Morgunblaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Verði frumvarp félags- og jafnrétt-
ismálaráðherra um jafnlaunavottun
að lögum á vorþinginu, eins og
stefnt er að, ná þau til 1.180 fyr-
irtækja og stofnana og alls um 147
þúsund launamanna, sem jafngildir
um 80% þeirra sem virkir eru á
vinnumarkaði, skv. nýjustu tölum
Hagstofunnar. „Því má leiða að því
líkur að þær breytingar sem lagðar
eru til í frumvarpi þessu muni vega
þungt í þeirri viðleitni stjórnvalda
að uppræta kynbundinn launamun,“
segir í greinargerð frumvarpsins.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdasstjóri SA, segir
spurður álits á frumvarpinu að
niðurstaðan sé skynsamlegri en
lagt var upp með. Meðal annars sé
nú búið að setja skynsamlegri
stærðarflokkanir inn í frumvarpið.
Vegna þess hvernig jafnlaunastað-
allinn er úr garði gerður geta kom-
ið upp mjög flókin vandamál í
litlum fyrirtækjum að sögn hans.
Erfitt geti t.d. reynst að taka með-
altöl af tveimur starfsmönnum sem
eru í sama flokki starfa og ráða
þarf fram út fleiri praktískum úr-
lausnarefnum.
Öll fyrirtæki og stofnanir með 25
starfsmenn eða fleiri munu þurfa að
innleiða jafnlaunastaðalinn sem
miðað verður við og fá endurnýjaða
jafnlaunavottun á þriggja ára fresti.
Eins og fram hefur komið er nú
gert ráð fyrir að samtökum aðila
vinnumarkaðarins verði heimilt
með kjarasamningum að kveða á
um að fyrirtæki eða stofnanir með
25-99 starfsmenn (alls 868 launa-
greiðendur) geti öðlast jafn-
launavottun með staðfestingu
þeirra á því að jafnlaunakerfi fyr-
irtækja og framkvæmd þess full-
nægi skilyrðum jafnlaunastaðalsins.
Ekki hefur verið gengið frá gerð
kjarasamnings milli aðila vinnu-
markaðarins um hvernig þau munu
annast úttektir á jafnlaunakerfum
fyrirtækja og stofnana eða annast
eftirlit.
Þetta þýðir að fyrirtæki og stofn-
anir með 25-99 starfsmenn hafa val
um hvora úttektarleiðina þau kjósa
að fara, þ.e. hvort faggiltur vott-
unaraðili sjái um úttekt á jafn-
launakerfi á hverjum vinnustað og
gefi út vottunarskírteini ef þau upp-
fylla kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST
85, eða þá að samtök vinnumark-
aðarins annist úttektina og staðfesti
hvort fyrirtæki og stofnanir upp-
fylla kröfur jafnlaunastaðalsins.
Er samtökum vinnumarkaðarins
einnig ætlað stórt hlutverk við að
annast eftirlit með því að fyrirtæki
og stofnanir með 25 eða fleiri
starfsmenn öðlist jafnlaunavottun
og að hún sé endurnýjuð á þriggja
ára fresti. Nái þau ekki samningum
um þetta kemur það væntanlega í
hlut Jafnréttisstofu.
Frumvarpið kveður á um að til
að gera samtökum aðila vinnumark-
aðarins kleift að sinna eftirlitinu
verða hlutaðeigandi fyrirtæki og
stofnanir skylduð til að veita sam-
tökum aðila vinnumarkaðarins þær
upplýsingar og gögn sem samtökin
telja nauðsynleg til að sinna eftirlit-
inu.
Jafnréttisstofa heldur skrá
Jafnréttisstofu er einnig ætlað
veigamikið hlutverk. Hún fær vott-
unarskírteinin ásamt skýrslu um
niðurstöðu úttekta og heldur skrá
yfir þau fyrirtæki og stofnanir sem
hafa fengið jafnlaunavottun og á að
birta hana á vef stofnunarinnar.
„Enn fremur er gert ráð fyrir að
Jafnréttisstofa haldi skrá yfir fyr-
irtæki og stofnanir með 25 eða fleiri
starfsmenn sem hafa ekki öðlast
jafnlaunavottun og er lagt til að
samtökum aðila vinnumarkaðarins
verði veittur aðgangur að skránni,“
segir í skýringum.
