Morgunblaðið - 15.09.2016, Qupperneq 89

Morgunblaðið - 15.09.2016, Qupperneq 89
MENNING 89 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016 Kínverska popp- og þjóðlaga- söngkonan Renqin Zhuoma frá Tíbet heldur óvænta tón- leika á Hilton Reykjavík Nor- dica, Vox club, á morgun, föstudag, kl. 20:30. „Tónlistin er blanda af þjóðlegum tónum í angurværum poppútsetningum,“ segir í tilkynn- ingu. Þar kemur fram að Zhuoma sé vel þekkt í suðurhluta Kína „fyr- ir góðar lagasmíðar sem þykja brúa bil milli ólíkra menningarheima As- íu og Vesturlanda“. Með henni leik- ur hópur hljóðfæraleikara sem nefna sig KisaKisa. Kínversk tónlist á Hil- ton Reykjavík Nordica Renqin Zhuoma Konan mín er hjátrúarfull,hún heldur að textarnirmínir spái stundumfram í tímann, segir tónlistarmaðurinn Nick Cave í upphafi heimildarmyndarinnar One More Time With Feeling sem var sýnd í Bíó Paradís í síðustu viku. Myndin sem var sýnd kvöldið áður en ný plata með Nick Cave & The Bad Seeds, Skeleton Tree, kom út byrjaði sem heimild um sköp- unarferli plötunnar. Hún endaði hinsvegar sem heimild um hvernig Cave og eiginkona hans glíma við gífurlegt áfall og sorg. „You fell from the sky, crash landed in a field, near the river Adur,“ syngur Cave í fyrsta laginu sem hann syngur í kvikmyndinni, og jafn- framt fyrsta laginu á Skeleton Tree. Lagið var skrifað áður en áfallið dundi yfir. Í júlí 2015 féll fimmtán ára sonur Caves, Arthur, til bana af klettum í Brighton eftir að hafa tekið ofskynjunarefnið LSD. Í viðtali við ástralska vefritið Film Inc útskýrir leikstjórinn And- rew Dominik, sem er vinur fjöl- skyldunnar, að Cave hafi ætlað að kynna nýju plötuna. Hann hefði ekki haft orku né getu til að fara í viðtöl og svara mögulega áleitnum spurningum blaðamanna. Og Cave var þakklátur þeim fjölda manna sem skrifuðu honum bréf. Fólki sem hafði upplifað barnsmissi og áföll og sendi honum kveðjur. Kvikmyndin, sem var tekin upp án nokkurs handrits eða skipulags, er hrá og gríðarlega áhrifamikil. Hún blandar saman skotum af Cave að taka upp og flytja lög af Skeleton Tree og skotum af Cave og eigin- konu hans, Susie Bick, Warren Ellis, hljómsveitinni og fleirum og skapar einhverskonar mósaík af áhrifum áfalls og sorgar. „Trauma“ eða áfall er orð sem Cave notar ítrekað í gegnum myndina. Hann lýsir bæði í sam- tölum og í textum líkamlegum og andlegum áhrifum áfalls. Hann horfir á sjálfan sig í spegli, sér bauga undir augunum sem hann kannast ekki við. Hann kastar upp í vaskinn. Hann lýsir ferðum út í matvörubúð þegar allir horfa á hann meðaumkunaraugum. Kona hans, fyrirsætan og fatahönnuður- inn Susie Bick, birtist fyrst feimin við myndavélina, þetta er óþægi- legt. Cave gantast við hana og leikstjórann um hvað þetta sé til- gerðarlegt, að skjóta mynd í svart- hvítu og í þrívídd. Syni hans, Earl, bregður líka fyrir. „Sjáðu, hárið á mér er orðið dökkt,“ segir hann við pabba sinn, glaðbeittur. Hann er fimmtán ára tvíburabróðirinn sem eftir lifir. Cave talar um að rödd sín sé orðin veikburða. Og hún er það, hún brestur í laginu „Girl in Am- ber“ og gerir flutninginn enn meira tilfinningaþrunginn. Það er sennilega ekki þurrt auga í Bíó Paradís á þessum örfáu mínútum í flutningi hans á lagi sem fjallar um missi, sorg og dauða. Í myndinni segir Cave að áfallið hafi truflað sköpunarferlið. „Við vonumst alltaf eftir einhverju dramatísku í lífi okkar sem við getum skrifað um, en þetta áfall hafði mjög eyðileggj- andi áhrif á sköpunarferlið.“ Kvikmyndin er vissulega erfið áhorfs, hún er einstaklega hrá, op- inská, tilfinningaþrungin, en hún verður aldrei væmin. Leikstjórinn er meðvitaður um þetta og segir einmitt í viðtali að þetta hafi verið línudans, „Hvenær er þetta rétt- mætt portrett af manneskju að ganga í gegnum eitthvað og hve- nær verður þetta sorgarklám? Er myndin einhvernveginn að gera harmleikinn minni?“ Undir lok myndarinnar sitja hjónin hlið við hlið og Bick dregur upp innrammaða teikningu eftir son sinn sem hann teiknaði þegar hann var lítill. Myndina fann hún eftir dauða hans. Hún er af klett- unum þar sem hann féll til bana og hún er römmuð inn í svartan ramma. Móðirin skilur ekki af hverju þessi barnslega teikning var römmuð inn með svörtu fyrir öllum þessum árum síðan. Og þannig rammar leikstjórinn inn kvikmyndina, hún hefst og hún endar á óljósri hugmynd um hjátrú og forspá, að þessi hræði- legi atburður hafi mögulega verið ákveðinn fyrirfram. Tíminn er teygjanlegur, segir Cave. „Við get- um alltaf togað okkur í burtu frá atburðinum en á ákveðnum tíma kippir teygjan okkur tilbaka og við endum aftur á sama stað.“ Tilfinningaþrungin „Kvikmyndin er vissulega erfið áhorfs, hún er einstaklega hrá, opinská, tilfinningaþrungin, en hún verður aldrei væmin. Leikstjórinn er meðvitaður um þetta og segir einmitt í viðtali að þetta hafi verið línudans,“ segir í rýni um heimildarmyndina One More Time With Feeling. Bíó Paradís One More Time With Feeling bbbbb Leikstjóri: Andrew Dominik. Í myndinni koma fram Nick Cave, Warren Ellis, Nick Cave & The Bad Seeds, Susie Bick og fleiri. Bandaríkin 2016, 112 mínútur. ANNA MARGRÉT BJÖRNSSON KVIKMYNDIR Heimild um sonarmissi sem nístir hjartað Við trúum því að fegurðin sé lifandi, sköpuð úr tilfinningum og fulll af lífi. Alveg eins og náttúran sjálf. Til að viðhalda æskuljóma húðar þinnar höfum við tínt saman immortelle, blómið frá Korsíku sem aldrei fölnar. Divine Cream fegrar svipbrigði þín og hjálpar við að lagfæra helstu ummerki öldrunar. Húðin virðist sléttari, *Ánægja prófuð hjá 95 konum í 6 mánuði. Húðin virðist unglegri Mimi Thorisson er franskur matarbloggari. Divine Cream með Immortelle blómum HÚÐUMHIRÐA SKÖPUÐ FYRIR LIFANDI FEGURÐ Kringlan 4-12 | s. 577-7040 L’Occitane en Provence - Ísland EIÐURINN 5:40, 8, 10:25 KUBO 2D ÍSL.TAL 5:50 WAR DOGS 8 HELL OR HIGH WATER 8 LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ÍSL.TAL 5:50 JASON BOURNE 10:10 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.