Morgunblaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 100
100 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
GOTT ÚRVAL
AF UMGJÖRÐUM
Verið velkomin til
okkar í sjónmælingu
Það er vel við hæfi að opn-unarsýning nýrrar sýn-ingaraðstöðu Nýlista-safnsins í stórglæsilegu
Marshall-húsi, sé á verkum Ólafs
Lárussonar (1951-2014) en hann
var einn af stofnaðilum Nýlista-
safnsins árið 1978 og vann ötullega
að hagsmunum þess um árabil.
Listferli Ólafs hefur að ósekju
ekki verið gert hátt undir höfði í
söfnum landsins á síðastliðnum ár-
um en hann tók virkan þátt í
frjórri gerjun íslensks myndlistar-
lífs á miðjum 8. áratug síðustu ald-
ar.
Ólafur var við nám í Hollandi á
árunum 1974-1976 en á þeim tíma
var Amsterdam miðstöð framsæk-
inna alþjóðlegra áhrifa og sýn-
ingar listamanna frá Evrópu og
Bandaríkjunum veittu mönnum að-
gengi að því sem var efst á baugi í
listalífinu. Þekktir listamenn á
sviði konseptlistar og landlistar
eins og Robert Smithson, Dennis
Oppenheim, Ger van Elk, Jan
Dibbets o.fl. sýndu verk á sögu-
frægum sýningum í Hollandi undir
lok sjöunda áratugarins. Inn-
blásnir af nýjum hugmyndum
settu atorkusamir listamenn mark
sitt á íslenska samtímalist, efnivið-
urinn var oft og tíðum óhefðbund-
inn og hið fjölbreytta svið gjörn-
ingalistarinnar breiddi úr sér af
krafti, oft við misjafnar undirtektir
almennings.
Sýningin Rolling line er viða-
mikil, með yfir hundrað verkum
sem spanna um áratug í upphafi
listferils Ólafs, ásamt ljósmyndum
og öðrum heimildum tengdum
listamanninum. Ólafur var í hópi
frumkvöðla gjörningalistar á Ís-
landi og flest verkin á sýningunni
eru ljósmyndaverk, landlistaverk
eða gjörningaverk þar sem gler,
rósir, speglar, náttúran og málning
eru aðalefniviður listamannsins.
Uppsetning sýningarinnar er
einstaklega vel heppnuð, léttir
færanlegir sýningarveggir úr
ómeðhöndluðum við skapa hráa og
viðeigandi stemningu í rýminu.
Nýlistasafnið er jú safn grasrót-
arinnar og þótt það nálgist miðjan
aldur er engin ástæða til annars
en að halda í þá ímynd. Hvergi er
ofhlaðið á veggina þótt mikill fjöldi
verka sé til sýnis, lausum timbur-
planka hefur til að mynda verið
stillt upp við burðarsúlu til að
skapa „sýningarvegg“ og er dæmi
um hugmyndaríka úrlausn. Nýja
húsnæðið er með mikilli lofthæð í
innsta hluta rýmisins þar sem
byggður hefur verið nokkurs kon-
ar útsýnispallur fyrir áhorfendur
til að njóta verka Ólafs frá fleiri
en einu sjónarhorni. Áhorfendur
geta einnig tyllt sér niður undir
pallinum og horft á fyrsta mynd-
listargjörninginn sem framinn var
í íslensku sjónvarpi árið 1980 en
þar er um að ræða útfærslu gjörn-
ingsins „Regnboga I“ (1978) sem
var framinn af listamanninum í
Gallerí SÚM, en svart/hvít upp-
taka af honum er einnig til sýnis.
Þar málaði listamaðurinn á fimm
stór gler sem héngu í lofti sýning-
arrýmisins, áhorfendurnir fylgjast
með og speglast í glerinu en svo
tók Ólafur sig til og braut hvern
flekann á fætur öðrum með hand-
afli svo glerbrot spýttust í allar
áttir. Það er eins og tíminn stöðv-
ist um stund á augnablikinu þegar
glerið brotnar í ólgandi átökum
listamannsins.
