Morgunblaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 62
Marta María
martamaria@mbl.is
Kristrún ákvað að verða snyrti-
fræðimeistari þegar hún var ung-
lingur á Ísafirði.
„Ég man fyrst eftir því að langa
til þess að læra snyrtifræði þegar
ég var unglingur á Ísafirði þar sem
ég bjó. Ég dáðist alltaf að snyrti-
fræðingnum í bænum og fannst hún
svo flott kona. Ég hef alla tíð haft
mikinn áhuga á útliti, tísku og öllu
sem því við kemur,“ segir Kristrún,
sem er algerlega í draumastarfinu.
Auk þess að sinna hefðbundnum
snyrtifræðingaverkefnum er hún
sérfræðingur í LPG-meðferðum.
Áður en meðferð hefst klæðir fólk
sig í teygjanlegan heilgalla.
„Meðferðarhaus með sogi og
nuddi er rennt yfir líkamann með
ákveðnum hreyfingum, allt til þess
að ná fram hámarksárangri á með-
an viðskiptavinurinn slakar á,“ segir
Kristrún.
Hún segir jafnframt að hægt sé
að velja sér mismunandi prógrömm
eftir því sem fólk sækist eftir.
„Hægt er að fara í ummáls-
minnkun eða grenningu. Með því að
nota tækið náum við að vinna að
ummálsminnkun á fyrir fram
ákveðnum svæðum líkamans sem
oft geta verið erfið, eins og til dæm-
is handleggir, bak, kviður, mitti,
rass og læri. Það er gert með því að
örva fitufrumur líkamans til þess að
losa um fitu á náttúrulegan hátt.
Svo er hægt að fara í meðferð við
appelsínuhúð. Þá erum við að örva
húðina og fituvef líkamans til þess
að mýkja upp og slétta úr hruf-
óttum frumum. Á sama tíma losum
við um fitusöfnun á svæðinu og örv-
um blóðflæði til svæðisins og kom-
um sogæðakerfinu í gang. Þeir sem
vilja þéttingu húðarinnar koma líka
í LPG-meðferðir. Þar erum við að
örva yfirborð húðarinnar til þess að
vekja upp þær frumur líkamans
sem bera ábyrgð á framleiðslu
kollagens og elastíns, sem svo aftur
eykur teygjanleika húðarinnar og
viðheldur stinnleika,“ segir Krist-
rún.
Kristrún segir að meðferðin virki
líka vel til að auka vatnslosun í lík-
amanum.
„Með þessu erum við fyrst og
fremst að örva sogæðakerfi lík-
amans til þess að losa líkamann við
úrgangsefni sem safnast upp og
mynda bólgur og bjúg ásamt því að
örva blóðflæðið. Svo hefur fólk með
gigt líka verið mjög hrifið af þessari
meðferð bæði hér heima og erlend-
is. Þetta virðist létta á verkjum sem
fylgja mörgum gigtarsjúkdómum
með því að mýkja upp og örva blóð-
flæði, til dæmis hafa fjölmargir
vefjagigtarsjúklingar fundið já-
kvæðan mun eftir meðferð með
tækinu.“
Hvað finnst þér LPG-tækið gera
fyrir þig?
„Mér finnst tækið frábært í alla
staði og nýti mér það gjarnan til
þess að losa um bjúg, til dæmis eftir
flug, og svo hef ég líka nýtt mér það
til þess að hjálpa til við að minnka
appelsínuhúð, en meðferðin okkar
við appelsínuhúð með LPG-tækinu
er eina sogæðameðmeðferðin í
heiminum sem hefur fengið vottun
frá FDA, eða lyfjaeftirliti Banda-
ríkjanna,“ segir Kristrún.
Hún segir að lýtalæknar mæli
með meðferð í LPG-tækinu eftir
fitusog og svuntuaðgerðir.
„Við hjá Blue lagoon spa höfum
fengið sérþjálfum í að meðhöndla
fólk eftir þessar aðgerðir. Eftir fitu-
sog og svuntuaðgerðir hafa læknar
víðs vegar um heim mælt með LPG-
meðferð til þess að hjálpa til við að
flýta fyrir náttúrulegu viðgerð-
arferli líkamans. Meðferðina sér-
sníðum við að þörfum hvers og eins
eftir því hvar aðgerðin var fram-
kvæmd.
Eftir fitusog myndast bólgur í lík-
amanum sem hjaðna hægt og rólega
en það ferli getur oft tekið langan
tíma og það sem við gerum er að
mýkja upp þessi svæði með nuddi
frá tækinu og að örva sogæðakerfi
líkamans til þess að losa líkamann
við þessar uppsöfnuðu bólgur.
Svuntuaðgerðir mynda einnig
bólgur og við vinnum á þeim með
saman hætti og eftir fitusog en við
það bætist að við flýtum fyrir gró-
andanum á skurðinum með því að
örva blóðflæði til svæðisins og þá
minnkum við einnig líkurnar á því
að örvefurinn þykkni og verði út-
stæður.“
Vatnslosandi og bólgueyðandi meðferð
Hver þráir ekki stinn appel-
sínuhúðarlaus læri og tón-
aða upphandleggi? Kristrún
Sif Gunnarsdóttir snyrti-
fræðimeistari í Blue lagoon
spa segir að það sé alltaf að
færast í vöxt að fólk nýti sér
LPG-meðferðina, ekki bara
til að líta betur út heldur
líka eftir lýtaaðgerðir og til
að örva blóðflæðið í lík-
amanum. Hún segir að
meðferðin njóti mikilla vin-
sælda ekki bara vegna ár-
angursins heldur líka vegna
þess að meðferðin er ekki
sársaukafull.
Morgunblaðið/Golli
Góður árangur Kristrún mælir með því að fólk komi í fimm til tíu tíma til að byrja með en viðhaldi svo árangrinum með því að koma einu sinni í mánuði.
Með vottun LPG er eina
sogæðameðmeðferðin í
heiminum sem hefur
fengið vottun frá FDA,
lyfjaeftirliti Bandaríkj-
anna.
62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Ný glæsileg
heimasíða
acredo.is
Hátúni 6a Sími 577 7740
carat.is acredo.is
Trúlofunarhringir
fh
Giftingarhringir
fh
Demantsskartgripir
DIMMALIMM
Ný sending
frá
Kjóll kr. 6.295
Str. 128-162
DimmalimmReykjavik.is
Kjólar
Peysur
Buxur
Sumarjakkar
Skírnagjafir
Skírnaföt
Afmælisgjafir
Páskagjafir
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17