Morgunblaðið - 15.09.2016, Page 84
84 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu
fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð.
Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga
og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana.
Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
og byrjaðu launaða líkamsrækt
strax á morgun.
www.mbl.is/laushverfi
Vantar þig aukapening?
Listasafn Reykjavíkur vinnur nú að
sýningu á verkum Yoko Ono sem
verður opnuð í Hafnarhúsinu 7.
október. „Mörg verka listakon-
unnar verða til með þátttöku sýn-
ingargesta, bæði fyrir sýninguna
og eins á meðan á henni stendur.
Eitt verkanna, „Upprisa“, saman-
stendur af sögum kvenna sem orðið
hafa fyrir hverskyns ofbeldi sem
rekja má til þess að þær eru
konur,“ segir í tilkynningu.
Fyrir hönd listakonunnar biðja
skipuleggjendur sýningarinnar
konur að skrifa sögu sína og senda
til safnsins ásamt ljósmynd af aug-
um sínum, en hægt er að senda þær
í pósti merktar: Upprisa, Listasafn
Reykjavíkur, Hafnarhúsi, Tryggva-
götu 17, 101 Reykjavík, eða með
tölvupósti á: arising@reykjavik.is.
„„Upprisa“ er marglaga verk
sem lætur lítið yfir sér í uppbygg-
ingu og frásögn. Það reiðir sig á
framlag þátttakenda til að mynda
kraftmikinn samhljóm frásagna
sem í senn tjá sögu einstaklingsins
og margradda sögu samfélagsins.
Verkið ber með sér áleitna pólitíska
og samfélagslega skírskotun og
minnir okkur á að samfélög okkar
stjórnast enn af „frumskógarlög-
málinu“ og í þeim er gríðarlega
þjáningu að finna. Verkið er hvatn-
ing til jafnréttis, friðar og hóp-
aðgerða, og til þess að efla meðvit-
und um eigin tilvist og tengsl við
aðra. Upprisa verður þannig nokk-
urs konar áminning og boð um að
taka ábyrga, siðferðilega og gagn-
rýna afstöðu. Konur um allan heim
hafa áður tekið þátt í þessu verki
og það er von okkar nú að konur
sem hafa slíkar sögur að segja séu
tilbúnar að deila þeim með okkur
og taka þannig þátt í að skapa verk-
ið „Upprisu“.“
Morgunblaðið/Golli
Sýn Sýning á verkum Yoko Ono verður
opnuð í Hafnarhúsinu í október.
Yoko Ono vill heyra
sögur kvenna
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Sýningin T E X T I verður opnuð í
Listasafni Íslands í kvöld kl. 20, en á
henni eru sýnd textaverk um þrjátíu
íslenskra og alþjóðlegra myndlistar-
manna. Verkin á sýningunni eru val-
in úr um þúsund verka safneign Pét-
urs Arasonar og Rögnu Róberts-
dóttur. „Sýningin er í stærsta
salnum í safninu. Þetta eru um fimm-
tíu verk eftir um þrjátíu listamenn
sem við sýnum,“ segir Birta Guð-
jónsdóttir sýningarstjóri, en verkin
voru valin úr um 200 textaverkum í
safninu. „Langstærsti hluti verk-
anna er eftir erlenda listamenn, sjö
íslenskir listamenn eiga verk á sýn-
ingunni. Í gegnum samstarf mitt við
Pétur og Rögnu síðastliðinn áratug
þekki ég safneign þeirra nokkuð vel
og vissi að okkur gæfist með sýning-
unni tækifæri til að sýna ekki aðeins
áhugaverð verk heldur líka að gefa
góða innsýn inn í notkun texta sem
kima í samtímalistinni,“ segir hún.
„Verkin á sýningunni spanna
tímabilið frá byrjun sjöunda áratug-
arins fram til dagsins í dag, sem er
um leið tímabilið sem safneignin
spannar,“ útskýrir hún.
„Meirihluti verkanna er eftir vel
þekkta listamenn en valið helgast
mest af því að geta sýnt þessa breidd
í notkun samtímalistamanna á texta í
myndlist. Það fer allt frá því að nota
tölur þar sem listamenn eru að fást
við tímann og tímamælingar yfir í
ljóðatexta sem í senn er settur upp
myndrænt, yfir í að vera verk sem
eru unnin sem rýmisbundin texta-
verk.“
Æðstipáfi konseptlistamanna
Einhver þekktasti listamaðurinn
sem á verk á sýningunni er Banda-
ríkjamaðurinn Lawrence Weiner.
