Morgunblaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 37
FRÉTTIR 37Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Færeyjar
Tveir fullorðnir með fólksbíl
Netverð á mann frá . . . . . . . . . . . .kr. 34.500
Danmörk
Tveir fullorðnir með fólksbíl
Netverð á mann frá . . . . . . . . . . .kr. 74.500
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík · Sími: 570-8600
Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 · info@smyril-line.is · www.smyrilline.is
Viljum við benda þeim sem hyggja á ferð með
okkur að bóka sem fyrst meðan ennþá er hægt
að finna pláss.
Bæklingurinn okkar fyrir 2017 er komin út og í
honum finnur þú frábær tilboð og verð.
Bæklinginn má nálgast á www smyrilline.is
Taktu bílinn
með í ferðalagið
til Færeyja og Danmerkur
Bókaðu
núna og
tryggðu þér
pláss
1
Bókaðusnemma ogtryggðu þér pláss
Taktu bílinnmeð í ferðalagiðFæreyjar - Danmörk - Evrópa 2017
Færeyjar2 fullorðnir
með fólksbíl
Verð á mann frá34.500
Danmörk
2 fullorðnir
með fólksbíl
Verð á mann frá
74.500
570 8600 / 470 2808 · www.smyrilline.is
Mikið er bókað nú þegar með Norrænu á næsta ári. Því er mikilvægt fyrir þá sem ætla að ferðast
með Norrænu að bóka sig sem fyrst og tryggja sér pláss á meðan enn er laust pláss.
Aðeins25% núna,eftirstöðvarmánuði fyrirbrottför
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Birgir Ármannsson, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
segir að Brynjar Níelsson, formað-
ur stjórnskipunar- og eftirlits-
nefndar, muni áfram gegna for-
mennsku í nefndinni, þótt forræði
við vinnslu með skýrslu Rannsókn-
arnefndar Alþingis um einkavæð-
ingu Búnaðarbankans, verði í hönd-
um Jóns Steindórs Valdimarssonar,
1. varaformanns nefndarinnar.
„Það er ekki verið að skipta um
formann í nefndinni. Þetta snýst
ekki um formennskuna, heldur
snýst þetta um það, að í einstökum
málum geti nefnd valið svokallaðan
framsögumann, til þess að stýra
meðferð máls,“ sagði Birgir í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. „Það
sem fundur stjórnskipunar- og eft-
irlitsnefndar snérist um í gær, var
að niðurstaða fundarins varð sú, að
Jón Steindór Valdimarsson, yrði
framsögumaður málsins, alla vega
um sinn,“ sagði Birgir.
Skilja mátti frétt RÚV í gær-
morgun á þann veg RÚV að Brynj-
ar væri hættur formennsku og Jón
Steindór Valdimarsson, þingmaður
Viðreisnar, hefði tekið við for-
mennsku.
„Þetta er röng frétt. Ég hef ekki
tekið við formennsku í nefndinni,“
sagði Jón Steindór í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Hið rétta er
að nefndin fól mér forræði þessa til-
tekna máls (skýrslu Rannsókn-
arnefndar Alþingis) í nefndinni og
framsögu,“ sagði Jón Steindór.
Brynjar Níelsson, formaður
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar,
var verjandi Bjarka Diego áður en
hann tók sæti á Alþingi. Bjarki
gegndi lykilhlutverki í gerð leyni-
legra baksamninga í tengslum við
kaup Ólafs Ólafssonar og fleiri í
Búnaðarbankanum, samkvæmt því
sem fram kemur í skýrslu Rann-
sóknarnefndar Alþingis.
Það er ekki verið að skipta um formann
Jón Steindór, fyrsti varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, verður framsögumaður
Brynjar
Níelsson
Jón Steindór
Valdimarsson
Gefin hefur verið út reglugerð um
hrognkelsaveiðar í ár og er leyfileg-
ur fjöldi veiðidaga á vertíðinni 36.
Það er fjölgun um fjóra veiðidaga frá
síðustu árum og er ákvörðunin í
samræmi við tillögur Lands-
sambands smábátaeigenda.
Hafrannsóknastofnun lagði til að
loknum mælingum í vor að aflinn
færi ekki umfram 6.355 tonn, sem er
445 tonnum minna en miðað var við í
fyrra. Þá var ráðgjöf stofnunarinnar
um að hámarksveiði á grásleppu
yrði 6.800 tonn, en aflinn varð um
5.400 tonn.
Mörg undanfarin ár hafa grá-
sleppuveiðar verið leyfðar í 32 daga.
Aflinn hefur hins vegar sveiflast frá
um 4.200 tonnum í um 6.300 tonn.
Veiðarnar eru bundnar sérstökum
leyfum og hefur það verið breytilegt
frá ári til árs hversu margir hafa
nýtt leyfi sín og meðal annars farið
eftir verði fyrir afurðir. aij@mbl.is
Veiðidögum
fjölgað á
grásleppu
Með nýrri reglugerð sjávarútvegs-
ráðuneytisins hafa heimildir til að
flytja aflaheimildir á milli ára verið
auknar úr 15% í 30%. Ákvæði í nýrri
reglugerði er svohljóðandi: „Heimilt
er að flytja allt að 30% af aflamarki
hverrar botnfisktegundar frá fisk-
veiðiárinu 2016/2017 yfir á fisk-
veiðiárið 2017/2018.
Ástæður þessa eru þær að lítill afli
barst á land í rúmlega tveggja mán-
aða verkfalli sjómanna í vetur. Því
voru auknar líkur á að útgerðir
næðu ekki að veiða heimildir sínar
og þær gætu fallið niður á milli ára.
Í yfirliti á vef Fiskistofu 22. mars
kom fram að á fyrri helmingi yfir-
standandi fiskveiðiárs veiddu íslensk
skip tæplega 31 þúsundi tonna
minna af þorski úr sjó en á fyrra ári.
Samdráttur í ýsuafla var um 7,5 þús-
und tonn. Heildaraflinn í botnfiski
var á fyrri helmingi fiskveiðiársins
tæp 176 þúsund tonn upp úr sjó en
var 240 þúsund tonn á sama tímabili
í fyrra. Þetta er samdráttur upp á
27%. aij@mbl.is
Heimilt að
flytja 30%
á milli ára
Lítill afli á land í
verkfalli sjómanna
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Grindavík Ólafur Sigurðsson við
löndun, en aflabrögð hafa verið góð.