Morgunblaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 6.990.- m2
SVIÐSLJÓS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Nýfætt barn liggur í glærri plast-
vöggu undir einhverju sem helst lík-
ist litlum ljósabekk, annað kríli í
ljósbleikum galla sefur vært og rótt
undir hvítri sæng og dæsir af og til í
svefnrofunum. Í vöggum og hita-
kössum liggur á annan tug ný-
fæddra barna, sum fædd talsvert
fyrir tímann, tengd við allskonar tól
og tæki sem blaðamaður og ljós-
myndari Morgunblaðsins kunna
engin skil á. Hjá mörgum þeirra eru
foreldrar og aðrir aðstandendur.
Einhvern veginn svona er umhorfs á
vökudeild Landspítalans um hádeg-
isbil á þriðjudaginn.
Á hverju ári leggjast um og yfir
400 börn, um 10% allra barna sem
fæðast hér á landi, inn á deildina,
sem er gjörgæsludeild fyrir fyr-
irbura, nýbura og ungbörn. Sum
hafa þar nokkurra klukkustunda
viðdvöl, önnur dvelja á deildinni í allt
að fimm mánuði og dvalartíminn
getur verið allt þarna á milli. Deildin
er á 3. hæð Barnaspítala Hringsins,
þar eru 22 rúm og að auki er eitt
rúm í einangrunarherbergi. Á deild-
ina koma börn sem þurfa t.d. önd-
unarstuðning, lyfjameðferðir eða
sértækar meðferðir vegna vanda-
mála sem upp koma hjá fyrirburum.
Deildin skiptist í þrjú rými. H1
þar sem veikustu börnin leggjast inn
og þau sem þurfa á öndunarvél-
armeðferð að halda, þar eru fjögur
rúm. H2, þar sem flest börnin leggj-
ast inn til mats og meðferðar og þar
eru sex rúm. Á vinstri væng deild-
arinnar, sem einnig kallast „vaxt-
arræktin“, eru rúm fyrir 12 börn
sem eru vel á veg komin í átt til
heilsu. Á vökudeild er einnig dag-
deildarþjónusta sem sinnir nýburum
sem þurfa ýmiss konar eftirlit, t.d. í
kjölfar erfiðrar fæðingar eða sýkla-
lyfjameðferðar, en þarfnast ekki
innlagnar yfir nótt. Tæplega 700 ný-
burar koma á dagdeildina á ári
hverju.
Áður dóu þessi börn
Vökudeildin var stofnuð árið 1976.
Áður var engin sérhæfð nýbura-
gjörgæsla hér á landi, en þegar tveir
íslenskir læknar, þeir Atli Dag-
bjartsson og Hörður Bergsteinsson,
og hjúkrunarfræðingurinn og ljós-
móðirin Ragnheiður Sigurðardóttir
komu erlendis frá úr sérnámi var
hægt að hefja þá sérhæfðu meðferð
sem veitt er á deildinni. Fram að því
var vöggustofa inn af kvennadeild
Landspítalans, þar sem nýburar
voru í súrefni og hitakössum, þar var
einnig hægt að skipta um blóð í
börnum, en öndunarvélameðferð og
önnur gjörgæslumeðferð fyrir ung-
börn var ekki í boði. „Þau börn, sem
þurftu á því að halda, dóu því áður
en deildin tók til starfa,“ segir Þórð-
ur Þórkelsson, yfirlæknir deild-
arinnar.
Pípandi tæki og hátækni
Sjúkrahúsdvöl er líklega ekki það
sem verðandi foreldrar sjá fyrir sér
fyrstu daga nýfædds barns. Margrét
Thorlacius, hjúkrunardeildarstjóri
vökudeildar, segir algengt að for-
eldrar upplifi óöryggi og ótta þegar
nýfætt barn þeirra þarf að leggjast
inn á vökudeild. „Það er eðlilegasti
hlutur í heimi. Fólk áttar sig oft ekk-
ert á því hvað er að gerast og þetta
er alls ekki það sem það sér fyrir sér
að gerist. Hérna pípa alls konar
tæki, þetta er hátækniumhverfi og
skiljanlegt að fólki bregði.“ Þórður
tekur undir þetta. „Í þessu er svo
mikilvægt að tala saman, að ræða við
foreldrana þannig að þeir séu með-
vitaðir um allt sem er að gerast. Það
skiptir öllu máli,“ segir hann.
