Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Side 18
Bréf til blaðsins
Tilefni hréfs þessa er grein Hildar
Sigurðardóttur, Hrafnhildar Scheving,
Irisar Rutar Hilniarsdóttur, Sveinlaug-
ar Árnadóttur og Yildísar Bergþórs-
dóttur, Þœttir á vökudeild er valda
foreldrum streitu, í Tímariti hjúkr-
unarfræðinga, 1. tbl. 71. árg. 1995.
Vil ég hyrja á að þakka þeim
áhugaverða og fræðandi grein. I um-
fjöllun um niðurstöður benda þær
stöllur á þrjá þætti sem hugsanlega
gætu reynst hjálplegir í þeim tilgangi að
minnka streitu foreldra sem eiga barn
á vökudeild.
Einn þessara þátta er að koina á
sjálfshjálpar- eða stuðningshópum á
meðal foreldra sem eiga eða hafa átt
barn á vökudeild. Bent skal á að þegar
eru til aðilar sem myndað hafa vísi að
slíkum hópi. Tvær mæður fyrirhura,
sem tilbúnar eru að veita stuðning, eru
tilgreindar í upplýsingabæklingi vöku-
deildar Landspítala til foreldra og
Umhyggja, félag til stuðnings sjúkum
börnum, er í samvinnu við stuðnings-
hóp foreldra fyrirbura, ásamt félögum
og hópum foreldra barna með önnur
heilsufarsvandamál. Innan skamms
mun Umhyggja dreifa lista yfir stuðn-
ingsforeldra til sjúkrastofnana og
heilsugæslustöðva og ætti það að
auðvelda fólki að hafa upp á foreldrum
með reynslu.
Annar úrbótaþáttur sem nefndur
er, er að boðið sé upp á sólarhringsað-
stöðu fyrir foreldra og barn einum til
tveimur dögum fyrir útskrift þannig að
foreldrar geti öðlast aukið sjálfstraust
og öryggi við umönnun barnsins fyrir
útskrift heim. Á barnadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri er starfrækt
vökustofa þar sem fyrirburum og veik-
um nýburum er sinnt. Komist barnið
ekki til móður sinnar á sængurkvenna-
deild áður en hún útskrifast dvelur
móðirin með barninu á barnadeildinni
1-2 sólarhringa fyrir útskrift barnsins
til þess einmitt að öðlast öryggi í að
sinna því allan sólarhringinn.
Með þökk fyrir birtinguna.
Helga Bragadóttir, deildarstjóri á
barnadeild FSA, lektor við Háskólann
á Akureyri og meðstjórnandi í Um-
hyggju, félagi til stuðnings sjúkum
börnum.
DOKTOR
GUÐRÚN MARTEINSDÓTTIR
Dr. Janet Hirsch afhendir doktorsgráðu Guðrúnar við athöfn í
Eirbergi 24. júní sl.
Guðrúnn Marteinsdóttur, dósent í hjúkrunarfræði, var
veitl doktorsgráða frá University of Rhode Island í
Bandaríkjunum 22. maí sl. Guðrún lést í nóvember 1994,
þá Iangt komin með doktorsritgerð sína sem félagar
hennar luku síðan við að henni látinni. Dr. Janet Hirsch,
prófessor við University of Rhode Island, afhenti fjöl-
skyldu Guðrúnar pról'skírteini hennar við athöfn sem
haldin var laugardaginn 24. júní sl. á vegum náms-
brautar í hjúkrunarfræði.
Ritgerð Guðrúnar fjallar um gildi sjálfsákvörðunar í
heilsueílingu. Guðrún lagði fram mælitæki í þeim tilgangi
að kanna hvað hvetur fólk til heilbrigðra lifnaðarhátta,
sérstaklega reglulegrar líkamsþjálfunar.
Foreldrar Guðrúnar eru Marteinu Friðriksson og
Ragnlieiður Bjarman. Ilún varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1972, lauk BS prófi í hjúkrunar-
fræði frá HÍ 1977, MS prófi í heilsugæslu frá Boston
University í Bandaríkjunum 1980. Eftirlifandi eigin-
maður hennar er Haraldur Þór Skarphéðinsson, skrúð-
garðyrkjumeistari, og áttu þau fimm börn.
ÞR
66
TÍMARIT ItjflKHUNARFRÆDINGA 2.-3. tbl. 71 árg. 1995