Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Síða 38
21. ÞING ICN
Fyrsta heinisþing Alþjóðasambands
hjúkrunarfræðinga (ICN) eftir samein-
ingu íslenskra hjúkrunarfræðinga í eitt
félag verður haldið í Vancouver, Kanada
15. - 20. júní 1997. Yfirskrift þingsins er
„Sharing the Health Challenge“.
Á síðasta þingi, sem var haldið í
Madrid á Spáni 1993, var aðeins einn
íslenskur hjúkrunarfræðingur með
erindi. Allir hjúkrunarfræðingar sem eru
að fást við rannsóknir geta freistað þess
að komast með erindi um rannsóknir
sínar á þingið. Hér fara á eftir fyrstu
upplýsingar uin tilhögun þingsins.
Kynningar á nýjum
rannsóknum
Félagsmenn aðildarfélaga Alþjóða-
sambands hjúkrunarfræðinga geta sent
útdrætti úr nýjum rannsóknum til kynn-
ingar í fyrirlestri eða með veggspjöldum.
Gert er ráð fyrir 20 mínútum fyrir hvert
efni og verður það að tengjast eftir-
farandi efnisþáttum:
1. Stjórnun heilbrigðismála með
breyttar kröfur til heilbrigðis-
kerfisins að leiðarljósi.
2. Betri hjúkrunarmenntun og þjónusta
3. Lög og reglur
4. Siðfræði og mannréttindi á líðandi
stund
5. Menntun á tímamótum
6. Hjúkrunarrannsóknir eftir árið 2000
7. Flokkun hjúkrunarviðfangsefna og
upplýsingatækni í hjúkrun
8. Klínisk hjúkrun á 21. öldinni,
alþjóðleg þátttaka
9. Fjölbreytt menning og hjúkrun
10. Geðheilsa og hjúkrun
11. Heilhrigði kvenna:
Forgangsröðun og framkvæmd
12. Heilbrigðishvatning:
F ramtíðaráætlun
13. Að minnka áhættuhegðun:
Stefnumörkun og íhlutun
14. Heilsusamfélög
15. Umhyggja fyrir þeim sem veita
umönnun: Framtíðarsýn
16. Breytingar á framvindu starfsferils
17. Félög hjúlcrunarfræðinga að verki
18. Frumkvæði sjálfstætt starfandi
hjúkrunarfræðinga
Allir útdrættir verða metnir nafn-
laust af þremur ritrýnum út frá skýr-
leika, alþjóðlegu gildi þeirra, aðaláhersl-
um þingsins, vísindalegu gildi og þekking-
arlegu mikilvægi fyrir hjúkrun og/eða
heilbrigði.
Oskum um málfundi (symposium) um
ákveðin málefni skal beint til Alþjóða-
sambands hjúkrunarfræðinga sem fyrst.
Máll’undirnir verða í tvær klukkustundir
hver og munu þrír fyrirlesarar flytja
framsöguerindi um sama efni frá mis-
munandi sjónarhornum. Málfundirnir
verða ákveðnir í þeirri röð sem óskir um
þá berast.
Skilafrestur fyrir útdrætti er tU
15.janúar 1996.
Flytjendur erinda verða að vera
félagar í aðildarfélagi samtakanna. Al-
þjóðasamtökin greiða ekki þóknun fyrir
erindi, eða kostnað vegna skráningar,
ferða eða annars.
Aðeins er tekið við útdráttum á
ensku, frönsku eða spænsku.
Skila þarf fruinriti að útdrætti
erinda og fjórum afritum. Ekki er tekið
við útdráttum um myndrita. Fyrir vegg-
spjaldakynningu skal skilað einu frumriti
af útdrætti og einu afriti.
Eyðublað fyrir upplýsingar um
höfunda þarí' að útfyUa fyrir alla höf-
unda verkefnanna. Samskipti verða ein-
ungis liöfð við fyrsta höfund.
Einungis þrír höfundar verða skráð-
ir í dagskrá og útdráttabók.
Utdráttur þarf að rúmast á þar til
gerðu blaði og letur má ekki vera minna
en 8,5 punkta eða stærra en 9 punkta.
Utdráttur sendist til:
21st ICN Quadrennial Congress
Administrative Office
SYMPORG S.A.
7, av. Pictet-de-Rochemont
CH - 1207 GENEVA
Switzerland
Sími: 00 41 22 786 37 44
FRETTIR FRA
VESTMANNAEYJADEILD
Ilaldin var 2ja daga ráðstefna um hjúkr-
un deyjandi sjúklinga í Vestmannaeyjum
dagana 29. - 30. apríl. Fyrirlesarar voru
Nanna Friðriksdóttir og Erna Haralds-
dóttir. Fyrirlestrar þeirra voru vel undir-
búnir og færum við þeirn okkar bestu
þakkir fyrir. Þátttaka var mjög góð og
allir voru mjög ánægðir með fyrirlestrana
seni voru in.a. um hugmyndafræði hos-
pice, hlutverk hjúkrunarfræðinga í líkn-
andi hjúkrun, viðbrögð og þarfir fjöl-
skyldu deyjandi sjúklinga, sorg og sorgar-
viðbrögð og vonina og mikilvægi hennar.
Hjúkrunarfræðingar frá Akranesi
heimsóttu Vestmannaeyjar 12. - 14. maí
1995. Margt var liaft fyrir stafni til að
gera þessa heimsókn sem ánægjulegasta
fyrir alla. Siglt var um eyjarnar og
snæddur kvöldverður í helli meðan á
siglingunni stóð, ekið í rútu um eyjarnar
og keppt uin þrenn verðlaun á golfmótinu
Florence Open við mikinn fögnuð við-
staddra. Að lokum var haldin skemmtileg
kvöldskemintun með mat og heimatilbún-
um skemmtiatriðum. Þátttakendur virtust
skeminta sér konunglega þessa helgi.
Díana j. Svavarsdóttir, formaður
Vestmannaeyjadeildar
EFTIRLAUNAÞEGAR
MEÐ VORFUND
A vorfundi deildar eftirlaunaþega
innan Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga söng Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
söngkona, við undirleik Jóns Stefáns-
sonar, organista. Má ineð sanni segja
að þau hafi með list sinni fært vorið
inn í húsakynni félagsins þennan dag.
Á dagskrá voru innlend og erlend lög
sem niinntu á vorið - og sólin skein.
86
TlMAIilT IIJUKRUNARFltÆÐINGA 2.-3. tbl. 71 árg. 1995