Morgunblaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 55
UMRÆÐAN 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Þann 1. apríl sl. voru 80 ár liðin
frá því Ríkisútgáfa námsbóka var
stofnuð. Líkt og í aðdraganda laga-
setningar um þá stofnun hefur um-
ræða um fyrirkomulag útgáfu
námsgagna fyrir grunnskóla verið
áberandi undanfarið. Fagna ber
opinberri umræðu um útgáfu
námsefnis fyrir grunnskóla sem
vekur athygli á þörfinni fyrir enn
betri námsgögn til góðs fyrir nem-
endur, kennara og þjóðfélagið í
heild sinni. Mikilvægt er þó að
fjallað sé með hlutlægum hætti um
þetta mikilvæga málefni.
Gerð og gæði námsgagna
Lögum samkvæmt sér Mennta-
málastofnun um útgáfu námsgagna
fyrir grunnskóla og dreifir þeim án
endurgjalds til grunnskóla lands-
ins. Tók stofnunin við verkefnum
Námsgagnastofnunar sem áður
hafði þetta hlutverk. Námsefni er
ekki samið af starfsmönnum stofn-
unarinnar heldur nýtur hún liðsinn-
is fjölda námsefnishöfunda, teikn-
ara og annars fagfólks við
námsgagnagerð.
Við samningu og staðfærslu
námsefnis er farið eftir viðmiðum
sem sett eru fram í námskrá af
mennta- og menningarmálaráðu-
neyti hverju sinni og fjallað er um í
gátlista Menntamálastofnunar.
Stuðst er við faghópa í hverri
námsgrein fyrir sig, ritstjórar
fylgja efninu frá upphafi til enda,
vinna með höfundum, teiknurum og
þýðendum og allt námsefni er síðan
lesið yfir af sérfræðingum til þess
að tryggja að gæði þess séu full-
nægjandi áður en að útgáfu kemur.
Ekki má heldur gleyma því að
Menntamálastofnun hefur í gegn-
um tíðina fengið talsvert efni frá ís-
lenskum bókaútgáfum til afnota í
námsbækur.
Meðal þess sem haldið hefur ver-
ið fram í opinberri umræðu er að
gæði námsefnis á Íslandi séu minni
en annars staðar og að ein helsta
ástæða fyrir slakri lestrarkunnáttu
íslenskra skólabarna sé sú stað-
reynd að á Íslandi er ríkisrekin
námsbókaútgáfa fyrir grunnskóla-
stigið. Ekki hafa verið færð nein
haldbær rök né lögð fram gögn eða
rannsóknir sem renna stoðum und-
ir þessa fullyrðingu. Væntingar um
að breytingar á rekstrarformi
námsgagnaútgáfu hafi
í för með sér viðsnún-
ing í námsárangri
byggjast á vafasöm-
um forsendum.
Markaður fyrir
námsgögn
í grunnskólum
Menntamálastofnun
dreifir árlega um
500.000 eintökum
námsefnis til grunn-
skóla landsins. Til að
standa straum af
kostnaði við dreifing-
una hefur stofnunin til umráða um
300 milljónir króna sem þýðir að
meðalverð hvers eintaks er um 600
krónur. Innifalið í þeirri tölu er allt
utanumhald, framleiðsla, birgða-
hald, dreifing, sendingarkostnaður
og annar kostnaður sem hlýst af
útgáfunni. Grunnskólanemendur
eru um 45 þúsund talsins á hverj-
um tíma og er því beinn kostnaður
við námsefnisútgáfu fyrir hvern
nemanda á bilinu 6.500 til 7.000
krónur á ári.
Ætla má að velta á íslenskum
bókamarkaði á árinu 2016 hafi ver-
ið á bilinu 5-6 milljarðar króna.
Þegar litið er til þess fjármagns
sem Menntamálastofnun hefur að
spila úr til nýrrar útgáfu er hlutur
stofnunarinnar af veltu á bóka-
markaði líklega um 5%. Ekki verð-
ur séð að þessi hlutur muni skipta
sköpum fyrir afkomu bókaútgef-
enda almennt.
