Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1993, Blaðsíða 33
» FAGMÁL «
í rannsókninni frá Kanada er
einnig athugað hver voru til-
finningaleg viðbrögð hjúkrunar-
fræðings eftir hvert símtal. Það
væri áhugavert að kanna þetta
hér líka.
Það er athyglisvert að sjá að
hjúkrunarfræðingar leysa einar
úr svo stórum hluta símtala eins
og raun ber vitni. Það er mikil-
vægt að fólk sem leitar sér hjálp-
ar og upplýsinga fái það hjá
starfsfólki sem hefur menntun til
þess að meta og leysa úr vanda-
málunum og að leiðbeiningar og
ráðgjöf þurfi ekki að koma frá
móttökuritara. Til staðar þurfa
að vera hjúkrunarfræðingar með
alhliða starfsreynslu. Það er líka
mikilvægt að hjúkrunarfræð-
ingarnir hafi komið sér saman
um leiðbeiningar þannig að sam-
ræmi verði við úrlausnir og
meðferð mála. Skriflegar staðl-
aðar leiðbeiningar gefa besta
samræmið. Þetta er nokkuð sem
við erum byrjuð að gera í Hafn-
arfirði, en nauðsynlegt er að
þróa það starf áfram. Æskilegast
væri að skriflegar leiðbeiningar
væru til staðar varðandi algeng-
ustu vandamál sem leyst er úr á
skyndivaktinni.
Þakkarorð:
Ég vil færa samstarfsfólkinu
sérstakar þakkir fyrir samvinn-
una.
Einnig sérstakar þakkir til
Jóhanns Ágústs Sigurðssonar
fyrir ráðgjöf og gagnrýni.
Höfundur er hjúkrunarfrœð-
ingur á Heilsugœslustöðinni
Sólvangi, Hafnarfirði
Heimildir:
1. Sigurðsson, G., Magnússon,
G., Sigvaldason, H., Tulinius, H.,
Einarsson, /., Olafsson, Ó. Egils-
staðarannsóknin. Sjúkraskrár fyrir
heilsugœslustöðvar og tölvufœrsla
upplýsinga. Heilbrigðisskýrslur.
Fylgirit 1980 nr. 1.
2. Pétursson, P. Heilsugœsla í
Bolungarvík. Afrakstur samskipta-
skráningar 1983-1986. Land-
lceknisembættið. Heilbrigðis-
skýrslur. Fylgirit 1988 nr. 5.
3. Bjarnason, S., Friðriksson, I.,
Broddadóttir, G., Ólafsdóttir, B.,
G..Halidórsdóttir, K. Heilsu-
gœlustöðin Borgarnesi. Yfirlit yfir
starfsemina 1986-1988. Heil-
brigðisskýrslur. Fylgirit 1989 nr. 3.
4. Sigurðsson, J. A., Johnsen, S.,
Magnússon, G . Access to primary
health care in urban Iceland.
Scand. J. Prim. Health Care 1988;
6:87-91.
5. Sigurðsson, J. Á., Pálsdóttir,
K., Sigurvinsdóttir, G. Heilsu-
gœslustöðin Sólvangi Hafnarfirði.
Ársskýrsla 1990.
6. Gerace, T. M., Huffman, M. C.
Family practice nurses and the tele-
phone. Can. Fam. Physician 1990;
36:1397-9.
7. Marklund, B., Bengtsson, C.,
Bryntesson, P., Förssell, R-M.,
Kjellberg, K., Severinson, D.,
Starke, A. Telephone advisory ser-
vice, visits to district nurses and
home visits made by district nurses
at a Swedish primary health care
district. Scand. J. Prim. Health
Care 1991; 9 :161-6.
8. Skúladóttir, S. Heilsugœslu-
stöðin Sólvangi Hafnaifirði. Slysa-
og aðgerðastofa 1991. (Innanhúss-
skýrsla).
Fylgiblaö nr. 1
Heilsugæslustööin Sólvangi Hafnarflröi
Dags.
Símasamskipti:
Karl: _ Kona: _ Aldur: _ Milligöngumaður: _
Tilefni: Slys: _ Lyfjaendurnýjun: _ Veikindi: _ Annað hvaö:_
Úrlausnir:
Koma hingaö : _ Ráölögn hjúkrunarfræðings: _ Annaö hvað: Vísað til heimilislæknis: _ Vísaö til vaktlæknis í síma: _
HJÚKRUN 1 _2/93 - 69. árgangur 33