Morgunblaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
lÍs en ku
ALPARNIR
s
www.alparnir.is
P
P
Góð gæði
Betra verð
ÁRMÚLA 40 | SÍMI 534 2727
Páskasprengja
30-50%afsláttur
Skíðafatnaður
og skíðabúnaður
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Í nýrri fjármálaáætlun ríkisins fyr-
ir árin 2018 til 2022 er boðað að
keyptar verði þrjár björgunarþyrl-
ur fyrir Landhelgisgæsluna.
Stefnt er að
því að bjóða
þyrlukaupin út á
næsta ári, 2018,
en „búið að
byggja inn í út-
gjaldaramma
málefnasviðsins
fyrir árin 2019-
2022 framlög til
kaupa á nýjum
þyrlum sem
nema samtals ríf-
lega 14 milljörðum króna,“ eins og
segir orðrétt í fjármálaáætluninni.
Starfshópur sem skilaði skýrslu
til innanríkisráðherra í fyrra taldi
það skynsamlegasta kostinn að
Landhelgisgæslan hefði yfir að
ráða þremur þyrlum sem væru all-
ar hliðstæðar að stærð og getu og
þær þyrlur sem LHG hefur yfir að
ráða í dag.
Halldór B. Nellett, einn reynd-
asti skipherra Landhelgisgæslunn-
ar, segist fagna þessari ákvörðun.
En hann vill að farið verði í útboð
strax en ekki beðið fram á næsta ár.
Halldór segir að vegna olíu-
kreppunnar sem reið yfir heiminn
sé verð á þyrlum hagstætt um þess-
ar mundir og gengisþróunin hafi
einnig verið hagstæð. Það viti eng-
inn hve lengi krónan verði eins
sterk og hún er núna.
„Það er grátlegt að ekki skuli
vera búið að kaupa þyrlur fyrir
löngu. Við erum búnir að borga allt-
of mikla peninga í leigu á þyrlum
síðan Varnarliðið fór 2006,“ segir
Halldór.
Landhelgisgæslan hefur nú yfir
að ráða þremur þyrlum, þar af eru
tvær leiguþyrlur. „Þetta eru orðnar
gamlar og þreyttar vélar sem við
erum með þótt þær hafi auðvitað
fengið gott viðhald,“ segir Halldór.
Þá bendir hann á að leiguvélarn-
ar tvær séu að sumu leyti vanbún-
ar. Þær geti til dæmis ekki tekið
eldsneyti frá varðskipunum, hvorki
þeim íslensku né dönsku, sem oft
eru Íslandsmiðum. Þetta sé afleitt
því ein þyrla geti lítið gert þegar
fara þarf í verkefni langt út á haf.
Hún þurfi stuðning frá annarri
þyrlu í slík verkefni.
Þyrla LHG, TF-LIF, var smíðuð
1986 og er því orðin rúmlega 30 ára
gömul auk þess sem kominn er tími
á endurnýjun á hluta búnaðar
hennar. Stefnt er að því að end-
urnýja blindflugsbúnað vélarinnar
fyrir 150 milljónir á næsta ári.
Leigusamningar vegna leiguvél-
anna tveggja, TF-GNA og TF-
SYN, renna út á árunum 2017 og
2018.
Þá kemur fram í greinargerð
með fjármálaáætluninni að úthalds-
dögum varðskipa hefur fækkað
undanfarin ár og það getur tekið
varðskip allt að 48 klukkustundir að
komast á vettvang slysa eða óhappa
innan efnahagslögsögunnar. Tvær
varðskipsáhafnir séu á varðskipun-
um Þór og Tý. Þau séu því úti til
skiptis, hvort skip um helming árs-
ins, en varðskipið Ægir er ekki haf-
fært. Árið 2016 var ekkert útkalls-
hæft skip til reiðu 165 daga ársins.
Fram kemur að kostnaður við að
bæta við áhöfn sé áætlaður um 330
milljónir króna en til að halda skipi
í fullri nýtingu þurfi tvær áhafnir.
„Til þess að stytta viðbragðstíma
niður í 24 klst. þarf að fjölga skip-
um í notkun og áhöfnum en ekki er
svigrúm til þess í fjármálaáætlun
2018–2022,“ segir orðrétt í grein-
argerðinni.
Ekkert varðskip á sjó
„Ég harma að ekki sé svigrúm til
að fjölga í áhöfnum varðskipa,“ seg-
ir Halldór. Staðan er sú núna að tvö
skip eru starfhæf og eitt með út-
runnið haffæri, Ægir. Varðskipin
Þór og Týr séu nú gerð út með tæp-
lega tveimur áhöfnum. Stóran hluta
ársins sé ekkert varðskip á sjó sem
sé ótækt. Halldór bendir á að ná-
grannþjóðir okkar við Atlantshafið
leggi alla áherslu á að vera með öfl-
uga gæslu og björgunargetu á sjó.
„Með fullri virðingu fyrir þyrlum
þá geta þær ekki gert allt sem varð-
skipin geta gert. Ég er gamall þyrl-
umaður og spilmaður, var í því
starfi meira og minna í áratug, frá
1986 til 1996, og er því með mikla
reynslu. Þyrlurnar geta gert marga
frábæra hluti. En sumt ráða þær
ekki við og þá þurfa varðskipin að
koma til sögunnar,“ segir Halldór.
Þyrlurnar verði keyptar strax
Skipherra hjá Landhelgisgæslunni segir að nú sé lag til að kaupa þyrlur Kjörin séu hagstæð
og krónan sterk Harmar að ekki eigi að fjölga skipum í notkun og áhöfnum allt til ársins 2022
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björgunarþyrla Stefnt er að því að Gæslan fái þrjár nýjar þyrlur á næstu árum. Halldór Nellett vill flýta kaupunum.
Halldór
B. Nellett