu, þegar sirka allir eru á ferðinni.
En það var fátt um svör.
x x x
Með sínu eftirtektarverða jafn-aðargeði hækkaði Víkverji bara
í útvarpinu og reyndi að hafa gaman
af þessari hálftíma seinkun. Hann
reyndi að hugga sig við það að þá
væri loksins verið að stoppa í hol-
urnar á veginum, lagfæra hyldjúpar
rásirnar svo hægt væri að keyra í
regni og annað í þá áttina.
En á sama tíma hvarflaði að honum
lítil samsæriskenning; er vinum
einkabílsins gert svo erfitt fyrir bara
til að sannfæra þá um ágæti hjólsins?
Á sama tíma þaut þekktur starfs-
maður borgarbúa og vinur hjólsins
fram úr bílnum með vindinn í hárinu
og bros á vör. víkverji@mbl.is
Víkverji
Aflið yður eigi þeirrar fæðu sem eyðist
heldur þeirrar fæðu sem varir til eilífs
lífs og Mannssonurinn mun gefa yður.
Því að faðirinn, sjálfur Guð, hefur
veitt honum vald sitt.
(Jóh. 6:27)