Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Qupperneq 27

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Qupperneq 27
Bryndís Kristjánsdóttir: ^júkruKAY'fYveðÍMuw er fátt óviðkomandi „Rannsóknir eru ekki hluti af hjúkrunarstarfinu." „Stunda hjúkrunarfræöingar rannsóknarvinnu?" Þetta voru þau viöbrögð sem komu mér einna mest á óvart þegar ég hóf starf sem kynningarfulltrúi fyrir WENR-ráðstefnuna, þ.e.a.s. ráðstefnu um rannsóknir hjúkrunarfræðinga víðs vegar um heim sem haldin var í Reykjavík dagana 24. - 27. maí sl. Undirbúningur hafði staðið í langan tíma en í undirbúnings- nefndinni voru þær Auðna Ágústsdóttir, formaður, Aðal- þjörg Finnbogadóttir, Anna Birna Jensdóttir, Elsa Friðfinns- dóttir, Hildur Helgadóttir og Ingibjörg Hjaltadóttir. Það sem ég nefni hér fyrst er að svo virðist sem margir starfandi hjúkrunarfræðingar telji rannsóknir í hjúkrun lítt koma sér eða starfmu við og hafa því lítinn sem engan áhuga á að kynna sér þær. Ekki veit ég hvort hópurinn, sem hefur þessa skoðun, er minni eða meiri hluti starfandi hjúkrunar- fræðinga en að minnsta kosti var það myndarlegur hópur íslenskra hjúkrunarfræðinga sem tók þátt í ráðstefnunni, bæði með framlagi til dagskrárinnar og sem áheyrendur. Til að vekja athygli hjúkrunarfræðinga, almennings og fjöl- miðla á þessari merku ráðstefnu var ákveðið að efna til kynningarátaks og þegar ég hafði samband við frétta- eða dagskrárgerðarmenn urðu þeir afar undrandi þegar þeir heyrðu að hjúkrunarfræðingar stæðu fyrir ráðstefnu til að kynna helstu nýjungar í rannsóknum sínum; þeir höfðu ekki hugmynd um að slík vinna færi fram. Flestir þökkuðu fyrir að athygli þeirra var vakin á málinu og allir helstu fjölmiðlar á höfuðborgarsvæðinu sögðu frá ráðstefnunni á einn eða annan hátt. Enn fremur tóku nokkrir hjúkrunarfræðingar að sér að skrifa stuttar greinar (eitt A-4 blað) sem birtust í Morgunblaðinu þannig að ráðstefnuvikuna varð varla „þver- fótað“ fyrir hjúkrunarfræðingum og rannsóknarstörfum þeirra. Stunda kynlíf fram í rauðan dauðann Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, fréttamaður á Sjónvarpinu, var t.d. mjög ánægð með svar Nancy Fugate Woods, eins aðalfyrirlesara ráðstefnunnar, við spurningunni um það hversu lengi konur hefðu áhuga eða getu til að stunda kynlíf. Svar hennar var eitthvað á þá leið að konur gætu stundað kynlíf eins lengi og þær hefðu löngun til - en þegar komið væri fram á elliár væri aðalvandamálið yfirleitt að finna bólfélaga því karlana hrjáði oftar en ekki einhver krankleiki sem kæmi í veg fyrir kynlífsiðkun þeirra. Þetta þótti mjög fréttnæmt því auk þess að birta viðtal við Nancy var fréttin endurtekin í samantekt yfir helstu fréttir þessa vikuna. Nancy hefur einkum stundað rannsóknir sem tengjast heilbrigði kvenna og er hún þekkt fyrir þær um allan heim en annars staðar hér í þlaðinu er umfjöllun um fyrirlestur hennar. Bryndís Kristjánsdóttir, kynningarfulltrúi WENR. Auk Nancy voru aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar þær Sigríður Halldórsdóttir, prófessor við Háskólann á Akureyri, og Ingalill Rahm Hallberg, prófessor við háskólann í Lundi. Fyrirlestrar voru í öllum sölum Háskólabíós og í sölum á Hótel Sögu og oft erfitt fyrir þátttakendur að velja hvern helst ætti að sækja. Heil bók var yfir dagskrá ráðstefn- unnar þar sem m.a. er að finna 119 útdrætti úr fyrirlestrum og öðru efni sem kynnt var á ráðstefnunni en auk fyrir- lestra kynntu hjúkrunarfræðingar niðurstöður rannsóknar- vinnu sinnar á veggspjöldum sem voru á göngum Háskólabíós. Eins og gefur að skilja er ekki hægt að telja það allt upp hér en til að gefa örlitla innsýn í hvað þarna fór fram eru hér nefndir nokkrir til sögunnar: Tónlist hressir og bætir Ýmsar aðferðir hafa verið reyndar til að draga úr kvíða, þörfinni fyrir deyfilyf og langri spítaladvöl. Mönnun lék hugur á að vita hvort tónlist gæti gefið góðan árangur og því var farið út í að kanna hvaða árangur fengist af því að leika tónlist áður en sjúkiingur færi í aðgerð. Niðurstöðurnar sýndu að tónlistin hafði marktækt góð áhrif og að sjúklingar, sem hennar nutu, náðu sér almennt fyrr eftir aðgerð. Rannsakendur: Ulrica Nilsson, Narinder Rawal, Lars-Eric Unestáhl, Mitra Unosson. Bæta hormónar líf kvenna? Ekki eru allir sammála um gagnsemi hormónagjafar eftir tíðahvörf. Þó hefur umræðan á síðari árum fremur beinst að jákvæðu áhrifunum en þeim neikvæðu og er talið að hormóna- gjöf leiði til betri líðanar kvenna. Gerð var rannsókn á hátt í 6.000 dönskum hjúkrunarfræðingum, 50 ára og eldri, sem sýnir niðurstöður sem komu á óvart. Rannsakandi: Yrsa Andersen. Feður aðstoðaðir með hjáip Netsins Um leið og farið er að leggja meiri áherslu á að feður taki þátt í umönnun barna sinna þurfa þeir á fræðslu og upplýsingum að halda. Verið er að kanna hvort gagnlegt reynist að veita 151 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.