Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Qupperneq 41
ÁRSSKÝRSLA STJÓRNAR
FÉLAGS ÍSLENSKRA HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Ásta Möller, formaður
M \ ' \ilw ■
U'
I \ j * • fNr f n
v-< ■Lj " J
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfrœðinga ‘94-’95 ásamt
formanni. Hildigunnur, Hrafnliildur, Asta, Lilja, Ingibjörg,
Hjördís, Sigríður, Kristín og Jóhanna.
A fuUtrúaþmgi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
flutti Ásta Möller, formaður félagsins, skýrslu stjórnar
fyrir starfsárið 1994-1995. Hér á eftir fer útdráttur
úr skýrshumi, en hún er hirt í heild sinni í hefti seni
útgefið var fyrir fulltrúaþingið, ásamt ársskýrslum
svæðisdeilda, nefnda, fagdeilda og ráða félagsins
Skýrsluna er liægt að nálgast hjá Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga.
vörsluforriti og nýjum skjalaskáp til að auðvelda aðgang
að skjölum félagsins.
Ilér á eftir verður tæpt á helstu atriðum í starfsemi
félagsins og taka þau mið af starfsáætlun sem samþykkt
var á stofnfundi félagsins:
• Samstaða hjúkrunarfræbinga í nýju félagi
Það er mat stjórnar félagsins að vel hafi tekist til með
sameiningu hjúkrunarfræðinga í eitt félag. Helstu
atburðir ársins á vettvangi félagsins voru vel heppnaðir
og stuðluðu að aukinni samstöðu hjúkrunarfræðinga og
má þar nefna stofnfund félagsins í janúar, faglega ráð-
stefnu, „Hjúkrun 94“, í apríl 1995, hjúkrunarþing í lok
olctóber, en einnig fyrsta kjarasamning félagsins sem
undirritaður var 30. maí 1995. Blómlegt og kröftugt starf
í svæðisdeildum og fagdeildum auk öflugs trúnaðar-
mannakerfis hafa styrkt innviði félagsins. Einnig má
nefna nýtt félagsmerki svo og markvissa útgáfu á faglegu
og fréttatengdu efni, hæði af starfsvettvangi hjúkrunar-
fræðinga og af vettvangi félagsins. Einnig er ljóst að
umræður um starf, menntun, ábyrgð og laun í kjölfar
verkfalls sjúkraliða í nóvember-desember hefur þjappað
hjúkrunarfræðingum saman.
Fjöldi félaga
Skráðir félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
voru 2675 talsins í árslok 1994, þar af var 1981 hjúkrun-
arfræðingur sem tók laun skv. kjarasamningi félagsins og
greiddi félagsgjöld skv. samþykkt stofnfundar félagsins.
Stjórn
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga starfsárið
1994-1995 var óbreytt frá stofnfundi í janúar 1994 að
öðru leyti en því að Jóhanna Bernharðsdóttir tók sæti
ritara stjórnar félagsins frá 1. júlí 1994 til 1. febrúar
1995 vegna tímabundinna starfa Hrafnhildar Baldurs-
dóttur erlendis.
Stjórnin hélt 38 stjórnarfundi á starfstímabilinu. Að
auki voru haldnir 3 fundir í félagsráði.
Rekstur skrifstofu
Þjónusta, sem skrifstofa félagsins veitir félagsmönnuin,
jókst jafnt og þétt á árinu. Uthúið var nýtt tölvukerfi
fyrir félagaskrá, upplýsingar um sjóði'félagsins þ.e.
starfsmenntunarsjóð, orlofssjóð og vísindasjóð, voru sett-
ar á tölvutækt form. Þá var nýr skjalalykill, til flokkunar
skjala og skjalavörslu, tekinn í notkun ásamt skjala-
• Hugmyndafræöi félagsins
Hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðinn til starfa hjá
félaginu til að liafa umsjón ineð vinnu við framsetningu á
hugmyndum félagsins og stefnumótun í lijúkrunar- og
heilbrigðismálum. Stefnt er að því að afrakstur þeirrar
vinnu verði til umfjöllunar á næsta hjúkrunarþingi
félagsins árið 1996.
• Stofnun svæöisdeilda og fagdeilda
Allar svæðisdeildir félagsins, 9 talsins, hafa verið stofnað-
ar, sú síðasta í Reykjavík í mars sl. Athugasemdir hafa
borist stjórn félagsins frá svæðisdeildunum um tengsl
milli svæðisdeilda og stjórnar og um þátt þeirra í ákvarð-
anatöku félagsins. Stjórn hefur þessar atliugasemdir nú
til athugunar.
12 fagdeildir hafa þegar verið stofnaðar. Stjórn
félagsins ákvað í byrjun starfsárs að styrkja erlend tengsl
fagdeildanna með jiví að greiða eitt apexfargjald á ári
fyrir jiá sem sitja í stjórnum norrænna, evrópskra eða
alþjóðlegra systursamtaka og/eða eiga sæti í undir-
búningsnefnd fagráðstefna í útlöndum. Formenn fag-
deildanna sitja í félagsráði og er almenn ánægja með það
fyrirkomulag.
TIMARIT IIJUKRUNARTRÆÐINGA 2.-3. tl>l. 71 árg. 1995
89