Morgunblaðið - 15.09.2016, Síða 83

Morgunblaðið - 15.09.2016, Síða 83
MENNING 83 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016 rænt framlag í myndinni, annars styrkir Kvikmyndasjóður ekki verkefnið.“ Hjálmtýr segir að alls staðar hafi verið sparað. „Maður gat ekki ráðið í hvert einasta skipsrúm, það voru ekki peningar til í það. Auk þess að vera meðframleiðandi var ég líka það sem kallast „location manager“ og hafði umsjón með hvað gerðist á hverjum stað. Og konan mín, Anna Kristín Kristjáns- dóttir, valdi alla íslensku leikarana en hún er sjálf áhugaleikari og þekkir því vel til á þeim vettvangi. Hún sá einnig um velferð leik- aranna og starfsliðsins, það varð alltaf að vera til nesti og heitt kaffi á tökustað, enda veður fremur óhagstætt.“ Morð til að breiða yfir glæp Sagan sem sögð er í myndinni er ákaflega sorgleg en 31 Baski var drepinn með köldu blóði. Hjálmtýr segir að hræðsla við útlendinga ásamt glæpum Ara í Ögra hafi ver- ið orsök morðanna. „Það var ákveðinn ótti í fólki og menn vissu aldrei hvað var í vændum þegar segl sást við sjóndeildarhring. Fólk flúði jafnvel til fjalla þótt það væru bara vinveittir fiskimenn,“ segir hann. Baskar tóku að venja komur sín- ar hingað til hvalveiða á þessum tíma, sem var mjög ábatasöm at- vinnugrein. „Í lok vertíðarinnar fórust skip þeirra í óveðri og þá voru komnir á land 83 skipbrots- menn. Sumir þeirra lentu hjá góðu fólk sem hjálpaði þeim og það gekk vel. En meðal Baskanna voru einn- ig nokkrir ribbaldar sem stálu frá Íslendingunum og þá urðu illindi. Ari í Ögri veitti þeim leyfi til að veiða hvali, án leyfis frá dönskum yfirvöldum. Þetta voru því fölsuð leyfisbréf. Þegar Ari safnar síðan liði og drepur Baskana er hann í raun að breiða yfir eigin glæpi. Jón lærði Guðmundsson skrifaði um þessa atburði og fékk bágt fyrir. Hann var sendur í útlegð,“ út- skýrir Hjálmtýr, en leiðarstef kvik- myndarinnar er samtímaheimild Jóns lærða. „Þetta eru einu fjölda- morðin sem Íslendingar fremja, æstur múgur myrti Baskana með hroðalegum hætti. Þeir voru ýmist skotnir eða höggnir.“ Afkomendur sættast í lokin Er þetta ekki svartur blettur á Íslandssögunni? „Jú, þetta er það,“ segir Hjálm- týr. „En í lok myndarinnar eru sættir. Í fyrra voru 400 ár síðan þetta gerðist og það var settur upp minningarsteinn á Hólmavík. Illugi menntamálaráðherra mætti ásamt Jónasi Guðmundssyni, sýslumanni Vestfjarða, og ýmsum gestum auk fulltrúa frá Baskalandi. Þar er lokasena myndarinnar kvikmynduð, þegar einn af afkomendum Bask- anna sem voru drepnir tekur í hönd afkomanda eins morðingj- ans,“ segir hann. Talið víkur að þeim fimmtíu basknesku skipbrotsmönnum sem voru ekki myrtir með löndum sín- um. „Það er ekkert vitað hvað varð um þá. Þeir voru klókir og réðust á enskt skip og stálu því til að sigla heim. En þeir virðast aldrei hafa skilað sér.