Þegar talað er um markað þarf
að skilgreina hverjir eru kaup-
endur og seljendur. Það er ekki
augljóst í tilviki námsgagna. Ef
breyta á rekstrarfyrirkomulagi
námsgagnaútgáfu þarf þannig að
svara því hverjir eiga að kaupa
námsgögnin. Eru það nemendur/
foreldrar, skólar, sveitarfélög eða
ríkið? Einnig þarf að svara því
hvaða kröfur á að gera til seljenda.
Á að velja einn eða fáa, t.d. með út-
boði, eða á markaðurinn að vera
opinn eins og á framhalds-
skólastigi.
Að hverju ber að huga
við útgáfu námsefnis?
Þegar rætt er um hvernig best
er að haga útgáfu námsefnis fyrir
grunnskóla á litlu málsvæði eins og
Íslandi er að mörgu að huga. Einn-
ig er námsefni ætíð samofið sýn á
menningu og sögu.
Í fyrsta lagi er mikilvægt að
gæta þess að aðgengi að námsefni
sé jafnt fyrir alla. Það felur í sér að
allir grunnskólanemendur á Íslandi
eiga að geta gengið að nauðsynlegu
námsefni án tillits til efnahags.
Í öðru lagi er mikilvægt að öllum
greinum sé sinnt, hvort sem um er
að ræða minni greinar, svo sem
list- og verkgreinar, eða stærri
greinar eins og íslensku, stærð-
fræði, dönsku, ensku og náttúru-
fræði. Menntamálastofnun gefur út
námsefni í um 25 mismunandi
greinum sem sumum er dreift í af-
ar litlum upplögum.
Í þriðja lagi þarf að gæta þess að
námsgagnaútgáfa tekur nú miklum
breytingum með þróun upplýs-
ingatækni og rafrænni útgáfu.
Fylgjast þarf vel með framförum í
kennslufræði og tækni. Mennta-
málastofnun gefur nú nánast allt
nýtt efni einnig út á rafrænu formi
án endurgjalds. Mikil tilraunastarf-
semi fer fram með mismunandi raf-
ræn form, flettibækur, gagnvirkar
bækur og vefsíður.
Í fjórða lagi er námsefni samofið
kennslufræði og þeim aðferðum
sem beitt er við kennslu. Þessu
fylgir að huga þarf að kennsluleið-
beiningum svo að kennarar geti
nýtt sér námsefni sem skyldi. Hjá
Menntamálastofnun er mikil
áhersla lögð á kennsluleiðbeiningar
hvort sem um er að ræða fyrir efni
sem er frumsamið eða þýtt.
Framtíðin
Nýverið sendi Menntamálastofn-
un mennta- og menningarmála-
ráðuneytinu minnisblað þar sem
bent er á að mikilvægt sé að ráðist
verði í framtíðarstefnumótun um
námsefnisgerð. Þar verði tekin af-
staða m.a. til hlutverks ríkisins,
Menntamálastofnunar og einka-
aðila varðandi námsgagnaútgáfu.
Mikilvægt er að sú stefnumót-
unarvinna sem framundan er í
þessum málaflokki verði unnin á
grundvelli áreiðanlegrar greiningar
og upplýsinga svo framtíðarskipu-
lag námsefnisútgáfu fyrir grunn-
skóla á Íslandi taki mið af þörfum
nemenda og skóla fyrir gott náms-
efni en ekki fyrirframgefnum svör-
um.
Þegar þeir Vilmundur Jónsson
landlæknir og Jónas frá Hriflu
tóku sæti í stjórn Ríkisútgáfu
námsbóka fyrir réttum 80 árum
voru aðstæður vissulega aðrar en
átakapunktarnir um fyrirkomulag
námsgagnaútgáfu ef til vill ekki svo
ólíkir. Vonandi hefur umræðunni
um stefnu og áherslur í menntun
eitthvað farið fram.
Ríkisútgáfa námsbóka
Eftir Arnór Guðmundsson og
Erling Ragnar Erlingsson
Arnór
Guðmundsson
»Mikilvægt er að sú
stefnumótunarvinna
sem framundan er í
þessum málaflokki
verði unnin á grundvelli
áreiðanlegrar grein-
ingar og upplýsinga.
Arnór er forstjóri Mennta-
málastofnunar. Erling Ragnar er
sviðsstjóri Miðlunarsviðs Mennta-
málastofnunar.
Erling Ragnar
Erlingsson
Við berum út áskoranir með markpósti til þeirra sem eru til í nánast hvað sem er
16
-2
68
8
–
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA