Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Qupperneq 5

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Qupperneq 5
Formannspistill Herdís Sveinsdóttir í nýjasta fréttabréfi fjármálaráðu- neytisins fyrir stjórnendur ríkis- stofnana segir: „Sá misskilningur virðist vera nokkuð víða að gera þurfi nýja aðlögunarsamninga í kjölfar næstu kjarasamninga. Svo er ekki því að starf aðlögunar- nefnda var einungis að semja um stofnanaþátt hins nýja launakerfis eða að útfæra forsendur launa- setningar hjá hverri stofnun." Samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur staðið í þeirri trú að aðlögunarsamningar yrðu endurskoðaðir í haust þegar samningar eru lausir. Vissulega hefur gamla launakerfið verið aðlagað hinu nýja og við horfum ekki til þess að nýir samningar verði unnir frá grunni. Hins vegar er Ijóst að ákveðnir þættir falla undir aðlögunarsamninga sem Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga vill taka upp í nýjum kjarasamningi. Björk Vilhelmsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna (BHM), sendi fjármálaráðherra bréf í júlí þar sem fram kom að „að mati samningafólks innan aðildarfélaga Bandalags háskólamanna þarf í komandi samningum að tryggja áframhald þess að launa- ákvarðanir séu teknar á hverri stofnun. Til þess að svo verði þarf að fá inn í miðlæga samninga ákvæði sem tryggir endurskoðun stofnanasamninga í kjölfar miðlægra samninga. Slíkt ákvæði þarf að taka á þætti stofnana í launaákvörðunum, óháð því hvort í aðlögunarferlinu 1997 - 2000 hafi verið sett inn endurskoðunar- ákvæði og/eða fallið úrskurður." Ekki er endurskoðunarákvæði í öllum aðlögunarsamningum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og erum við alfarið sammála ofan- nefndu sjónarmiði. Undirbúningur samninga í haust er kominn á fullt skrið og hvet ég hjúkrunar- fræðinga til að láta trúnaðarmenn sína eða okkur á skrifstofu félagsins vita af því sem þeim finnst að megi færa til betri vegar í nýjum samningi. í þessu síðsumarblaði kennir ýmissa grasa að vanda. Helga Birna Ingimundardóttir, hagfræð- ingur, fjallar um hlutverk trúnaðar- manna og það er skoðun mín, eftir árs starf hér að félagsmálum, að virkt trúnaðarmannakerfi sé ákaflega mikilvægt til að tryggja virkt innra starf félagsins. í blaðinu er einnig birt afstaða deildarstjóra á Landspítala-háskólasjúkrahúsi til sameiningar sjúkrahúsanna. Sjálfri finnst mér mikilvægt að hjúkrunarfræðingar lesi yfirlýsingu ráðherra Evrópulanda innan WHO um málefni hjúkrunarfræðinga og Ijósmæðra. Eins og fram kemur í greinargerð minni var sérlega ánægjulegt að sitja fund WHO og verða vör við hversu mikillar virð- ingar hjúkrun á fslandi nýtur í Evrópu. Við, íslenskir hjúkrunar- fræðingar, eigum að vita af því og segja frá því. Hjúkrun á íslandi er á réttri leið og það er okkar að standa vörð um að svo verði áfram. losar stíflur og léttír önd n n Fæst f öllum apótekum Hreint nef er jafn mikilvægt og hreinar tennur STÉRIMAR' Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 76. árg. 2000 129

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.