Morgunblaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 46
46 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Ske i fan 3 j | S ími 553 8282 | www.he i l sudrek inn. is
Helgartilboð
Vasar · Diskar · Lampar · Pottar · Tesett · Myndir · o.m.fl.
Postulín-
vasar og
blómapottar
30%
afslátturSilki
borðdúkar
20%
afsláttur
Kínverskar gjafavörur
Opið laugardag og sunnudag frá kl. 11.00 ti l 16.00
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Arður veiðiréttareigenda af lax- og silungs-
veiðihlunnindunum er allt að 1,7 milljarðar
króna á ári, ef niðurstöður skýrslu sem Hag-
fræðistofnun Háskólans gerði fyrir nokkrum
árum eru uppfærðar miðað við þróun verðlags.
Þegar tekjum leigutaka og annarra sem að
koma er bætt við eru heildartekjurnar um
fjórir milljarðar. Efnahagsleg áhrif stangveiða
eru miklu hærri tala þegar útgjöld innlendra
og erlendra stangveiðimanna bætast við, eða
um 17 milljarðar króna.
Alls njóta um 1.500 einstaklingar og fyrir-
tæki arðs af lax- og silungsveiðihlunnindum.
Hann dreifist nokkuð um landið en ójafnt.
Veiðiréttareigendur á Vesturlandi fá lang-
mesta arðinn, eða yfir 40%. Í úttekt Hag-
fræðistofnunar kemur fram það álit að þótt
stangveiði sé misjafnlega mikilvæg fyrir héruð
landsins leiki varla vafi á að sums staðar sé
hún lífsnauðsynleg til að sveitir landsins megi
áfram dafna. Færa megi rök fyrir því að tekjur
af lax- og silungsveiði geti jafnvel skipt sköp-
um um að byggð haldist í nágrenni við gjöful
lax- og silungsveiðisvæði.
„Þessar tekjur hafa verið í langan tíma
ákveðið hryggjarstykki í byggðinni,“ segir Jón
Helgi Björnsson, formaður Landssambands
veiðifélaga. Nefnir hann Borgarfjörð, Aðaldal
og Vopnafjörð sem dæmi. Hann segir að flestir
eigendurnir hafi annað lifibrauð, til dæmis bú-
skap, en það sé styrk stoð í búsetunni að menn
hafi aðgang að þessum tekjum. Nefnir hann
sína sveit, Aðaldal, sem dæmi um það.
* Ár með yfir 300 laxa ** Meðalveiði 10 ára
Helstu laxveiðiár* Meðalveiði**
1. Elliðaár 976
2.Leirvogsá 536
3.Laxá í Kjós 866
4.Laxá í Leirársveit 939
5.Andakílsá 352
6.Hvítá 1.116
7. Grímsá og Tunguá 1.308
8.Flókadalsá 598
9.Þverá og Kjarrá 2.196
10.Norðurá 2.201
11.Gljúfurá 312
12.Langá 1.970
13.Álftá 366
14.Hítará 824
15.Haffjarðará 1.508
16.Straumfjarðará 462
17. Miðá og Tunguá 339
18.Haukadalsá 701
19.Laxá í Dölum 1.076
20.Búðardalsá 420
21.Laugardalsá í Ísafj.djúpi 343
22.Langadalsá 310
23.Hrútafjarðará og Síká 463
24.Miðfjarðará 2.731
25.Víðidalsá og Fitjá 1.036
26.Vatnsdalsá 1.059
27. Laxá á Ásum 776
28.Blanda 2.056
29.Svartá 359
30.Fnjóská 487
31.Skjálfandafljót 597
32.Laxá í Aðaldal 1.017
33.Ormarsá 393
34.Svalbarðsá 414
35.Sandá 368
36.Hafralónsá og Kverká 409
37. Selá í Vopnafirði 1.835
38.Hofsá og Sunnudalsá 1.120
39. Breiðdalsá 755
40.Kerlingardalsá og Vatnsá 443
41.Rangárnar 11.817
42.Stóra-Laxá í Hreppum 754
43.Sog 618
44.Hvítá í Árnessýslu 492
45. Ölfusá 362
Heimild: Hafrannsóknastofnun
10 AFLAHÆSTU ÁRNAR
Fj. laxa
1. Rangárnar 11.817
2. Miðfjarðará 2.731
3. Norðurá 2.201
4. Þverá, Kjarrá 2.196
5. Blanda 2.056
6. Langá 1.970
7. Selá í Vopnafirði 1.835
8. Haffjarðará 1.508
9. Grímsá, Tunguá 1.308
10. Hofsá og Sunnudalsá 1.120
FASTEIGNAMAT LAX- OG
SILUNGSVEIÐIHLUNNINDA
Milljónir kr.
Höfuðborgarsvæðið 460
Vesturland 3.493
Vestfirðir 125
Norðurland vestra 1.556
Norðurland eystra 839
Austurland 1.039
Suðurland 532
Alls 8.043
Landeldi
Sjókvíaeldi
SLYSASLEPPINGAR
Patreksfjörður
27.11. 2013
500 laxar eða fleiri
sluppu úr sláturkví
Fjarðalax í slæmu veðri
Berufjörður
júní 2016
„Lítið magn“ af regnboga-
silungi slapp úr eldiskví
Fiskeldis Austfjarða
Vestfirðir
september 2016
Óvíst magn af
regnbogasilungi slapp.
Ekki vitað hvaðan.
1
2
345
6
7
8
20
21 22
23
24
25 26
27
28
29
30 31 32
33
34
3536
37
38
39
40
41
42434445
19
18
16
13
9
17
15
11
10
14
12
Stangveiðar skila 17 milljörðum í þjóðarbúið