Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Page 47
HJUKRUNAR-
RÁÐSTEFNAN
í REYKJAVÍK
Alþjóðlega hjúkrunarráðstefnan „Nursing Scholarship and
Practice“, fór fram 20. - 23. júní sl. í Reykjavík. Var lnin
fyrst í röð fjögurra ráðstefna sem eru skipulagðar af náms-
hrant í hjúkrunarfræði við Háskóla Islands í samstarfi við
hjúkrunardeild háskólans í Wisconsin — Madison í Banda-
ríkjunum, hjúkrunardeild Glasgow Caledonian háskólans í
Skotlandi og hjúkrunarrannsóknadeild Iljúkrunarfélags Nýja
Sjálands.
Þátttakendur voru á sjötta hundrað, þar af 250 erlendir,
frá öllum hyggðum heimsálfum.
Urval fyrirlestra og kynninga með veggspjöldum var mikið
og fjölbreytt. Fyrri dagana tvo fóru fram fyrirlestrar, umræð-
ur og vinnusmiðjur á sjö stöðum samtímis. Var almennt gerður
góður rómur að því sem í boði var. Helsta umkvörtunarefni
ráðstefnugesta var að erfitt væri að velja, margt áhugavert
væri á dagskrá en aðeins unnt að vera á einum stað í einu.
I vikunni fyrir ráðstefnuna voru haldin þrjú námskeið,
eitt fyrir hjúkrunarfræðinga í doktorsnámi, annað fyrir
barnahjúkrunarfræðinga og það þriðja um fjölskylduhjúkrun.
Leiðbeinendur voru doktor Patricia Becker og doktor Marilyn
MeCubbin frá hjúkrunardeild Háskólans í Wisconsin-Madi-
1
Þœr virðast ánœgðar með daginn. Frá vinstri: Edda Jóna,
Arún Kristín og Hanna Ingibjörg.
son. Námskeið þessi voru vel sótt af innlendum og erlendum
hjúkrunarfræðingum.
I ráðstefnunefnd námsbrautarinnar voru Guðriin
Kristjánsdóttir, dósent og forseti ráðstefnunnar, Herdís
Sveinsdóttir, dósent, Asta Thoroddsen, lektor, og Hlíf
Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Ráðstefnudeild Ferða-
skrifstofu Islands sá um skipulagningu í samvinnu við
ráðstefnunefndina.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra bauð ráðstefnugest-
um til móttöku í Perlunni, daginn áður en ráðstefnan hófst, og
borgarstjóri tók á móti þeim í ráðhúsi Reykjavíkur áður en
henni lauk. Þá gátu þeir sem vildu tekið þátt í ævintýraferð.
Því var haldið leyndu hvert ferðinni var heitið en fólki var
bent á að koma ekki samkvæmisklætt. Ferðin var ævintýraleg.
Rútu þátttakenda var rænt af ófrýnilegum víkingum. Þeir létu
bílstjórann aka sem leið lá á Fjörukrána í Hafnarfirði, þar
sem á borðum var forneskjulegt fæði og mjöður göróttur. Allir
komust lífs af úr ferðinni og ekki laust við að hún hafi kætt
marga þó sumir hafi orðið hrelldir í fyrstu og öðrum orðið hált
á víkingaveiguin er leið á kvöhlið.
ÞR
• •
UPPLYSINGAMIÐSTOÐ UM EITRANIR
Á SLYSA- OG SJÚKRAVAKT BORGARSPÍTALANS
Upplýsingamiðstöðin verður rekin í
samvinnu slysa- og sjúkravaktar, lyf-
lækningadeildar, apóteks og rannsókn-
ardeildar Borgarspítalans og rannsókn-
arstofu Háskóla íslands í lyfjafræði.
Meginbúnaður upplýsingamið-
stöðvarinnar er tölvur, handhækur,
sími og skrifstofuaðstaða.
Spítalinn keyjiti áskrift að gagna-
grunni á geisladiskum með upplýsinga-
kerfi um lyf og eiturefni. Þar er að
l'inna alhliða upplýsingar, m.a um
verkun, eituráhrif og meðferðarúrræði,
og eru upplýsingarnar endurnýjaðar
ársfjórðungslega. Aflað verður gagna
um efni á markaði hérlendis sem geta
valdið eitrun og upplýsingar um þau
færðar í gagnagrunn. Starfsemin hygg-
ist á þeim grunni sem þegar hefur verið
lagður á Borgarspítalanum og þeirri
reynslu sem þar hefur safnast. Sér-
stakir starfsmenn upplýsingamið-
stöðvarinnar eru tveir, en starfsfólk
slysa- og sjúkravaktar og lyflækninga-
deildar, sem einkuin sinnir meðferð
eitrunartilfella, mun leggja sitt af
mörkuni eftir Jiví sem þörf krefur.
Hlutverk upplýsingamiðstöðvar um
eitranir er að hjarga mannslífum og
korna í veg fyrir varanlegan skaða og
heilsutjón af völdum eitrunar, hvort
sem um er að ræða eitrun af völdum
lyfja eða annarra efna.
Upplýsingamiðstöðin er opin allan
sólarhringinn. Þar eru veittar upplýs-
ingar og ráðgjöf í eitrunartilfellum og
áframhaldandi afgreiðslu þeirra komið
í réttan farveg.
Símanúmerið er 56 96 670.
TÍMARIT lUÚKRlINARi’KÆDINGA 2.-3. tbl. 71 úri;. 1995
95