Morgunblaðið - 06.04.2017, Page 1

Morgunblaðið - 06.04.2017, Page 1
F I M M T U D A G U R 6. A P R Í L 2 0 1 7 Stofnað 1913  82. tölublað  105. árgangur  HVALIRNIR FÆRÐIR NÆR GESTUNUM GLEÐIGJAF- INN ANNÝ Á AKUREYRI ÍSLENSK GRAFÍK- VERK SÝND Í NEW YORK LEIKFÉLAG MA 18 MEGAS SÝNIR OG SYNGUR 95VIÐSKIPTAMOGGINN Morgunblaðið/RAX Lækjarbrekka Bjarni veitingamaður með umslagið sem fannst á bak við ofn.  Gagngerar endurbætur hafa ver- ið gerðar á veislusölum Lækjar- brekku, Litlu-Brekku og Kornhlöð- unni. M.a. þurfti að losa ofn frá vegg við framkvæmdirnar. „Þá datt þetta umslag í fangið á okkur,“ sagði Bjarni Ingvar Árna- son veitingamaður, sem er nýtek- inn við veitingahúsinu. „Það hefur verið fermingarveisla hér 10. maí 2008 og borð fyrir gjafir sett við ofninn. Umslagið hefur dottið á bak við hann.“ Utan á umslaginu stendur „Sóley fermingarbarn“ og undir kveðjuna skrifar Berglind. Í umslaginu er peningagjöf. Bjarni vill endilega koma umslaginu til rétts eiganda. „Peningarnir hafa rýrnað frá 2008. Við viljum bæta Sóleyju það upp og bjóða henni ásamt þremur gestum hennar í mat á Lækjar- brekku. Þar fær hún umslagið sitt afhent,“ sagði Bjarni. Sóley sem fermdist 10. maí 2008 er hvött til að hafa samband við Veitingahúsið Lækjarbrekku. »30 Hver er Sóley sem fermdist 10. maí árið 2008? Morgunblaðið/Eggert Grár var vinsælasti liturinn á nýjum bílum árið 2016. Næst kom hvítur. Ökutæki á Íslandi eru orðin fleiri en íbúar á landinu, samkvæmt upplýs- ingum úr Árbók bílgreina fyrir árið 2016. Heildarfjöldi skráðra öku- tækja á Íslandi í árslok 2016 var 344.664, en þannig var fleiri en eitt ökutæki skráð á hvern íbúa að með- altali á síðasta ári. Fjölgun ökutækja frá fyrra ári var um 6% og hefur undanfarin ár verið mun hraðari en fjölgun íbúa á sama tíma. Í árbókinni segir einnig að tvöföld- un hafi orðið í fjölda gjaldþrota bíl- greinafyrirtækja árið 2016 í saman- burði við árið áður. Alls urðu 38 bílgreinafyrirtæki gjaldþrota árið 2016 en 16 árið áður. „Þetta er athyglisvert í ljósi þess að á árabilinu frá 2011 til 2015 fækk- aði gjaldþrotum í greininni á hverju ári, eða úr 40 og niður í 16 á fjögurra ára tímabili og staða bílgreina hefur almennt styrkst til muna á þessu tímabili,“ segir í árbókinni. Alls nam velta bílgreina 160 millj- örðum króna í fyrra og jókst um 20% frá árinu áður. Þá segir að árið 2016 hafi verið metár í nýskráningum bíla. »ViðskiptaMogginn Ökutæki fleiri en landsmenn  Heildarfjöldi skráðra ökutækja var 344.664 í lok árs 2016 Á hverju ári leggjast um 400 börn, 10% þeirra barna sem fæðast hvert ár, inn á vökudeild Land- spítalans. Eitt þeirra er Heiðar Már Benediktsson, sem fæddist í lok janúar eftir rúmlega 23 vikna langa meðgöngu. Foreldrar Heiðars Más, þau Ing- unn S. Friðþórsdóttir og Benedikt Birkir Hauks- son, dvelja hjá syni sínum á hverjum degi. Að mati yfirlæknis og deildarstjóra vökudeildar þyrfti tvöfalt meira húsrými fyrir deildina og þau segja að vegna fjárskorts sé deildin ekki mönnuð þeim fjölda lækna sem þarf. Nánast allur búnaður þar er keyptur fyrir gjafafé. »32-34 10% íslenskra barna fara á vökudeild Landspítalans Morgunblaðið/Golli Heiðar Már Benediktsson fæddist eftir rúmlega 23 vikna meðgöngu og vex nú og dafnar Arður veiðiréttarhafa af lax- og sil- ungsveiðihlunnindum er áætlaður 1,7 milljarðar króna á ári. Fleiri hafa hag af stangveiðum og má áætla að með óbeinum tekjum af stang- veiðimönnum skili greinin tíföldum arði veiðiréttarhafa í þjóðarbúið, eða nálægt 17 milljörðum króna. Yfir 40% arðsins til Vesturlands Alls njóta um 1.500 einstaklingar og fyrirtæki arðs af lax- og silungs- veiðihlunnindum. Langmesti arð- urinn skilar sér til Vesturlands, ekki síst Borgarfjarðar þar sem margar af bestu laxveiðiánum eru. Til lands- hlutans renna yfir 40% teknanna. „Þessar tekjur hafa verið í langan tíma ákveðið hryggjarstykki í byggðinni,“ segir Jón Helgi Björns- son, formaður Landssambands veiðifélaga. Jón nefnir Borgarfjörð, Aðaldal og Vopnafjörð sem dæmi. Hann seg- ir að flestir eigendurnir hafi annað lifibrauð, til dæmis af búskap, en það sé styrk stoð í búsetunni að hafa að- gang að laxveiðitekjunum. Nefnir hann sína sveit, Aðaldalinn, sem dæmi um það. »46-48 1.500 njóta lax- og silungsveiðihlunninda MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR SÆNGUR- FATNAÐUR SÆNGUR OG KODDAR HEILSURÚM ALLAR STÆRÐIR FUSSENEGGER Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á rúmdýnum. Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.