Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2015, Síða 14
14 Fréttir Helgarblað 20.–23. febrúar 2015
Munu aldrei sitja
af sér dóminn
n Fyrningum dóma fjölgar umtalsvert milli ára n 32 dómar fyrndust á síðasta ári n Biðlistar lengjast
Þ
eim fer sífellt fjölgandi
sem þurfa aldrei að sitja af
sér þá dóma sem þeir hafa
hlotið. Ástæðan er pláss-
leysi í fangelsum landsins.
Alls fyrndust 32 afplánunardómar
á Íslandi árið 2014, samanborið við
tuttugu árið 2013 og níu árið 2012. Á
sama tíma fækkar fangarýmum hér
á landi en eins og fram hefur komið
í fréttum verður Kvennafangelsinu í
Kópavogi lokað í maí vegna niður-
skurðar. Af þeirri ástæðu verða
engar konur boðaðar til afplánunar
fyrr en Hólmsheiðarfangelsi verð-
ur opnað í apríl á næsta ári. Þess
má geta að á árunum 2000 til 2008
fyrndust engir afplánunardómar á
Íslandi.
Vöruðu við þróuninni
„Ég hef varað við þessari þróun frá
árinu 2008, en þróunin hefur verið
nákvæmlega á þá leið sem við spáð-
um fyrir um hér í Fangelsismála-
stofnun,“ segir Páll Winkel, forstjóri
Fangelsismálastofnunar, í samtali
við DV. Þá varaði Ríkisendurskoðun
sömuleiðis við þróuninni í skýrslu
um fangelsismál árið 2010. Stofn-
unin sagði fyrningar dóma áhyggju-
efni enda hafi dómar lítinn tilgang
ef þeir eru ekki fullnustaðir. „Slíkt
ógnar réttaröryggi almennings og
dregur úr tilætluðum varnaðar-
áhrifum fangelsisrefsinga, auk þess
sem hætta er á að almenningur telji
á sér brotið, dragi í efa að grunn-
reglur réttarríkisins gildi hér á landi
og upplifi vantraust á stofnunum
samfélagsins,“ segir í skýrslu Ríkis-
endurskoðunar. Stofnunin ítrekaði
áhyggjur sínar í eftirfylgniskýrslu
árið 2013.
Páll segir að yfirvöld hafi brugð-
ist við þessu vandamáli, meðal
annars með því að hefja byggingu
nýs fangelsis á Hólmsheiði. „Það
vantar fleiri og betri rými. Það er að
segja rými sem uppfylla lágmarks
mannréttindi allra fanga. Á Hólms-
heiði bætast við þrjátíu pláss og
jafnframt losnar ein álma á Litla-
Hrauni sem hingað til hefur verið
notuð fyrir gæsluvarðhald.“ Páll
bendir á að einnig hafi verið gripið
til bráðabirgðalausna á borð við að
opna fangelsi að Sogni, þar sem nú
eru 22 fangar.
Flestar fyrningar vegna
umferðarlagabrota
DV óskaði eftir nánari upplýsingum
um þá 32 afplánunardóma sem
fyrndust í fyrra. Langflestir þeirra
eru vegna umferðarlagabrota, eða
61 prósent. Þá voru 13 prósent
dómanna fyrir brot gegn lögum um
ávana- og fíkniefni, tíu prósent fyr-
ir þjófnað, sjö prósent fyrir minni-
háttar líkamsárásir og tvö prósent
fyrir alvarlegri líkamsárásir. Restin
er svo fyrir nytjastuld, hylmingu,
brot gegn valdstjórninni og fleira.
Þess má geta að um 80% dómanna
eru þriggja mánaða fangelsi eða
lægri refsing, þar af er 21 refsing
einn mánuður eða minna í fangelsi.
„Skipting brota er mjög svipuð
hin árin og það eru sem betur fer
styttri refsingar sem eru að fyrnast
þó að það geti verið undantekning
þar á. Þá getur ástæðan verið sú að
menn hafa farið af landi brott og
eru kannski í fjarlægum löndum og
finnast ekki, eða refsingin er undir
fjórum mánuðum og þá er að jafn-
aði ekki farið fram á framsal,“ segir
Hafdís Guðmundsdóttir, skrifstofu-
stjóri Fangelsismálastofnunar, í
svari við fyrirspurn DV.
Biðlistar lengjast enn
Í lok árs 2014 biðu 437 manns af-
plánunar með alls 628 dóma á bak-
inu. Þetta er töluverð fjölgun frá
fyrri árum. Í lok árs 2013 biðu 388
manns afplánunar, 366 í lok árs
2012 og 320 í lok árs 2011. Páll bend-
ir á að Alþingi hafi þegar brugðist
við fjölgun á biðlista meðal annars
með því að taka upp rafrænt eftirlit
og með aukinni samfélagsþjónustu.
„Hvort tveggja er eðlileg framþró-
un á fullnustukerfinu. Það er eðli-
legt að leita fleiri leiða við fullnustu
refsidóma en einvörðungu að loka
menn inni í fangelsi, sem engum
er gott til lengri tíma,“ segir Páll. Þá
segir hann einnig koma til greina
að huga að breytingum á reynslu-
lausnarreglum. „Það hefur verið
gert á Norðurlöndunum, í Noregi
meðal annars. En þá þarf að koma
til lagabreyting og það er pólitísk
ákvörðun.“
Krefjandi og kostnaðarsamt
Eins og áður segir verður Kvenna-
fangelsinu í Kópavogi lokað í maí
næstkomandi. Lokunin kemur í
kjölfar tveggja prósenta auka niður-
skurðarkröfu sem sett var á Fang-
elsismálastofnun í fjárlögum þessa
árs. „Einhvern veginn urðum við
að leysa þetta, því það er jú talað
um það sem fyrstu skyldu forstöðu-
manns hjá ríkinu að vera innan
fjárveitinga. Raunveruleikinn er
oft fremur kaldur. Auðvitað hefði
ég ekki viljað loka Kvennafangels-
inu fyrr en Hólmsheiðin er tilbúin,“
segir Páll. Hann segir mögulegt að
leysa vandamálið varðandi fyrn-
ingar dóma og langa biðlista, en
það sé bæði krefjandi og kostnað-
arsamt. „Komi til áframhaldandi
niðurskurðar í fullnustukerfinu þá
verður það mjög erfitt,“ segir Páll
Winkel að lokum. n
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
„Auðvitað hefði
ég ekki viljað loka
Kvennafangelsinu fyrr en
Hólmsheiðin er tilbúin.
Spárnar rættust Páll Winkel, forstjóri
Fangelsismálastofnunar, segist hafa varað
við þessari þróun frá árinu 2008.
Ekkert pláss Alls fyrnd-
ust 32 afplánunardómar
í fyrra vegna plássleysis í
fangelsum landsins.
Mynd GuðMundur ViGFúSSon
31 dómur
2.621 dagur
500
2008Dagar Ár2009 2010 2011 2012 2013 2014
1.000
1.500
2.000
2.500
3.000
0
Fyrningar dóma
0 dómar
0 dagar
2 dómar
240 dagar
3 dómar
203 dagar
6 dómar
277 dagar
9 dómar
759 dagar
20 dómar
1.325 dagar
Fjöldi dómþola sem bíða afplánunar
142
161
213
276
320
366
388
437
500
400
300
200
100
2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014
0
ÁrFjöldi