Morgunblaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 18
18 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Enn er bætt um betur með nýju
ReSound heyrnartækjunum
sem gefa eðlilega og
áreynslulausa heyrn.
Taktu þátt í framþróuninni og
prófaðu þessa hágæða tækni.
Aldrei
hefur verið
auðveldara
að heyra
GOLDEN
LOBE
AWARDS
2014
ASSOCIATION OF
INDEPENDENT
HEARING HEALTHCARE
PROFESSIONALS
Most Innovative
Concept 2014
presented to:
Resound - LiNX
made for iPhone
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Mannfræðifélag Íslands efnir í sam-
starfi við námsbraut í mannfræði við
Háskóla Íslands til málþingsins Upp-
lifun flóttafólks og hælisleitenda
ásamt móttöku heimamanna. Mál-
þingið er haldið kl. 16.30-18.30 í dag,
6. apríl, í stofu 201 í Árnagarði.
Kristján Þór Sigurðsson mann-
fræðingur reifar þætti sem tengjast
hugtakinu íslamófóbíu, eða íslams-
fæð, en hugtakið og birtingarmyndir
þess hafa verið áberandi í umræðu
um flóttafólk, hælisleitendur og inn-
flytjendur.
Hverflugleiki ungra sýrlenskra
flóttamanna í Aþenu nefnist erindi
Árdísar Kristínar Ingvarsdóttur,
mannfræðings og félagsfræðings,
um flóknar lagalegar, félagslegar og
menningarlegar áskoranir ungra
karla sem komið hafa til Aþenu sem
flóttamenn frá Sýrlandi.
Í erindinu Ég er ekki sá sem þú
heldur að ég sé fjallar Anna Lára
Steindal heimspekingur um hvernig
takmarkað sjónarhorn þeirra sem
vinna með flóttafólki getur verið
hamlandi.
Loks segja Aizar Nakour og Enas
Abo Hassoun, flóttamenn á Íslandi,
frá flótta sínum, ástæðum og reynslu
sinni í nýju landi
Mannfræðifélag Íslands í samstarfi við Háskóla Íslands
Upplifun flóttafólks og hælis-
leitenda og móttökurnar
AFP
Móttökur Flóttamenn frá stríðshrjáðum löndum fá mismunandi móttökur.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Akureyringar og nær-sveitamenn sem og margirhéðan og þaðan af landinubíða árlegrar leiksýningar
Leikfélags Menntaskólans á Ak-
ureyri, LMA, ávallt með nokkurri
eftirvæntingu. Stóra stundin rann
upp um liðna helgi
þegar Söngleikurinn
Anný var frumsýndur
fyrir fullu húsi undir
styrkri stjórn Heru
Fjord.
„Mér sýndist
áhorfendur vera í skýj-
unum, sumir gengu út
með tár á hvarmi,“
segir leikstjórinn.
„Ekki vegna þess að
sagan sé svona sorg-
leg, þvert á móti endar
hún hamingjusamlega.
Áhorfendur voru ein-
faldlega snortnir af hæfileikum lista-
fólksins,“ bætir hún við til að fyr-
irbyggja misskilning.
Um 90 nemendur; 25 leikarar, 8
dansarar, 10 manna hljómsveit, bún-
inga-, leikmynda-, markaðs-, og hár-
og förðunarteymi, taka þátt í upp-
færslunni. Sjálfri komu Heru fjöl-
breyttir hæfileikar hópsins mjög á
óvart. „Einvalalið. Fimmtíu nem-
endur með góðar söngraddir. Ég
trúði varla mínum eigin eyrum og
hélt fyrst að það væri eitthvað í vatn-
inu hér fyrir norðan,“ segir hún í
gríni.
Lék Dúu kokk í London
Hera útskrifaðist sem leikstjóri
og leikari frá Kogan Academy of
Dramatic Arts í London árið 2015 og
er Anný frumraun hennar í leikstjórn
hér á landi. Áður hafði hún leikstýrt
ýmsum sýningum í London, en þar
stofnaði hún, ásamt breskri skóla-
systur sinni, eftir út-
skrift leikhúsfyrirtækið
This & That Produc-
tions.
