Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Side 38
ÆTLAÐI ALDREI AÐ VERÐA LISTAKONA
- viðtal við Geggu
Helga Birgisdóttir, eða Gegga eins og hún er kölluð, er vinsæl listakona
sem hefur langa reynslu sem hjúkrunarfræðingur og Ijósmóðir og
endurspeglast það í list hennar. Eftir að hafa unnið að listsköpun með
fram hjúkrunarstarfinu í mörg ár ætlar hún núna að helga sig listinni og
hefur verið nóg að gera hjá henni í haust.
Gegga er hjúkrunarfræðingur, Ijósmóðir
og listakona. Hún er fædd og uppalin í
Reykjavík, bjó fyrst í Laugarneshverfinu
og svo í Breiðholti. Núna býr hún í litlu og
fallegu 100 ára gömlu húsi í Skipasundi.
Þar er hún með tvær vinnustofur, hún
málar í kjallaranum og vinnur með leir í
bílskúrnum.
Gegga fór mjög ung í sjúkraliðanám
og svo beint í Hjúkrunarskóla íslands.
Hún varð átján ára bara nokkrum vikum
áður en skólinn byrjaði og rétt slapp
inn. Á þeim tíma voru nemendur enn þá
í búningum með kappa og gátu bætt
við bólu í kappann eftir því sem þeir
hækkuðu í tign. Hún útskrifaðist 1981 og
fór þá að vinna á brjóstholsskurðdeild.
Þar var hún oft ein með 30-40 sjúklinga,
margir mjög veikir með brjóstholsslöngur
og lungnakrabbamein. Það var ströng
vinna en mjög gaman að vera í hring-
iðunni og spennunni. Hún flutti svo yfir
á vökudeild og var búin að vera þar í
nokkur ár þegar hún fann fyrir þörf að
vita meira um meðgönguna og hvernig
börnin, sem hún sinnti á vökudeild, hefðu
haft það í móðurkviði. Hún fór þá í
Ijósmæðraskólann, ætlaði alltaf aftur á
vökudeild en þótti Ijósmæðrastarfið svo
skemmtilegt að hún átti eftir að vera 10
ár á fæðingarganginum.
Gegga fann aldrei fyrir sköpunarþörf
sem barn og taldi sig lélega í teikningu.
Sköpunarþörfin kom skyndilega eftir að
hún átti dóttur fyrir 17 árum. Hún byrjaði
þá að mála og yrkja Ijóð. Það var aldrei
ætlunin að þetta yrði stór þáttur í lífi
36
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 83. árg. 2007