Á deildinni eru tvö foreldra-
herbergi sem foreldrar geta gist í og
að auki fær deildin afnot af einu her-
bergi á annarri deild um helgar fyrir
foreldra. Að sögn Margrétar er nýt-
ingin á þessum herbergjum 100%.
„Þörfin á þessari aðstöðu er mikil og
óskastaðan er að vera eingöngu með
einbýli þar sem hvert barn hefur
sína stofu og foreldrar geta verið þar
hjá barninu sínu.“ „Sú þróun hefur
orðið í nágrannalöndunum að for-
eldrar séu sem mest með börnunum
sínum á sjúkrahúsum,“ segir Þórð-
ur. „Það væri auðvitað æskilegt að
við gætum þróast í sömu átt.
Verður áfram í sama húsi
Spurð hvort stefnt sé að slíku fyr-
irkomulagi á nýjum Landspítala
segja Margrét og Þórður svo vera,
en ekki liggur annað fyrir en að
deildin verði áfram starfrækt í húsi
Barnaspítalans hvað sem öðrum
áformum um staðsetningu nýs
Landspítala líður. „Við sjáum fyrir
okkur að við þurfum tvöfalt meira
rými þegar nýr Landspítali verður
til svo við getum framfylgt þeim
væntingum sem við höfum til starf-
seminnar,“ segir Þórður.
Gríðarlega góður árangur
Á deildinni starfa 7-8 nýbura-
læknar, um 50 hjúkrunarfræðingar
og ljósmæður, þar af 20 með ýmiss
konar sérnám, auk eins sjúkraliða
og sérhæfðra starfsmanna. Þau
Margrét og Þórður segja starfsemi
deildarinnar koma vel út í sam-
anburði við ungbarnagjörgæslu í
öðrum löndum og þar komi margt
til. „Við erum með jafnhæft og jafn-
vel menntað starfsfólk og í öðrum
löndum. Árangur okkar er gríð-
arlega góður, en hann er að mestu
leyti mældur í tíðni ungbarnadauða
sem hér á landi er sá minnsti í
heimi,“ segir Þórður.
Margrét segir að tækjabúnaður
deildarinnar sé vel samanburð-
arhæfur við það sem best gerist í
þeim löndum sem við berum okkur
gjarnan saman við. Nánast hvert
einasta tæki og tól á deildinni er
þangað komið fyrir tilstilli gjafafjár
og kemur meirihluti þess frá Kven-
félaginu Hringnum sem hefur gefið
mest af þeim tækjum og búnaði sem
deildin hefur yfir að ráða, en einnig
hafa einstaklingar, félagasamtök og
fyrirtæki látið fé af hendi rakna til
deildarinnar. „Við búum við þann
lúxus að þurfa nánast ekki að kaupa
neitt sjálf,“ segir Þórður. „Þessi
deild hefur algera sérstöðu innan
Landspítalans hvað þetta varðar.
Við eigum heldur betur marga vini
og velunnara.“ „Þessi deild varð til
fyrst og fremst vegna gjafafjár og
vegna þess er hún jafn öflug og raun
ber vitni,“ segir Margrét.
En er ekki eitthvað skrýtið við
það fyrirkomulag að gjörgæsludeild
á sjúkrahúsi, sem rekið er fyrir
skattfé almennings, þurfi að treysta
svo mikið á gjafafé? „Jú, það ætti
kannski ekkert að vera þannig. En
þetta er sá veruleiki sem við búum
við,“ svarar Margrét.
40% eru fyrirburar
Um 40% skjólstæðinga deild-
arinnar eru fyrirburar og að sögn
Þórðar fæðast þeir yngstu á 23. viku
meðgöngu. Algengt er að börn, sem
fæðast svo snemma á meðgöngu, séu
Við upplifum reglulega gleði og sorg
Um 10% allra nýbura á Íslandi fara á vökudeild Þyrftu tvöfalt meira rými Nánast allur bún-
aður er keyptur fyrir gjafafé Ekki fjármagn til að manna deildina með þeim fjölda lækna sem þarf
Morgunblaðið/Golli
Vökudeild Á hverju ári leggjast um og yfir 400 börn inn á deildina, sem er gjörgæsludeild fyrir fyrirbura, nýbura og ungbörn. Börnin eru þar mislengi.