Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Side 30
Laura Scheving Thorsteinsson, laura@landlaeknir.is
LÍF OG STARF í GLEÐI
Að hemja hugsanir og tilfinningar og lifa og starfa í gleði
Hvers virði er líf og starf í gleði? Hvað stjórnar þvf hvort við getum
eignast það? Er það alfarið undir kringumstæðum komið eða getum
við haft einhver áhrif á það? Ef við lítum á okkur sjálf og samferðafólk
okkar sjáum við að aðstæður fólks geta svo sannarlega haft áhrif á
hvort það lifir í gleði. Við sjáum líka fólk sem býr við erfiðar aðstæður
en á samt líf í gleði. Hvernig getum við haft áhrif á hvort við eigum líf
í gleði?
Hugsun
Hugsanir hafa mótandi áhrif á hegðun
og líðan, en hugsanir þjóta um hugann
með ógnarhraða og við tökum ekki alltaf
eftir því hvað við erum að hugsa. Ýmsir
þekktir aðilar hafa fjallað um hugsanir og
hér er smásýnishorn frá nokkrum þeirra.
Líf þitt er það sem hugsanir þínar gera
það (Marcus Aurelius)
Hugsanir mannsins móta hann (Norman
Vincent Peale)
Maðurinn erþað sem hann daglega hugsar
(Raiph Waldo Emerson)
Breyttu hugsun þinni og þú breytir lifi þínu
(John C. Maxwell, 2003)
Þú gætir lyklanna að huga þínum.
Hverjum ætlar þú að hleypa inn í dag?
(John C. Maxwell, 2003).
Hugsanir hafa mikil áhrif á hvernig okkur
líður og á því byggist hugræn atferlismeð-
ferð. Um hvað erum við að hugsa - eru það
neikvæðar hugsanir eða jákvæðar? Þorum
við að skrifa hugsanir okkar hjá okkur í
viku, skoða þær með gagnrýnu hugarfari
og ef útkoman er ekki góð reyna þá að
temja okkur jákvæðari hugsanir? Þetta
gæti verið hugmynd að áramótaheiti.
En hvað þá með tilfinningar sem við
ráðum oft ekkert við og sem geta jafnvel
hlaupið með okkur í gönur?
Tilfinningar
Við erum tilfinningaverur, sköpuð með marg-
víslegar tilfinningar og hver þeirra hefur
Laura Scheving Thorsteinsson, verkefnastjóri
gæðamála hjá Landlæknisembættinu
ákveðið hlutverk. Tilfinningar hafa áhrif á
framkomu, samskipti og frammistöðu fólks
á vinnustað, þær hafa líffræðilega virkni og
áhrif á mikilvæg líffæri, heilsu og orku.
Neikvæðar tilfinningar þekkjum við: ótta,
reiði, þunglyndi, sektarkennd, hatur,
öfund, afbrýðisemi og hryggð. Ekki
er þetta skemmtileg upptalning en þó
hafa þessar tilfinningar ákveðna kosti
því þær fela í sér tækifæri til vaxtar.
Neikvæðar tilfinningar, í réttum skammti,
geta hjáipað okkur að fara rétta leið
og þær gefa einnig upplýsingar um að
eitthvað sé að. Reiði getur til dæmis
verið uppspretta orku ef hún er nýtt á
skynsamlegan hátt. Uppbyggileg reiði
(constructive anger) getur þannig verið til
gagns, gefið kraft eða hugrekki til góðra
verka, að berjast gegn óréttlæti eða bæta
aðstæður. Hins vegar getur niðurbrjótandi
reiði (destructive anger) leitt til haturs
og hræðilegra hluta. Niðurbæld reiði
getur skaðað manneskjuna sjálfa (valdið
þunglyndi) og stjórnlaus reiði skaðar
bæði mann sjálfan og aðra. Reiðistjórnun
er einn mælikvarði á tilfinningagreind sem
er hæfileikinn til að stjórna sjálfum sér og
samböndum sínum á markvissan hátt.
Ákveðinn munur er á tilfinningum og
skapferli því tilfinningar lýsa viðbrögðum
við ákveðnum áreitum en skapferli er
nokkurs konar langtímatilfinningar sem
móta lífssýnina, svo sem svartsýni,
bjartsýni, leiði, kátína eða kvíði.
Fólk hefur tilhneigingu til ríkjandi skapferlis og
það hefur síðan mótandi áhrif á hegðun.
Hver er okkar iífssýn? Hvort finnst
okkur glasið háiffullt eða hálftómt? Sir
Winston S. Churchill lét eftirfarandi orð
falla: Svartsýnismaðurinn sér erfiðleika
við öll tækifæri en bjartsýnismaðurinn sér
tækifæri í öllum erfiðleikum. Hvort viljum
við vera og ráðum við því sjálf?
Ef litið er til um það bil 3000 ára gamallar
heimildar, þ.e. Orðskviðanna í Biblíunni,
kemur eftirfarandi fram: Hinn volaði sér
aldrei glaðan dag en sá sem vel liggur á
er sífellt í veislu (Orðskv. 15, 15) og enn
fremur: Glatt hjarta veitir góða heilsubót
(Orðskv. 17, 22). Þessi gömlu sannindi
eru engan veginn fallin úr gildi heldur hafa
ýmsar rannsóknir staðfest þau.
28
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 83. árg. 2007