Kraftmiklar tilraunir Ólafs í
„Cul-de-sac“ seríunum (1980) eru
dæmi um hvernig hann tekst á við
sköpunarferli málverksins. „Cul-
de-sac I“ er samsett myndröð
verka sem annars vegar ljósmynd-
ir eru af listamanninum á efri
helmingi, þar sem hann makar
málningu og rósum á plast og
þrýstir í andlit sitt og hins vegar
málverkið sjálft með ummerkjum
um atgang listamannsins á neðri
helmingi. Rósir koma einnig end-
urtekið við sögu gjörningum lista-
mannsins og í fallegum ljósmynda-
verkum Ólafs, „When the roses
meet … (1977).
Sjöundi og áttundi áratugur síð-
ustu aldar var tími mikils upp-
gangs landlistar í Evrópu og
Bandaríkjunum. Ólafur var leit-
andi listamaður og hafði mikinn
áhuga á umhverfi og náttúru sem
endurspeglast í verkum hans. Árið
1974 strengdi hann til að mynda
tvo léreftsdúka úti í guðs grænni
náttúrunni, berskjaldaða fyrir
veðri, vindum og dýralífi, í Flatey
á Breiðafirði og á landspildu á
Suðurlandi þar sem ekki var von á
mannaferðum, og lét náttúruöflin
um að setja mark sitt á þá í einn
og hálfan mánuð. Kríuskítur og
litarefni náttúrunnar framkalla
expressjónísk málverk í anda
athafnamálverksins.
Ólafur hefur með réttu verið
kallaður „konsept-rómantíker“,
hann var alltaf að glíma við listina,
trúr sinni sannfæringu en líka
áræðinn og djarfur þar sem listin
og lífið renna saman í farvegi sem
getur kvíslast í margar áttir.
Tiltilverk sýningarinnar, „Roll-
ing line“ (1975), var sýnt í fyrsta
sinn árið 1975 á opnunarsýningu
Gallery Output sem var lítið sýn-
ingarrými í herbergi á heimili
Þórs Vigfússonar myndlistar-
manns, við Laugarnesveg í
Reykjavík. Átta ljósmyndir sýna
listamanninn velta sér um í nátt-
úrunni, en í þeim sést vel hvernig
Ólafur steypti listformum gjarnan
saman í einu verki; gjörningalist-
forminu, landlist, ljósmyndun
o.s.frv. Listamaður og verk renna
saman í eitt í áræðnum tilraunum
hans. Í verkinu veltir Ólafur fyrir
sér hreyfingu eða ferli frá upphafi
til enda þar sem samruni lista-
mannsins við verkið á sér stað.
Eða eins og hann segir sjálfur í
viðtali við Morgunblaðið árið 1975.
„Hugsunin í þessum verkum er sú,
að lína fari í hring, endi í upphaf-
inu, endi í sjálfri sér.“
Rolling line er kærkomin sýning
á verkum Ólafs Lárussonar, sem
eiga fullt erindi við samtímann. Í
þeim speglast kjarkur og hug-
myndaauðgi, tilraunamennska og
síðast en ekki síst rómantísk við-
horf listamannsins sem snerta
streng í hjarta áhorfandans. Til
hamingju Nýló!
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðeigandi „Uppsetning sýningarinnar er einstaklega vel heppnuð, léttir færanlegir sýningarveggir úr ómeðhöndluðum við skapa hráa og viðeigandi
stemningu í rýminu. Nýlistasafnið er jú safn grasrótarinnar og þótt það nálgist miðjan aldur er engin ástæða til annars en að halda í þá ímynd,“ segir rýnir.
Línan sem endar í sjálfri sér
Nýlistasafnið
Rolling Line – Ólafur Lárusson
bbbbn
Nýlistasafnið í Marshall-húsinu.
Sýningarstjórar: Þorgerður Ólafsdóttir
og Becky Forsythe.
Sýningarhönnun: Thomas Pausz.
Sýningin stendur til 21. maí 2017. Opið
þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17 og til
kl. 21 á fimmtudögum.
ALDÍS
ARNARDÓTTIR
MYNDLIST
Merkileg Í verkunum „speglast kjarkur og hugmyndaauðgi, tilrauna-
mennska og síðast en ekki síst rómantísk viðhorf listamannsins.“
Ljósmyndagjörningar „… flest verkin á sýningunni eru ljósmyndaverk,
landlistaverk eða gjörningaverk,“ segir um þetta tímabil í list Ólafs.