“ Heiður að vera á San Sebastian Hjálmtýr segir vinnuna hafa ver- ið ákaflega skemmtilega og verk- efnin fjölbreytt sem vinna þurfti. „Ég hafði gaman af því að vinna þessa tegund af verki,“ segir hann og á við að hafa leikið efni með í bland við viðtöl. „Leitin að töku- stöðum spannaði allt landið. Í byrj- un voru Spánverjarnir spenntir fyrir húsum sem eru í víkingastíl. Ég byrjaði á að koma þeim af þeirri braut þar sem þessir atburð- ir gerðust á allt öðrum tíma,“ segir hann en vel tókst til að lokum. Hjálmtýr segir það mikinn heiður að komast með myndina á stórar kvikmyndahátíðir eins og San Seb- astian-hátíðina. „Það er áfangi og hún keppir þar til verðlauna,“ segir Hjálmtýr sem hlakkar til að fara á hátíðina ásamt konu sinni, Önnu Kristínu. Útlendingahræðsla Ármann Guðmundsson er í hlutverki Ara í Ögri sem safnar liði og drepur Baskana er til að breiða yfir eigin glæpi. Útlegð Jón lærði Guðmundsson skrifaði um þessa atburði og fékk bágt fyrir og var sendur í útlegð en hann er leikinn af Sigurði H. Pálssyni. Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Það var ákveðin meðferð fólgin í þessu – að endurgera sýninguna ná- kvæmlega eins og hún var áður en ég missti allt í brunanum,“ segir Halldór Ragnarsson myndlistar- maður, sem opnar sýninguna End- urgerðir laugardaginn 17. sept- ember næstkomandi kl. 17 í Listamenn Gallerí að Skúlagötu 32. „Ég vann að sýningunni í eitt til tvö ár en hún var tilbúin og hefði verið sýnd í maí síðastliðnum. Það tók mig svo sex mánuði að end- urgera hana,“ segir Halldór en eldur kviknaði í vinnustofu hans við Grett- isgötu fyrr á árinu sem varð til þess að allar hans eigur og fyrri listaverk brunnu til kaldra kola. „Ég hef unn- ið að endurgerðinni myrkranna á milli en þegar maður ákveður að gera eitthvað svona þá vill maður klára það sem fyrst – sýningin er því í raun ákveðin uppskeruhátíð,“ bæt- ir hann við en að þessari sýningu lokinni geti hann loksins sagt end- anlega skilið við brunann. „Kjarni sýningarinnar er endur- tekningar en ég nota tungumálið og kem hugmyndum mínum í ákveðinn farveg. Ég nota margræðni tungu- málsins til að skoða nærumhverfi mitt og mína persónulegu sýn á hversdagsleikann,“ segir hann en textarnir í myndunum séu mjög al- mennir. Hann snúi hins vegar upp á þá með þeim hætti að tungumálið endi á að fjalla um sig sjálft. „Mig langar ekki að gefa of mikið upp um þetta heldur vil ég frekar að fólk komi og sjái – þá nær það betur sam- henginu sem ég er að setja fram.“ Andstæðurnar fara saman Í einu verka Halldórs notast hann við tvíræðni tungumálsins á per- sónulegan máta þar sem andstæður eins og vonir og vonbrigði fara sam- an. „Pælingin er að ég skrifa sömu setninguna aftur og aftur, til dæmis „það er alveg að fara að koma pása“ en í henni er fólgin vonin um að það sé að koma pása en hún kemur aldr- ei – verkið snýst um að skrifa þang- að til verkið eða blaðið er búið,“ seg- ir hann en þannig leiki hann sér með kaldhæðnina, vonina, vonbrigðin og lygina líka. Verkin eru fjölbreytt að formi til en Halldór sýnir málverk, stórar teikningar, stimplaðar myndir með handstimpli og „print“. „Mig langaði að fá tíma í verkin; að það sjáist að það tók tíma að gera þau,“ segir hann en það sé ákveðinn taktur í verkunum þar sem hann handskrifar setningar. Hann ákvað að nota einnig handstimpilinn því hann passi vel við taktinn en hann stimplar eitt orð í einu. „Ég er því ekki að tala um tímamótaverk, held- ur tímaverk,“ segir hann léttur í bragði. Meira fólgið í tungumálinu Aðspurður hver hafi verið kveikj- an að sýningunni segir Halldór að hann hafi byrjað að vinna með tungumálið strax í BA-námi sínu. „Ég tók eitt og hálft ár í náminu í að teikna öll orð sem byrja á A í orða- bókinni,“ bætir hann við en það hafi endað í 3.400 teikningum. „Þá fór ég að velta fyrir mér merkingu orðanna og hvað þau geta haft margar mein- ingar og breytur í sér. Tungumálið er meira en við höldum fyrst í stað.