Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Blaðsíða 44
2.6.’94. Félagsfundur eftir kjarasamninga. 170 manns mœttu.
lista, en einnig ýmis mál er varða réttarstöðu hjúkrunar-
fræðinga, s.s. vegna uppsagna ráðningarsamninga hjúkr-
unarfræðinga á sjúkrahúsum í þétthýlinu, um starfsloka-
samninga vegna einstakra hjúkrunarfræðinga og um upp-
hyggingu á kröfum og samninga vegna vangreiddra hak-
vaktagreiðslna á sjúkrahúsum í þéttbýlinu.
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur leit-
ast við að meta ávinning félagsins að aðild að samtökun-
um og mælir með óbreyttri aðild félagsins að sinni.
• Samstarf og samvinna vi& samtök
hjúkrunarfræbinga ó erlendum vettvangi
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga er aðili að Alþjóða-
sambandi hjúkrunarfræðinga (ICN), Samvinnu hjúkrun-
arfræðinga á Norðurlöndum (SSN), Evrópusamstarfi um
hjúkrunarrannsóknir (WENK) og Evrópusamstarfí um
ga'ðastjórnun í hjúkrun (Euroquan).
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga leggur
áherslu á aukið samstarf félagsins við erlend samtök
hjúkrunarfræðinga á sviði félagsmála og faglegra mál-
efna.
SSN
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur tekið virkan
þátt í starfi SSN. Stjórnarfundir eru haldnir tvisvar á
ári, en formenn aðildarfélaganna mynda stjórn samtak-
anna og var Asta Möller, formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, kjörin 2. varaformaður á haustfundi
SSN í Finnlandi í septemher sl. Varamaður f.h. félagsins í
stjórn SSN er Sigríður Guðmundsdóttir, 1. varaformaður
félagsins, og hefur hún setið tvo síðustu stjórnarfundi
ásamt formanni.
SSN stóð fyrir ráðstefnu í Finnlandi í septemher sl.
um fagmennsku sem undirstöðu skipulags hjúkrunar.
Asta Möller, formaður félagsins og Hanna I. Birgisdóttir,
framkvæmdastjóri, voru með erindi á ráðstefnunni.
Stjórn félagsins tók ákvörðun um að taka þátt í form-
legu samstarfi SSN á sviði kjaramála og eru Hildur
Einarsdóttir, formaður kjaranefndar, og Vigdís Jóns-
dóttir, hagfræðingur fulltrúar félagsins á þeim vettvangi.
A vegum SSN er starfandi gæðastjórnunarhópur um
hjúkrun sem hefur m.a. það verkefni að vinna að fram-
gangi gæðastjórnunar og miðla upplýsingum um þetta
efni. Hópurinn hefur nú m.a. skipulagt ráðstefnu um
gæðastjórnun í hjúkrun á vegum SSN í Stokkhólmi í
febrúar á næsta ári og mun íslenskur hjúkrunarfræðing-
ur vera einn af aðalfyrirlesurum ráðstefnunnar. FuUtrúi
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í þessu verkefni er
Margrét Björnsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri á
Borgarspítala.
SSN aðstoðar við skipulagningu á alþjóðlegri ráð-
stefnu um upplýsingatækni í hjúkrun „Nursing Infor-
matics“ sem haldin verður í Stokkhólmi á árinu 1997.
Ingibjörg ÞórhaUsdóttur, gjaldkeri félagsins er fuUtrúi
félagsins í þessu starfi.
í ár eru 75 ár frá stofnun SSN. Af því tilefni verður
haldinn hátíðarfundur og ráðstefna í Kaupmannahöfn
6.-8. septemher nk. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
sendir 11 þátttakendur og þrír þeirra fjalla um SSN og
fagið fyrir hönd félagsins. Þá hefur staðið yfir ritun á
sögu SSN sem mun koma út á árinu. Sigþrúður Ingi-
mundardóttir er fuUtrúi félagsins í söguritunarnefnd
SSN. Kostnaður vegna afmælis SSN er greiddur af sam-
tökunum.
SSN lagði til dagskrá og kynningarhás á Nordisk
Forum sem haldið var í Finnlandi í ágúst á síðasta ári.
Hluti af kynningarbásnum var ætlaður til kynningar á
verkefnum og rannsóknum hjúkrunarfræðinga frá öllum
Norðurlöndum. Af níu spjaldsýningum áttu íslenskir
hjúkrunarfræðingar þrjár, en það voru þær Jóhanna
Bernharðsdóttir, Marga Thome og IJelga Bjarnadóttir.
Várd í Norden er fagtímarit sem gefið er út af SSN og
koma 2-4 tölublöð út á ári. Christel Beck og Hólmfríður
Gunnarsdóttir eru ritrýnar f.h. félagsins.
ICN
Samstarf félagsins við ICN hefur falist í upplýsingamiðlun
á háða hóga. Næsta haust verður haldinn fundur í full-
trúaráði samtakanna (Council of National Representa-
tives) í Harare í Zimbabwe en hann fer með æðsta vald
samtakanna og markar stefnu ICN. Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga hefur áltveðið að senda fulltrúa sinn
á þennan fund. Það verður í fyrsta skipti í 20 ár sem
íslenskir hjúkrunarfræðingar eiga fulltrúa á þeim full-
trúaráðsfundum sem haldnir eru milli heimsþinga ICN en
heimsþing eru haldin fjórða hvert ár.
María Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur, var ein
þriggja er hlaut liinn virta styrk ICN/3M frá ICN. Mun
það vera í fyrsta skipti sem íslendingur hlýtur þennan
styrk og er hann veittur til framhaldsnáms í hjúkrun á
æðri stiguin. Ovíst er hins vegar um framtíð styrksins,
sem stendur, þar sem 3M fjármagnar hann ekki lengur.
WENRogEUROQUAN
Magna Birnir, hjúkrunarfræðslustjóri hjá Ríkisspítölum,
er fulltrúi félagsins í WENR, en Vilhorg Ingólfsdóttir,
92
TIMARIT IIJUKIIUNARFIIÆDINGA 2.-3. tbl. 71 árK. 1995