Ef fyrirtæki eða stofnun fær ekki
jafnlaunavottun eða hefur ekki end-
urnýjað vottunina innan áskilins
frests geta samtök aðila vinnu-
markaðarins tilkynnt það til
Jafnréttisstofu og hún gefið fyr-
irmæli um úrbætur innan hæfilegs
frests að viðlögðum dagsektum.
Dagsektir Jafnréttisstofu geti num-
ið allt að 50.000 kr. hvern dag.
Innleiða á jafnlaunavottunina í
áföngum á þriggja ára tímabili, og
veita atvinnulífinu þar með svigrúm
til að bregðast við þeim kröfum
sem lagðar verða á stofnanir og
fyrirtæki. Veittir eru þrír mismun-
andi frestir eftir fjölda starfs-
manna. Er lagt til að fyrirtæki og
stofnanir þar sem starfsmenn eru
250 eða fleiri hafi öðlast vottun eigi
síðar en þann 31. desember 2018 en
minni fyrirtæki fá lengri frest.
Nær til 1.180 fyrirtækja og stofnana
Flókin vandamál geta komið upp í minni fyrirtækjum við innleiðingu jafnlaunavottunar
Endurnýja þarf jafnlaunavottunina á þriggja ára fresti Dagsektir geta orðið allt að 50 þúsund
Fjöldi launagreiðenda og launþega í nóvember 2016
Fyrirtæki og stofnanir með 25 eða fleiri starfsmenn sem þurfa
að fá jafnlaunavottun eða staðfestingu hagsmunaaðila.
Heimild: Hagstofa Íslands og Samtök atvinnulífsins
Starfsmannafjöldi
launagreiðenda
Fjöldi
launagreiðenda
Fjöldi
launamanna
25-49 557 18.900
50-100 311 21.000
101-250 194 29.700
251- 118 77.300
Samtals 1.180 146.900
25-100 868 39.900
101- 312 107.000
Niðurstöður kannana á kyn-
bundnum launamun hafa verið á
reiki en í greinargerð frum-
varpsins er fullyrt að hann sé
viðvarandi vandi á íslenskum
vinnumarkaði. Þó að hann hafi
farið minnkandi megi telja víst
að honum verði ekki útrýmt
nema með aðgerðum. Vitnað er
m.a. í rannsóknir sem sýni að á
almenna vinnumarkaðnum hafi
kynbundinn launamunur verið
7,8% en 7% hjá hinu opinbera.
Nokkru minni munur kom þó
fram í ítarlegri rannsókn sem
Sigurður Snævarr hagfræðingur
vann fyrir aðgerðahóp stjórn-
valda og aðila vinnumarkaðar-
ins árið 2015. Þar var óskýrður
launamunur metinn 5,9% árin
2008–2012 og 5,1% 2011–
2013. „Óskýrður launamunur
felur í sér þann hluta launamun-
ar sem skýribreytur og mats-
aðferð skýra ekki. Aðrar skýri-
breytur og aðrar aðferðir gætu
þannig skilað allfrábrugðinni
niðurstöðu. Varlega þarf því að
fara í að túlka óskýrðan launa-
mun sem hreina launa-
mismunun,“ sagði þar.
Fara þarf var-
lega í túlkun
LAUNAMUNUR KYNJA
www.n1.is facebook.com/enneinn
Hjólbarðaþjónusta N1
Bíldshöfða 440-1318
Fellsmúla 440-1322
Réttarhálsi 440-1326
Ægisíðu 440-1320
Langatanga Mosfellsbæ 440-1378
Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374
Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372
Dalbraut Akranesi 440-1394
Réttarhvammi Akureyri 440-1433
Opið
mán–fös kl. 08-18
laugardaga kl. 09-13
www.n1.is
Michelin CrossClimate
Sérhönnuð fyrir norðlægar slóðir.
Dekk sem hentamargbreytilegum
íslenskum aðstæðum sérlega vel
og veita frábæra aksturseiginleika.
Michelin Energy Saver
Margverðlaunuð fyrir veggrip,
endingu og eldsneytissparnað.
Michelin Primacy 3
Einstakir aksturseiginleikar.
Frábært grip og góð vatnslosun.
Ein bestu sumardekkin
ámarkaðnum í dag.
Hluti af vorinu
Rúllaðu inn í sumarið
á nýjum dekkjum
Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is