“ Halldór lauk BA-prófi árið 2007 og meistaragráðu árið 2014 frá myndlistardeild Listaháskóla Ís- lands eftir að hafa áður numið heim- speki. Þetta er áttunda einkasýning hans en hann hefur tekið þátt í sam- sýningum bæði hér og erlendis. Framundan er svo önnur sýning í desember. „Þá get ég loksins farið að hugsa um eitthvað annað.“ Endurgerði listaverk eftir eldsvoða Morgunblaðið/RAX Endurgerðir Halldór endurgerði öll verkin á sýningu sinni eftir mikinn eldsvoða á vinnustofu hans á Grettisgötu.  Halldór Ragn- arsson opnar sýn- ingu í Listamenn Gallerí á laugardag Bandaríska tónlistarkonan Sharon Robinson heldur tónleika á Rosen- berg í kvöld, fimmtudag. Þetta eru síðustu tónleikarnir á hennar fyrsta Evróputúr. Robinson hefur lengi starfað með kanadíska söngvaskáldinu Leonard Cohen, bæði sem meðhöf- undur og flytjandi. Hún hefur unnið til Grammy-verðlauna og samið fyrir og starfað með heims- þekktum listamönnum á borð við The Pointer Sisters, Aaron Ne- ville, Brenda Russell, Diana Ross, Don Henley, Michael Bolton, Randy Crawford, Patti LaBelle, Roberta Flack og The Tempta- tions. Sharon Robinson syngur á Rosenberg Ljósmynd/Jilian Edelstein Félagar Sharon Robinson og Leonard Cohen störfuðu saman um árabil. MAMMA MIA – „Stórkostlegt“ HA Kastljós. AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl. MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Fös 16/9 kl. 20:00 86. sýn Fim 6/10 kl. 20:00 95. sýn Fös 21/10 kl. 20:00 104. s. Lau 17/9 kl. 20:00 87. sýn Fös 7/10 kl. 20:00 96. sýn Lau 22/10 kl. 20:00 105. s. Sun 18/9 kl. 20:00 88. sýn Lau 8/10 kl. 20:00 97. sýn Sun 23/10 kl. 20:00 106. s. Fös 23/9 kl. 20:00 89. sýn Sun 9/10 kl. 20:00 98. sýn Fim 27/10 kl. 20:00 107. s. Lau 24/9 kl. 20:00 90. sýn Fim 13/10 kl. 20:00 99. s. Fös 28/10 kl. 20:00 108. s. Sun 25/9 kl. 20:00 91. sýn Fös 14/10 kl. 20:00 100. s. Lau 29/10 kl. 20:00 109. s. Fös 30/9 kl. 20:00 92. sýn Lau 15/10 kl. 20:00 101. s. Sun 30/10 kl. 20:00 Lau 1/10 kl. 20:00 93. sýn Sun 16/10 kl. 20:00 102. s. Fim 3/11 kl. 20:00 Sun 2/10 kl. 20:00 94. sýn Fim 20/10 kl. 20:00 103. s. Fös 4/11 kl. 20:00 Gleðisprengjan heldur áfram! Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Lau 24/9 kl. 13:00 Frums. Lau 1/10 kl. 13:00 3. sýn Lau 8/10 kl. 13:00 5. sýn Sun 25/9 kl. 13:00 2. sýn Sun 2/10 kl. 13:00 4. sýn Sun 9/10 kl. 13:00 Verðlaunasaga Andra Snæs Magnasonar Sending (Nýja sviðið) Fim 15/9 kl. 20:00 2. sýn Lau 17/9 kl. 20:00 4. sýn Lau 24/9 kl. 20:00 7. sýn Fös 16/9 kl. 20:00 3. sýn Mið 21/9 kl. 20:00 5. sýn Sun 25/9 kl. 20:00 8. sýn Nýtt verk eftir Bjarna Jónsson Njála (Stóra sviðið) Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00 Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 19/10 kl. 20:00 Hannes og Smári (Litla sviðið) Fös 7/10 kl. 20:00 Frums. Fös 14/10 kl. 20:00 3. sýn Sun 16/10 kl. 20:00 5. sýn Lau 8/10 kl. 20:00 2. sýn Lau 15/10 kl. 20:00 4. sýn Lau 22/10 kl. 20:00 6. sýn Samstarfsverkefni við Leikfélag Akureyrar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.