Morgunblaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 90
90 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Er ekki tilvalið að skipta um starfsvettvang þegar maður erkominn á þennan aldur?“ segir Margrét Bryndís Haralds-dóttir, sem á 60 ára afmæli í dag. Hún hefur unnið í 10 ár á
skrifstofu sveitarfélagsins Garðs þar sem hún býr, en ásamt því hefur
hún rekið fyrirtækið Völundarhús ásamt manni sínum.
„Það er orðið svo brjálað að gera hjá okkur í Völundarhúsi að ég
ætla alfarið að snúa mér að því í sumar,“ en Völundarhús flytur inn
garðhús, gestahús og sumarhús. „Þetta eru bjálkahús frá Eistlandi og
við höfum selt þau út um allt land, en við erum búin að vera í þessu
síðan árið 2006.“
Margrét er viðskiptafræðingur að mennt og er í stjórn kvenfélags-
ins Gefnar og situr jafnframt í stjórn KSKG, Kvenfélagssambands
Gullbringu- og Kjósarsýslu. „Ég skellti mér í námið á gamals aldri, út-
skrifaðist árið 2010. Ég hef verið í kvenfélaginu síðan 1991 en er ný-
komin í stjórn KSKG.“
Eiginmaður Margrétar er Ástþór Bjarni Sigurðsson og börn þeirra
eru Jón Ragnar, Særún Rósa, Berglind Harpa og Sigurður Freyr.
Margrét og Ástþór eiga sjö barnabörn.
„Ég veit ekki alveg hvernig afmælisdagurinn verður. Fjölskyldan
er að skipuleggja eitthvað sem ég veit ekki hvað er, en ég mun eyða
honum í faðmi fjölskyldunnar.“
Ljósmynd/Nýmynd
Fjölskyldan Margrét og Ástþór, börn og barnabörn í í tilefni af 60 ára
afmæli Ástþórs og 40 ára brúðkaupsafmæli þeirra hjóna í fyrra.
Flytur inn garðhús
og sumarhús
Margrét Bryndís Haraldsdóttir er sextug
F
riðrik fæddist í Reykja-
vík 6.4. 1977 en ólst upp
í Njarðvík. Hann var í
Njarðvíkurskóla og út-
skrifaðist þaðan 1993,
stundaði síðan nám við Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja strax að loknum
grunnskóla og tók síðan upp náms-
þráðinn mörgum árum síðar, fór til
Danmerkur og útskrifaðist með BS-
gráðu í Value Chain Management frá
VIA University vorið 2009. Veturinn
1994-95 var Friðrik í málaskóla í
Þýskalandi í litlum smábæ sem heitir
Murna am Staffelsee til að læra
þýsku og var síðan aftur þar í tvo
mánuði 1998.
Friðrik hefur verið viðloðandi
ferðaþjónustu frá því á unglingsárun-
um, eða frá árinu 1991. Þá vann hann
við gistiþjónustu í Njarðvíkurskóla og
starfrækti síðan gistingu þar á sumr-
in til ársins 2001.
Árið 1994 starfaði hann við Hótel
Kristínu í Njarðvík og starfrækti síð-
an sjálfur hótelið, auk þess sem hann
hafði umboð fyrir bílaleiguna Geysi
og sá um allar útleigur hennar í Leifs-
stöð.
Árið 2000 hóf Friðrik störf hjá fyr-
irtæki sem hét A-Ferðir og var ferða-
skipuleggjandi í eigu Geysis – vél-
sleðaferða og bátafólksins: „Þar var
nú ýmislegt í gangi. Við byrjuðum t.d.
að selja norðurljósaferðir á kvöldin
Friðrik Árnason, framkvæmdastjóri Hótel Bláfells – 40 ára
Börnin Sindri, Emilía Glóð og Logi á göngu úti í Örfirisey með hina einu sönnu Esju í baksýn í fallegri vetrarkápu.
Í ferðaþjónustu af lífi
og sál frá 13 ára aldri
Hótelstjórinn Friðrik í gestamóttökunni á Hótel Bláfelli á Breiðdalsvík.
Haraldur Stefáns-
son, fyrrverandi
slökkvistjóri á
Keflavíkurflug-
velli, og Erla Ingi-
marsdóttir hús-
móðir eiga sextíu
ára brúðkaups-
afmæli í dag, 6.
apríl. Þau eign-
uðust fjögur börn
og eiga nú níu
barnabörn og eitt
barnabarnabarn.
Árnað heilla
Demants-
brúðkaup
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600 LIPUR GRIPUR
AVANT - ER TIL Í ALLT - ALLT ÁRIÐ UM KRING
Hvort sem þig vantar öflugt hjálpartæki í skógræktina, fyrir bæjarfélagið, til
meðhöndlunar á vörubrettum, í moksturinn eða snjó- og jarðvinnu, þá getur
þú verið viss um að AVANT leysir málið fyrir þig. Yfir 100 mismunandi aukatæki
eru fáanleg á vélina.
Raf- diesel- bensín- eða gasknúinn – þitt er valið.
Framleiddur í Finnlandi – fyrir norðlægar slóðir.