Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Page 53
RITRÝNDAR FRÆÐIGREINAR
Niðurstöður
Meðalaldur sjúklinga var 83,0 +/- 7,9 ár. Vannæring var greind
hjá 35 (58%) sjúklingum með fullu næringarmati, eða 55%
karla og 61 % kvenna. Vannærðir sjúklingar höfðu lægri LÞS,
minna albúmín og prealbúmín í blóðsermi, færri eitlafrumur
í heild, þynnri húðfellingar yfir þríhöfða (triceps) og minna
ummál upphandleggsvöðva, og voru einnig eldri en vel nærðir
sjúklingar (sjá töflu 1). Þeir höfðu oftar tapað þyngd ósjálfrátt,
minni matarlyst og höfðu í fleiri tilvikum nýlega gengist undir
skurðaðgerð heldur en þeir vel nærðu. Ekki var merkjanlegur
munur á breytum karla og kvenna nema hvað konur virtust
þjást meira af lystarleysi heldur en karlar (47% á móti 23%,
p = 0,059).
Hæfni stakra breytna til að greina vannæringu hjá öldruðum
sjúklingum á sjúkrahúsinu var yfirleitt lág, að undanskildum
mælingum á heildarfjölda eitlafrumna þar sem næmi reyndist
77% og sértæki 68%.
Aðhvarfslikan
Breyturnar LÞS, ósjálfrátt þyngdartap, lystarleysi og nýleg
skurðaðgerð voru notaðar í fjölþátta línulega aðhvarfsgreiningu.
Eftirfarandi flokkunarbreytur voru notaðar: ósjálfrátt þyngdartap
(já = 0, nei = 1), skurðaðgerð nýlega (já = 1, nei = 0), lystarleysi
(já = 1, nei = 0). LÞS, ósjálfrátt þyngdartap, lystarleysi
og skurðaðgerð voru marktæk spágildi fyrir niðurstöðu úr
fullu næringarmati. R2 var 60,1%. Leif var normaldreifð
(Kolmogorov-Smirnov-próf: R = 0,915). Aðharfslíkanið hefur
áður verið sýnt (Thorsdottir o.fl., 2005).
RAi
Flestar breyturnar í RAI-mælitækinu skiptu ekki máli fyrir
rannsóknarhópinn. Ástæðan er sú að aðeins minnihluti hópsins
þurfti á næringu að halda gegnum slöngu í meltingarveg eða í
æð og það eru lykilspurningar í RAI. Aðeins 1 til 7 sjúklingar af
60 höfðu þjáðst af næringarvandamáli, sem skilgreint er með
RAI, öðru en „Fæða ekki borðuð", en ekki var mikill munur á því
vandamáli hjá vel nærðum og vannærðum sjúklingum í þessu
úrtaki. Almennar spurningar í RAI (LÞS og breyting á þyngd)
sýndu marktæk tengsl við næringarmat eins og þær gerðu í
öðrum skimunartækjum.
Til að útbúa skimunartæki, sem byggt væri á RAI-breytum, voru
LÞS, ósjálfrátt þyngdartap (merkt sem já = 1 og nei = 0) og
skurðaðgerð nýlega (merkt sem já = 1 og nei = 0) notuð í margþátta
línulega aðhvarfsgreiningu. Ekki er spurt um skurðaðgerð nýlega
í RAI-mati en auðveldlega er hægt að spyrja sjúklinginn eða finna
svarið á annan hátt. Þessi viðbót við RAI-mat eykurforspárgildi um
vannæringu verulega. LÞS, ósjálfrátt þyngdartap og skurðaðgerð
Tafla 1. Líkamsmál og klínískar mælingar hjá vannærðum og vel nærðum sjúklingum
Sjúklingar (N = 60) Meðaltal ± staðalfrávik p-gildi
Aldur (ár) vannærðir (n = 35) 85,6 ± 7,4 0,002
vel nærðir (n = 25) 79,3 ± 7,1
LÞS (kg/m2) vannærðir (n = 35) 22,9 ± 4,7 0,001
vel nærðir (n = 25) 27,2 ± 5,0
Ósjálfrátt þyngdartap vannærðir (n = 35) 46,8% 0,001
(hlutfall þeirra sem svöruðu játandi) vel nærðir (n = 25) 0,0%
Albúmín (g/L) vannærðir (n = 35) 31,7 ± 3,0 0,012
vel nærðir (n = 25) 33,9 ± 3,5
Prealbúmín (mg/L) vannærðir (n = 35) 222 ± 67 0,009
vel nærðir (n = 25) 274 ± 78
Heildarfjöldi eitlafrumna (x 109/L) vannærðir (n = 35) 1,51 ± 0,58 0,003
vel nærðir (n = 25) 2,03 ± 0,72
Ummál upphandleggsvöðva (cm) vannærðir (n = 35) 21,6 ± 4,3 0,008
vel nærðir (n = 25) 24,5 ± 3,5
Þykkt húðfellingar yfir þríhöfða (mm) vannærðir (n = 35) 17,0 ± 5,4 0,004
vel nærðir (n = 25) 22,1 ± 7,4
Skurðaðgerð nýlega vannærðir (n = 35) 20,0% 0,017
(hlutfall þeirra sem svöruðu játandi) vel nærðir (n = 25) 0,0%
Lystarleysi vannærðir (n = 35) 51,4% 0,014
(hlutfall þeirra sem svöruðu játandi) vel nærðir (n = 25) 20,0%
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 83. árg. 2007
51