„Við settum fyrir skömmu upp
verk eftir hann utan á safnbygg-
inguna. Það er verk sem er frekar
dæmigert fyrir þennan listamann.
Það má segja að hann sé æðstipáfi
konseptlistamanna, en hann hóf feril
snemma sinn á sjöunda áratugnum
og er starfandi enn í dag. Hann hefur
sýnt í mörgum helstu söfnum heims
og á Feneyjatvíæringnum,“ segir
hún, en verkið verður utan á safninu
í að minnsta kosti þá fjóra mánuði
sem sýningin stendur yfir. „Það er
útfært sérstaklega fyrir þetta rými
sem framhliðin er,“ segir hún.
Fleiri verk eftir Weiner eru á sýn-
ingunni og ítrekar Birta að hann sé
einn allra mikilvægasti og áhrifa-
mesti listamaðurinn í heiminum í dag
sem vinni með texta.
Birta hefur áður verið sýningar-
stjóri á tveimur öðrum sýningum á
verkum úr safneign Péturs og
Rögnu í opinberum söfnum í Reykja-
vík. Sú fyrsta var á Kjarvalsstöðum
2010 og önnur var árið 2012 í Hafn-
arhúsinu. Mynda þessar þrjár sýn-
ingar því einhvers konar þríleik.
Fjöldi listamanna er með verk á
sýningunni nú og má þar nefna Birgi
Andrésson, Sigurð Guðmundsson,
Roni Horn og Yoko Ono.
Darboven enduruppgötvuð
Birta bendir þó aðspurð á nokkra
listamenn til viðbótar við Weiner
sem eigi stór og áberandi verk á sýn-
ingunni, sem hún vill sérstaklega
vekja athygli á. Má þar fyrst nefna
Hanne Darboven, en á sýningunni er
365 ramma myndröð eftir hana.
„Þetta er listakona sem lést fyrir
nokkrum árum. Hún er einn af
þekktustu samtímalistamönnum
Þjóðverja. Hún hefur verið endur-
uppgötvuð að einhverju leyti. Á síð-
ustu tíu árum hafa verið stórar sýn-
ingar á verkum hennar í
mikilvægum listasöfnum í Evrópu.
Það er ánægjulegt að geta sýnt verk
hennar hér,“ segir hún og vekur
jafnframt athygli á umfangsmikilli
seríu eftir pólsk-franska listamann-
inn Roman Opalka, sem lést fyrir
tveimur árum. „Hann er einn af
þessum þekktari listamönnum frá
Austur-Evrópu, átti stóran feril utan
heimalandsins og hafði mjög mikil
áhrif í númeralist,“ segir Birta, sem
að lokum vill minnast á einn íslensk-
an listamann.
Tungumálið sem fyrirbæri
„Við erum með á sýningunni verk
eftir Bjarna H. Þórarinsson, sem
margir þekkja en hefur ekki mikið
verið sýndur í stærri listasöfnum á
Íslandi. Það er því mikilvægt að
kynna verk hans hér í þjóðarlista-
safninu því þetta er listamaður sem
vinnur á afar merkilegan hátt með
hið myndræna og hrynjandi í tungu-
máli, bæði íslensku og öðrum tungu-
málum, og með tungumálið sem
menningarfyrirbæri.“
Morgunblaðið/Ófeigur
Texti á vegg Textaverk eftir Lawrence Weiner. Myndin er tekin við uppsetningu sýningarinnar í Listasafni Íslands.
Myndröð Sýningin er í stærsta sal safnsins. Verkið beint fyrir aftan Birtu
Guðjónsdóttur sýningarstjóra er eftir þýsku listakonuna Hanne Darboven.
Texti sem kimi af samtímalistinni
Sýningin T E X T I opnuð í Listasafni Íslands í kvöld kl. 20 Verkin á sýningunni spanna tímabilið
frá byrjun sjöunda áratugarins fram til dagsins í dag Sýnd eru fimmtíu verk eftir þrjátíu listamenn