Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Side 42
1 mörgu er að snúast.
• Úttekt á ráðningarsamningum hjúkrunar-
fræ&inga um allt land
Félagið hefur aflað upplýsinga um ráðningarsamninga
hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnunum um allt land.
Félagið hefur einnig aðstoðað félagsmenn, sem starfa hjá
öðrum en ríkinu, við gerð ráðningarsamninga til að
tryggja réttarstöðu þeirra. Ráðningarsamningar hjúkrun-
arfræðinga um greiðslur umfram lágmarksákvæði kjara-
samnings eru mismunandi og taka gjarnan mið af stað-
bundnum aðstæðum. Frá gildistöku nýs ltjarasamnings
félagsins hefur ítrekað verið reynt að segja ráðningar-
samningunum upp að undirlagi stjórnvalda. Félagið
hefur aðstoðað hjúkrunarfræðinga í þessari baráttu eftir
mætti, m.a. veitt þeim upplýsingar um réttarstöðu þeirra
og útvegað lögfræðilega aðstoð.
Deild eftirlaunaþega hefur einnig verið stofnuð með
meira en 250 félögum.
• Hjúkrunarþing
Fyrsta hjúkrunarþing félagsins var haldið 29. október
1994 undir yfirskriftinni „Samskipti/fagmennska“. Flutt-
ir voru fyrirlestrar og síðan rætt í hópum um spurningar
er tengdust inálefni þingsins. Á annað hundrað manns
sátu þingið.
• Gerb kjarasamninga
Nýr kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga
Fyrsti kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga var undirritaður 30. maí 1994 eftir 5 mánaða
formlegar samningaviðræður. Gildistími samningsins er
frá 1. apríl 1994 til 31. desember 1995 en í honum er
endurskoðunarákvæði sein felur í sér að verði almennar
launabreytingar hjá helstu launþegasamtökum á
samningstímabilinu verði hafnar viðræður um sams
konar breytingar á sainningi hjúkrunarfræðinga. Helstu
markmið félagsins við gerð nýs kjarasamnings voru að
bæta kjör hjúkrunarfræðinga en auk jiess var lögð
áhersla á að almennir hjúkrunarfræðingar hefðu mögu-
leika á launahækkunum vegna aukinnar faglegrar færni,
ábyrgðar og menntunar.
Samningur við Tryggingastofnun ríkisins um hjúkrun í
lieimahúsum
Samningi félagsins við Tryggingastofnnn ríkisins um
hjúkrun í heimahúsum var sagt upp 30. október sl. og
rann hann út 1. inaí sl. 011 ákvæði samningsins eru J)ó í
gildi þar til nýr samningur hefur verið gerður. Þegar eru
hafnar samningaviðræður við TR um gerð nýs samnings.
25 hjúkrunarfræðingar í 20 stöðugilduin hafa leyfi til að
starfa sjálfstætt við hjúkrun í heimahúsum skv.
samningnum.
• Útgáfa fréttablaðs og fagtímarits
A starfsárinu voru gefin út 6 tölublöð Fréttablaðs hjúkr-
unarfræðinga, 2 tölublöð Tímarits hjúkrunarfræðinga og
að auki 1 töluhlað sameinaðs frétta- og fagtímarits, en
ákvörðun um sameiningu hlaðanna var tekin í árslok
1994. Utgáfa á vegum félagsins hefur verið öflugt tæki til
að miðla upplýsingum um félagsleg og fagleg málefni til
félagsmanna og annarra, en blaðinu er dreift víða innan
stjórnkerfisins og til fjölmiðla. Margoft hefur verið vitnað
í efni fréttablaðs félagsins í fjölmiðlum á starfsárinu.
• Félagsmerki
Félagsmerki Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur nú
verið hannað og útbúnar tvær tegundir af einkennisnæl-
uni. Einnig liafa ýinsir munir verið úthúnir til sölu og
kynningar á félagsmerkinu. Nú er í undirbúningi að gera
félagsfána úr taui. Settar hafa verið reglur um notkun
merkisins og einkennisnælu til að tryggja tilhlýðilega
notkun jiess.
Jóna Sigríður Þorleifsdóttir hannaði merkið, en hún
starfar hjá Auglýsingastofunni AUK, en merkjanefnd
félagsins bar ábyrgð á verkinu.
Stjórn félagsins liefur staðið að víðtækri kynningu á
félagsmerkinu bæði meðal félagsmanna og almennings.
Markmiðið er að ljóst sé að merkið standi fyrir hjúkrun
og að hjúkrunarfræðingar geti aðgreint sig frá öðrum heil-
brigðisstéttum á heilbrigðisstofnunum. í Jieim tilgangi
voru úthúin veggspjöld með merki félagsins sem dreift var
á vinnustaði hjúkrunarfræðinga og auglýst í Strætisvögn-
um Reykjavíkur í nóvembermánuði sl. Veggsjijaldið hang-
ir nú víða þar sem hjúkrunarfræðingar eru að störfum.
• Áhrif hjúkrunarfræöinga innan heil-
brigðisþjónustunnar
A starfsárinu leituðu stjórnvöld til félagsins um álitsgerð-
ir, umsagnir og tilnefningar í nefndir í ýmsum málefnum.
90
TIMARIT H.IÚKRUNARFRÆÐINGA 2.-3. tbl. 71 árg. 1995