„Leikfélagið hafði
alla þræði í hendi sér
með val á leikriti, ég
gaf einungis fagmann-
legt álit. Mér leist vel á,
enda þekkti ég verkið
ágætlega, bæði lék ég
kokkinn Dúu í leiklist-
arskólanum fyrir
nokkrum árum og hafði
séð bíómyndina Annie
frá 1982. Undirbún-
ingur hófst í október og mitt fyrsta
verk var að stytta og breyta lítillega
handriti í þýðingu Gísla Rúnars Jóns-
sonar, sem notað var í uppfærslu
verksins í Austurbæ fyrir mörgum
árum. Helsta breytingin fólst í að
Anný á Akureyri á engan hund og því
urðum við að breyta senunni þar sem
hún syngur fyrir hann Á morgun, eitt
aðallagið í söngleiknum. Þess í stað
syngur okkar Anný lagið fyrir heim-
ilislaust fólk í New York.“
Þaðan er Anný, eða Annie, sem
fyrst kom fram í teiknimyndasögunni
Little Orphan Annie, árið 1924. Síðan
hefur hún víða farið, m.a. hafa verið
gerðar um hana tvær bíómyndir og
settir upp margir söngleikir um
þessa hjartahlýju stúlku.
Í kreppuhrjáðri borg
Sagan gerist á fjórða áratug síð-
ustu aldar og fjallar um hina 11 ára
Anný, sem býr við hrörlegar að-
stæður á munaðarleysingjaheimili í
New York. Eftir að hinn vansæli
milljarðamæringur Daníel Ólíver
tekur hana að sér í tvær vikur til að
bæta ímynd sína dregst hún inn í
skemmtilega atburðarás og breiðir
um leið út gleði og hlýju í kreppu-
hrjáðri New York-borg.
Til þess að gera sér í hugarlund
andrúmsloftið í borginni, hvatti Hera
leikhópinn til að sökkva sér niður í
lestur heimilda frá þessum tíma.
„Auk Anný og Daníels Ólívers,
kemur Fríða, ritari milljarðamær-
ingsins, mikið við sögu að ógleymdri
vondu skessunni Karítas, sem rekur
munaðarleysingjaheimilið. Söngleik-
urinn Anný er fyrir alla fjölskylduna,
tóninn er jákvæður og glaðlegur,
enda færir Anný birtu í líf allra
þeirra sem hún kynnist,“ segir Hera.
Eftir að hafa skilað Anný á sviðið í
öruggum höndum leikhópsins, hefur
hún snúið sér að handriti einleiks um
langalangömmu sína, Kristínu Dal-
sted, veitingakonu í Reykjavík til
fimmtíu ára. „Einleikur sem ég ætla
að flytja á Act Alone-hátíðinni á Suð-
ureyri í ágúst ásamt Sigrúnu Harð-
ardóttur tónlistarkonu,“ segir hún.
Munaðarleys-
inginn Anný
breiðir út gleði
Hera Fjord þreytti frumraun sína sem leikstjóri á Ís-
landi í söngleiknum Anný, sem Leikfélag Mennta-
skólans á Akureyri setti á fjalir Samkomuhússins um
liðna helgi með þátttöku um 90 nemenda skólans.
Öllum var klappað lof í lófa. Örfáar sýningar eftir.
Ljósmyndir/Jón Björnsson
Kreppa Ingvar, Valgerður, Símon, Bergþóra og Freyr sem kreppulýður.
Söngleikurinn Anný er sýndur í
Samkomuhúsinu á Akureyri um
helgina, 7. og 8. apríl, og aðra
helgi 21. og 22. apríl. Miðasala á
tix.is og mak.is.
Góð stúlka Hekla Liv
Maríasdóttir leikur
munaðarleysingjann
Anný sem er hvers
manns hugljúfi.
Leikstjórinn Hera Fjord.
Með milla Ester Alda, Hekla og Ívan
sem Fríða, Anný og Daníel Ólíver.
Kútur og Karítas Elmar Blær Arn-
arsson leikur Kút og Agla Arn-
ardóttir skassið Karítas, forstöðu-
mann munaðarleysingjaheimilisins.