Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Page 36
Rannveig Sigurðardóttir, Rósa María Guðmundsdóttir og Sylvía Ingibergsdóttir
FAGDEILD GEÐHJÚKRUNARFRÆÐINGA
Fagdeild geðhjúkrunarfæðinga var formlega stofnuð 23. mars árið 1994. Áður
hafði verið starfrækt deild frá árinu 1970 sem var fyrir þá hjúkrunarfræðinga sem
lokið höfðu sérnámi og höfðu sérleyfi innan geðhjúkrunar. Við stofnun hinnar nýju
deildar var ákveðið að þeir hjúkrunarfræðingar, sem störfuðu við geðhjúkrun,
gætu einnig orðið félagar og ef einhverjir aðrir óskuðu þess sérstaklega að
ganga í deildina gætu þeir sótt um inngöngu til stjórnar fagdeildarinnar.
Ný stjórn tók viö í maí 2006 og hefur
hún lagt áherslu á að efla deildina, hlúa
að faginu og skoða þau réttindi sem
framhaldsnám í geðhjúkrun veitir. Má þar
nefna að í janúar 2006 útskrifaðist stór
hópur hjúkrunarfræðinga með diplóma í
geðhjúkrun, en svp virðist sem námið veiti
óljós réttindi. Ætlunin er að skoða nánar
hvort hægt er að fá frekari viðurkenningu
á diplómanámi í framtíðinni, til dæmis
með þvf að auka klínískan þátt námsins.
Stjórnarmenn hafa einnig mikinn áhuga
á að skoða möguleika á klínískum
námskeiðum innan fagdeildarinnar.
Stjórn fagdeildar, frá vinstri Rósa María Guðmundsdóttir, ína Rós Jóhannesdóttir, Guðrún Gyða
Ölvisdóttir, Rannveig Sigurðardóttir, Sylvía Ingibergsdóttir og Sigríður Hafberg
Hlutverk deildarinnar er að vera stjórn Einnig er hlutverk hennar að auka samstarf
FÍH og nefndum til ráðgjafar í öllu er viðaðrahjúkrunarfræðingajafntinnanlands
snýr að viðkomandi fagi, stuðla að bættri sem utan, efla þverfaglegt samstarf og
geðhjúkrun og efla menntun innan fagsins. kynna geðhjúkrun í samfélaginu.
Eitt fyrsta verkefni stjórnarinnar var að taka
þátt í könnun á vegum WHO en tilgangur
hennar var að safna upplýsingum um
fjölda geðhjúkrunarfræðinga, menntun
þeirra og starfsumhverfi. Þetta verkefni
var unnið samkvæmt upplýsingum frá
hjúkrunarfræðideild HÍ, Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga, Landspítala- háskóla-
sjúkrahúsi, Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri og landlæknisembættinu.
Hvaö á bókin að heita?
Félagíslenskra hjúkrunarfræðingagengstfyrirsamkeppni
um heiti bókar um sögu hjúkrunar á íslandi sem gefin
verður út í tilefni 90 ára afmælis félagsins árið 2009.
Margrét Guðmundsdóttir sagnfræðingur hefur unnið að
ritun bókarinnar fyrir Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga.
í bókinni er m.a. fjallað um þróun starfa og menntunar
hjúkrunarfræðinga, og þróun félaga þeirra á 20. öldinni.
Leitað er hugmynda að aðal- og undirtitli bókarinnar.
Tillögum skal fylgja stuttur skýringartexti þar sem fram kemur
til hvers er vísað með titlinum.
Tillögum skal skilað á skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga að Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík. Einnig er hægt
að senda tillögur með tölvupósti á hjukrun@hjukrun.is. Skilafrestur
er til 1. febrúar 2008. Tillögum þurfa að fylgja upplýsingar um
nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang höfundar.
34
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 83. árg. 2007