Morgunblaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 96
96 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is
D A N I E L W E L L I N G T O N
FERMINGAR-
TILBOÐ
20% afsláttur
af öllum DW úrum
AF KVIKMYNDUM
Í FÓRN
Brynja Hjálmsdóttir
hjalmsdottir@gmail.com
Rýnir Morgunblaðsins, EinarFalur, hitti naglann áhöfðið þegar hann lýsti
Fórn sem „gesamtkunstwerk“ í
umfjöllun sinni nú á dögunum, þar
sem orðið „danssýning“ dugar
skammt til að lýsa þeirri miklu
listahátíð sem Íslenski dansflokk-
urinn stendur fyrir í Borgarleik-
húsinu. Á þessu karnivali, sem
hefur undirtitilinn „hátíð nýrra
helgisiða“, ægir saman fjölbreyti-
legum listformum í einni langri og
ofhlaðinni listasprengingu. Innan-
borðs eru tvö kvikmyndaverk;
Dies Irae eftir Gabríelu Friðriks-
dóttur og Union of the North eftir
Matthew Barney, Ernu Ómars-
dóttur og Valdimar Jóhannsson.
Þegar tilraunamyndir eru
annars vegar er ekki alltaf auð-
velt að ákvarða hvort þær teljast
til myndlistar eða kvikmynda-
listar. Í árdaga kvikmyndamiðils-
ins voru myndlistarmenn úr röð-
um framúrstefnuhreyfinga einna
fyrstir til að beita honum með til-
raunkenndum hætti og eimir enn
af afrakstri þeirra tilrauna í kvik-
myndum dagsins í dag. Dies Irae
sver sig í ætt við fyrstu tilrauna-
myndirnar og notar frumstæðar
tæknibrellur á borð við að spila
mynd og hljóð aftur á bak og nota
„invert“-liti. Ríkulega er unnið úr
því sem kalla mætti kjarna kvik-
myndarinnar, forsendur þess að
kvikmynd geti orðið til; ljós og
myrkur. Leikið er með andstæður
svarts og hvíts og myndir spretta
fram úr myrkri jafnt sem ljósi.
Við sjáum svart hár bærast í sjón-
um á hvítri strönd og inn í svarta
flötinn er skeytt hvítum myndum.
Á öðrum stað birtist hvítt hörund
upp úr svörtu vatni og á ljósu
blettunum sindra svartar skugga-
Í nafni guðs kleinuhringjanna,
listar og heilagrar neyslu
Neysluhof Í Union of the North herjar leikhúsið á neysluhofið Kringluna og umturnar þar öllu.
myndir. Ljóst er að myndin er
unnin af fullkominni meðvitund
um sögu framúrstefnumynda og
miðillinn sjálfur, með öllum sínum
töfrandi möguleikum, er gerður
að umfjöllunarefni.
Mynd Gabríelu tengist heild-
armynd Fórnar fagurfræðilega,
þar sem við sjáum t.a.m. bregða
fyrir sams konar búningum og
eru í danssýningunni Shrine, en
Union of the North tengist frekar
rödd Fórnar, inntaki hátíðarinnar
svo að segja, sem er ofgnótt.
Ofgnótt lista, neyslu og trúariðk-
unar.
Það var að sjálfsögðu ákveðið
hámark í gerræðislegri neyslufíkn
landans þegar fjöldi manns beið
klukkustundum saman eftir árs-
birgðum af kleinuhringjum á ný-
opnuðum stað Dunkin’ Donuts. Í
Union of the North er gengið að
því sem vísu að hinn raunverulegi
guð í íslensku samfélagi sé
Mammon og ægivald hans birtist
okkur í formi áðurnefndrar kaffi-
og kleinuhringjasamsteypu. Sviðs-
myndin er vitaskuld hof kaupæð-
issafnaðarins; Kringlan. Í upphafi
myndar sjáum við hina kynngi-
mögnuðu söngkonu Sofiu Jern-
berg, íklædda bleikum kjól, stand-
andi bakvið afgreiðsluborðið á
Dunkin’ Donuts líkt og prestur við
altari. Hún serenaðar áhorfendur
með sinni íðilfögru rödd líkt og til
að undirbúa þá fyrir þá þeysireið
sem er fyrir höndum.
