Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Page 49
FRETTAPUNKTUR
Hjúkrunersamskiptastarfþarsemtungumáliðeraðalsamskiptatækið
og það veldur vanda í sambandi við erlent starfsfólk. Þó er vert að
geta þess að örfáar stofnanir hafa brugðist við með því að halda
námskeíð í íslensku fyrir ófaglært erlent starfsfólk.
í gegnum skólaheimsóknir til Norðurlanda hef ég komist að því
að þar eru kröfur um tungumálakunnáttu mun strangari en hér
og enginn ráðinn til umönnunarstarfa nema hann geti tjáð sig á
tungu landsins. Sjúkraliðanemar, sem hafa farið í starfsþjálfun til
Danmerkur á vegum Fjölbrautaskólans við Ármúla, hafa til dæmis
allir þurft að taka sérstakan undirbúningsáfanga í dönsku til þess að
mega starfa á dönskum sjúkrastofnunum.
Það er hvorki við erlent starfsfólk né ófaglært að sakast en þegar
kröfur um menntun, fagmennsku og kunnáttu í tungumálinu eru sí
og æ fyrir borð bornar við ráðningar í hjúkrunarstörf er eðlilegt að
virðing fyrir þeim í samfélaginu minnki.
Að lokum
Störf hjúkrunarfræðinga breytast og þróast eins og öll önnur
störf í takt við samfélagsbreytingar á hverjum tíma. Fleiri og fleiri
hjúkrunarfræðingar starfa nú utan hefðbundinna heilbrigðisstofnana
og það hefur vart farið fram hjá neinum að það vantar fleiri
hjúkrunarfræðinga til starfa í heilbrigðiskerfinu.
Flestir hjúkrunarfræðingar eru sammála um að kjarni
hjúkrunarstarfsins sé að annast sjúka, efla heilbrigði með forvörnum
og fræðslu og vinna að þekkingarþróun og hagnýtingu hennar.
En er ekki kominn tími til að hjúkrunarfræðingar sjálfir marki
sér skýra stefnu um það hvernig þeir vilji að störf þeirra þróist í
framtíðinni? Annars er hætt við að aðrir geri það.
Ég skora á Ingu Lútersdóttur hjúkrunarfræðing að skrifa næsta
þankastrik
Höfundur er kennslustjóri sjúkraliðabrautar Fjölbrautaskólans við Ármúla en
starfaði áður sem hjúkrunarfræðingur á spítölum í 16 ár.
Vegleg gjöf í Rannsöknasjóð Ingibjargar
R. Magnúsdóttur
Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur
hefur borist 300.000 kr. framlag til eflingar
sjóðsins og er gefandi Nanna Jónasdóttir
hjúkrunarfræðingur.
Nanna segir ástæðu framlags síns vera af
tvennum toga, annars vegar vegna hjartastopps
sem hún hlaut í fyrra og slapp ótrúlega vel frá
og hins vegar vegna þess merka frumkvæðis
Ingibjargar að stofna sjóð af þessu tagi sem
vakti athygli hennar og áhuga.
Nanna hlaut hjúkrunarleyfi árið 1961 og
starfaði í rúm 30 á Landspítalanum, lengst af á
handlækningadeildinni. Hún færði sig síðan yfir
á Kleppsspítalann og var hjúkrunarframkvæmda-
stjóri þar í rúm 15 ár og fór sjálf í framhaldsnám
í Nýja hjúkrunarskólanum á meðan hún vann á
Kleppi.
Tímarit hjúkrunarfræðinga fjallaði um stofnun
sjóðsins á bls. 44 í 4. tölublaði 2007. Bent hefur
verið á tvær villur í þessari umfjöllun. Stefán
Bragi, fulltrúi Ingibjargar í stjórn sjóðsins, er
Bjarnason og ekkert annað. Hildur Friðriksdóttir
er forstöðumaður Rannsóknastofnunar í
hjúkrunarfræði við Háskóla íslands og Land-
spítala. Leiðréttist þetta hér með.
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 5. tbl. 83. árg. 2007
47