Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2015, Page 60
Helgarblað 20.–23. febrúar 201560 Fólk
Alltaf flottur Óskarsverðlaunaleikarinn Matthew McCon-
aughey spilaði bæði golf og tennis þegar hann var í námi við Longview-fram-
haldsskólann í Texas. Matthew hélt iðkuninni áfram í háskólanum í Texas og
vann þar til verðlauna sem besti golfari í Delta Tau Delta-bræðralaginu.
Íþróttaafrek
stjarnanna
Margar frægustu stjörnurnar áttu sér drauma um frægð og frama í sportinu
Þ
að kemur ef til vill einhverj-
um á óvart að heyra að
hótelerfinginn Paris
Hilton spilaði einu
sinni íshokkí.
Samkvæmt fyrrverandi
liðsfélaga hennar úr
Canterbury-heimavist-
arskólanum í Connect-
icut var Hilton þó ekki á
meðal bestu spilaranna. n
Keppti
í sundi
Poppstjarnan Gwen
Stefani var virkur
meðlimur í sundliði
Loara-skólans í
Anaheim í Kali-
forníu. Stefani hefur
látið hafa eftir sér
að hún hafi byrjað
að æfa sund í von
um að léttast.
Ávallt svalur Hasarmyndaleikarinn Jason
Statham keppti í kappakstri á sínum yngri árum. Leikarinn keyrði til
að mynda fyrir England árið 1990 í Commonwealth-leikunum. Eftir
akstursferilinn lá leiðin í fyrirsætustörfin og þaðan í kvikmyndirnar.
Góður í öllu
Brad Pitt var einn af þeim
nemendum sem voru allt í öllu.
Leikarinn tók þátt í uppsetningum
á söngleikjum, var meðlimur í
ræðuliði skólans og í golfliðinu,
sundliðinu og tennisliðinu í
Kickapoo-skólanum í Springfield í
Missouri í Bandaríkjunum.
Hestakona Sport
Illustrated-fyrirsætan Kate Upton keppti
í hestaíþróttum á sínum yngri árum og að
sögn þeirra sem til hennar þekkja var hún
efnilegur reiðmaður.
Körfu-
boltastjarna Það
var meðal annars stjórnmála-
konunni Söruh Palin að
þakka að körfuboltaliðið
í Wasilla-skólanum
sigraði á landsmóti í
Alaska árið 1982.
Bolta-George
Leikarinn og leikstjórinn George Clooney
spilaði bæði hafnarbolta og körfubolta
með framhaldsskólaliði sínu í Augusta í
Kentucky. Árið 1977 reyndi hann að komast
inn í atvinnumannadeildina en mistókst.
Sem betur fer kannski.
Elskar tennis Grínist-
inn og sjónvarpskonan Ellen DeGeneres
spilaði og keppti í tennis þegar hún var í
Atland High School í Texas. Ellen er mikill
aðdáandi íþróttarinnar og mætir reglulega
á stærstu mótin.
Prinsinn á
vellinum Vilhjálmur
Bretaprins þótti afar góður
knattspyrnu- og vatnspóló-
leikmaður þegar hann gekk í
Eton-skólann á Englandi. Svo
hefur hann einnig spilað póló á
hestbaki eins og sönnum bresk-
um heiðursmanni sæmir.
Fyndin í tennis
SNL-leikkonan og 30 Rock-stjarnan Tina
Fey spilaði tennis fyrir lið sitt í Upper Darby-
skólanum í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum.
Kann þetta Leikarinn
Jamie Foxx spilaði bæði körfubolta og
fótbolta í Terrell í Texas á sínum yngri
árum. Sú reynsla hefur án efa hjálpað
honum að takast á við hlutverk sitt sem
„Steamin“ Willie Beamon í kvikmyndinni
Any Given Sunday.
Þjálfaði lið Leikarinn
Ashton Kutcher spilaði amerískan fótbolta
þegar hann bjó í Homestead í Iowa. Árið
2008 var hann aðstoðarþjálfari fyrir North
Hollywood's Harvard-Westlake-liðið.
Hokkí
og tennis
Harry Potter-stjarn-
an, Emma Watson,
ólst upp á hokkí- og
tennisvöllum.
Leikkonan gekk í
Brown-háskólann þar
sem hún keppti með
hokkíliðinu.
Íþróttakappi Leikarinn Jon Hamm
var stórtækur í íþróttalífinu þegar hann var í skóla en
Hamm ólst upp í Ladue í Missouri. Mad Men-stjarnan
spilaði bæði fótbolta og hafnarbolta auk þess sem hann
keppti í sundi fyrir skólann.
Númer 25
Allir vita að Britney Spears
var ein af Mouseketeers
þegar hún var yngri. Færri
vita líklega að söngkonan
þótt einnig efnilegur körfu-
boltaspilari en Britney keppti með
liði sínu í McComb-skólanum í Mississippi.
Meiðsl bundu
enda á ferilinn Leikar-
inn Forrest Whitaker komst inn í Cal Poly
Pomana-skólann á fótboltaskólastyrk. Þegar
íþróttaferilinn endaði sökum meiðsla ein-
beitti hann sér að leiklistinni en fyrsta hlut-
verkið var einmitt í Fast Times at Ridgemont
High þar sem hann lék fótboltamann.
Sk8er Söngkonan Avril Lavigne er ekkert
ólík löndum sínum þegar kemur að íshokkí. Kanadíska
stjarnan steig fyrst á skauta þegar hún var aðeins
tveggja ára og átti farsælan feril á svellinu. Sagan segir
að Avril taki með sér rúlluskauta þegar hún ferðast um
heiminn svo hún geti tekið smá æfingu á malbikinu.