Þegar hin eiginlega atburða-
rás hefst er skjánum skipt í
tvennt og aðalpersónurnar, Erna
og Valdimar, ganga inn í hofið.
Við tekur langur og listrænn að-
dragandi að eins konar hjóna-
vígslu eða helgri sameiningar-
athöfn, sem nær hápunkti þegar
Erna og Valdimar eru gefin sam-
an af kleinuhringjaprestinum.
Undirbúningurinn fyrir helgi-
athöfnina felst í ýmiss konar
gjörningum sem byggjast á ýktri
útlits- og heilsudýrkun. Hjónin
eru mökuð með blóði og skít í
stað brúnkukrems, látin hamast á
æfingahjóli og troðin út af orku-
drykkjum og próteinhristingum
þar til þau kúgast. Kókosolíuæðið
sem tröllriðið hefur öllu undan-
farin ár nær hér nýjum hæðum
þar sem dansarar rífa hvert
stykkið af palmínfeiti á fætur
öðru úr hillum Hagkaupa, maka
sig alla og engjast um í tryllings-
legum dansi.
Myndin tekst á við andstæður
á borð við karlkyn og kvenkyn,
fegurð og ljótleika, alþýðumenn-
ingu og hámenningu, með því að
blanda þeim saman í einn blóði
drifinn skíta- og fæðubótarefn-
ishrærigraut þannig maður veit
varla lengur hvað snýr upp og
hvað niður.
Andstæðan sem er hvað
áhugaverðust er tækluð á sviði
sýningarinnar í heild sinni og það
er sú á milli Borgarleikhússins og
Kringlunnar, þessara húsa sem
standa hlið við hlið en fela í sér
svo gjörólíka merkingu. Á hátíð-
inni í Borgarleikhúsinu eru lög-
mál Kringlunnar færð inn fyrir
viðjar menningarhússins, þar sem
hefur verið komið upp „markaði“
og í hléi geta gestir flakkað á
milli bása, keypt ýmsa muni eða
farið í bíó. Í Union of the North
herjar leikhúsið á neysluhofið
Kringluna og umturnar þar öllu.
Munurinn milli húss andans og
holdsins er þar með afmáður, list-
in og almenningsrýmið sameinað.
Í þessu kjarnast e.t.v. sú viða-
mikla rannsókn á samtímanum
sem Fórn tekur sér fyrir hendur,
samtíma þar sem guð er alveg
jafn greinanlegur í ofsafengnu
dansverki og spánnýjum
íþróttaskó.
» Þegar tilrauna-myndir eru annars
vegar er ekki alltaf auð-
velt að ákvarða hvort
þær teljist til mynd-
listar eða kvikmynda-
listar.
Þýski barnabókahöfundurinn og
myndskreytirinn Wolf Erlbruch
hlaut í fyrradag barnabókaverð-
launin sem kennd eru við sænska
rithöfundinn Astrid Lindgren,
Litteraturpriset till Astrid Lind-
grens minne, eins og þau heita á
sænsku, og eru þau veitt fyrir fram-
úrskarandi starf barnabókahöf-
undar, -myndskreytis eða stofn-
unar. Að launum hlýtur Erlbruch
fimm milljónir sænskra króna, jafn-
virði um 63 milljóna íslenskra
króna, og er það hæsta verðlauna-
upphæð sem veitt eru í heiminum
þegar kemur að barnabókum.
Erlbruch hefur verið tilnefndur
til verðlaunanna margsinnis og
hlotið fjölda annarra verðlauna fyr-
ir bækur sínar, en í þeim er oft tek-
ist á við erfið umfjöllunarefni sem
tengjast barnæskunni og jafnvel
drungaleg, m.a. dauðann.
Verðlaunin sem hann hlaut úr
minningarsjóði Lindgren eru
einkar eftirsótt og í umsögn dóm-
nefndar segir m.a. að Erlbruch sé
umhyggjusamur hugsjónamaður
sem nálgist tilvistarlegar spurn-
ingar með þeim hætti að lesendur á
öllum aldri eigi auðvelt með að
skilja þær.
Kostuleg Meðal þeirra bóka sem Erlbruch hefur myndskreytt er hin bráð-
fyndna Moldvarpan sem vildi vita hver skeit á hausinn á henni.
Wolf Erlbruch hlaut
verðlaun Lindgren