Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Page 28

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Page 28
Olga Hákonsen Hjúkrun áfenqissjúklinqa á brááadeild I Grein þessifjallar urn sjúklinga sem lagðir eru inn á almenn bráðasjúkrahús vegna and- legra eða líkamlegra sjúkdóma og reynast auk þess vera áfengis- og/eða vímuefnaneytend- ur. Tíðni slíkra innlagna á bráðasjúkrahús hefur aukist samfara aukinni neyslu áfengis og vímuefna án þess þó að heilbrigðisþjónustan hafi brugðist við á faglegan hátt. Þó nýjar kenningar um viðhorf til áfengissýki hafa litið dagsins Ijós ríkir enn víða kunnáttu- og skipulagsleysi varðandi þessi mál sem getur haft áhrif á bata sjúklinga. Greinin er súfyrri af tveimur um þetta efni. Hér erfjallað almennt um þessi vandamál innan bráðaþjónust- unnar, lýðfræðilega þœtti sem tengjast þeim, óöryggi og kunnáttuleysi heilbrigðisstarfsfólks og sjúklinga, nauðsynlega viðhorfsbreytingu og að lokum mögulegar leiðir til úrbóta. Að hluta til eru viðtöl við fimm deildarstjóra á bráðasjúkrahásum í Reykjavík lögð til grund- vallar. Síðari greininfjallar meðal annars um áhrif áfengis á líkamann, mat og hjúkrunargreiningar við hjúkrun áfengissjúklinga á bráðasjúkrahúsi. Olga Hákonsen er á leið til framhaldsnáms í hjúkrun fíkniefnasjúklinga í Bandaríkjunum í haust. Inngangur A síðari árum hefur neysla áfengis og annarra vímuefna aukist til muna á Vesturlöndum. Þrátt fyrir að allflestir geti neytt áfengis án þess að hljóta skaða af, er talið að 8-10% af öllum almenningi drekki áfengi eða neyti annarra vímuefna þannig að heilsu eða félagslegri velferð þeirra sé ógnað (Tóinas Helgason, 1988; Pires, 1989). Fylgifiskur mikillar áfengis- og vímuefnaneyslu er aukin tíðni slysa og sjúkdóma sem hafa sett sitt mark á heil- brigðisþjónustuna með auknu álagi og kostnaði. Sam- kvæmt bandarískum könnunum er talið að 30-60% allra einstaklinga, sem leita eftir þjónustu á bráðadeild, séu þar vegna ástæðna er tengjast neyslu á áfengi eða öðrum vímuefnum (Duphorne, 1992; Schenk, 1991; Pires, 1989). Þessir einstaklingar leita sér oft aðstoðar vegna líkamlegra eða andlegra kvilla sem tengjast neyslunni, en eru auk þess ógreindir ofneytendur á áfengi eða önnur vímuefni. Meðferð þeirra á bráðasjúkrahúsi beinist fyrst og fremst að andlegum eða hkamlegum kvörtunum, sem oft tengjast neyslunni, án þess að faglega sé tekið á hinum raunverulega vanda sem er áfengis- og vímuefnaneyslan (Barry, 1989; Tweed, 1989). A Islandi eru ekki til nákvæmar upplýsingar um um- fang þessa vanda, en samkvæmt munnlegum heimildum hjúkrunarfræðinga á bráðamóttöku Landspítalans leitar noltkuð stór hópur áfengis- og/eða vímuefnaneytenda þangað, annað hvort vegna neyslunnar sjálfrar eða af- leiðinga hennar. Tilgangur þessarar greinar er að hefja máls á og vekja hjúkrunarfræðinga til vitundar um þessi mál. Sér- staklega þar sem hjúkrunarfræðingar eru oft í lykilað- stöðu til að koma í veg fyrir að sjúklingur fái lífshættuleg fráhvörf þegar neyslu er snögglega hætt eins og við inn- lögn á sjúkrahús. Vi&horfsbreytingar Með aukinni þekkingu hin síðari ár á eðli, orsökum og afleiðingum áfengis- og/eða lyfjafíknar hafa viðhorf al- mennings til víinuefnaneytenda breyst. Stutt er síðan drykkjusjúklingar voru útskúfaðir úr samfélaginu og létust oft á unga aldri. Á undanförnum 20-30 árum hafa nýja kenningar og hugmyndir um meðferð áfengissjúkra litið dagsins ljós. Sú hugmynd, sem mestri viðurkenningu hefur náð í Bandaríkjunum og á Islandi, byggist á svo- kölluðu læknisfræðilegu líkani (medical model). í stuttu máli er þar stuðst við þrjár grunnhugmyndir: Ofneyslu er lýst sem ólæknandi sjúkdómi sem þróast eftir skilgreindu lífefnafræðilegu ferli. Til að forðast fráhvörf, sem geta verið lífshættuleg, myndar líkaminn þol sem sífellt kallar á stærri skainmta af vímuefninu. Eina leiðin út úr þessum vítahring er afeitrun hkamans og algjört bindindi (Wade og Tavris, 1990). Þótt læknisfræðilega líkanið sé umdeilt er Jiað enn Jiá viðurkennt af stórum bandarískum heil- brigðissamtökunum t.d. lækna og hjúkrunarfræðinga. Samkvæmt skilgreiningu bandarísku hjúkrunarsam- takanna er áfengissýki lýst Jiannig, að hegðun sjúklings- ins einkennist af áráttu, stjórnleysi og stöðugri ofnotkun þrátt fyrir neikvæðar afleiðingar neyslunnar (Jack, 1990). Lý&fræ&ilegir þættir Oftast er auðvelt að þekkja þá sjúklinga sem komnir eru á síðustu stig sjúkdómsins, en Jiað Jiarf skarpa athyglis- gáfu og markvisst hjúkrunarmat til að finna sjúklinga 76 TÍMARIT HJÚKIIUNARFRÆÐINGA 2.-3. thl. 71 árg. 1995

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.