Morgunblaðið - 06.04.2017, Síða 8

Morgunblaðið - 06.04.2017, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017 Bandaríska umræðan er sér-kennileg núna. Demókratar leggja kapp á að þingið sé undirlagt í rannsókn á því hvort Rússland, persónugert í Pútín, hafi ekki örugglega reynt að rugla kosning- arnar í október. Enginn segir þó „Pútín“ hafa reynt að hagræða kosningaúrslitum enda var kosn- ingin ekki á veraldarvefnum.    Leyniþjón-ustumenn segj- ast telja að Rússar hafi komið að inn- broti í tölvukerfi demókrata, en póst- ar þar hafi illa þolað dagsins ljós.    Markmið rann-sóknarinnar er að kanna hvort Trumpsmenn hafi verið í vitorði með Pútín. Ekkert rennir enn stoðum undir það. Trump, sem stýrir um- ræðunni fyrir sitt leyti með „tísti“, sagði óvænt á dögunum að lið hans hefði verið „hlerað“ í Trumpturn- inum. Gaf Trump til kynna að Obama hefði verið með puttann í því. Þetta þóttu firn mikil og for- dæmt af öllu pólitíska litrófinu.    En nú er komið á daginn að Sus-an Rice, öryggismálastjóri Obama og einn hans nánasti sam- starfsmaður, hafði krafist upplýs- inga frá leyniþjónustunum um menn úr liði Trumps, og að slíkir væru nafngreindir í heimildarleysi. Rice þverneitaði þessu aðeins 10 dögum fyrr, en sneri við blaði þeg- ar sannanir lágu fyrir.    Nú er spurt: hvað vissi Obamaog hvenær og hver lak trúnaðargögnum, sem Rice komst yfir á vafasömum forsendum, til að sverta Trump áður en hann hæfi störf? Vopnin hafa snúist, hvernig sem það endar. Donald Trump Skamma stund verð- ur hönd höggi fegin STAKSTEINAR Susan Rice Veður víða um heim 5.4., kl. 18.00 Reykjavík 6 rigning Bolungarvík 0 snjókoma Akureyri 0 snjókoma Nuuk -8 skýjað Þórshöfn 5 rigning Ósló -1 léttskýjað Kaupmannahöfn 6 skúrir Stokkhólmur 1 skýjað Helsinki 2 léttskýjað Lúxemborg 15 heiðskírt Brussel 15 heiðskírt Dublin 12 súld Glasgow 11 súld London 14 léttskýjað París 15 heiðskírt Amsterdam 15 heiðskírt Hamborg 13 þoka Berlín 10 súld Vín 15 skýjað Moskva 0 heiðskírt Algarve 19 heiðskírt Madríd 6 heiðskírt Barcelona 9 heiðskírt Mallorca 18 heiðskírt Róm 14 heiðskírt Aþena 18 léttskýjað Winnipeg 6 skýjað Montreal 1 alskýjað New York 1 rigning Chicago 6 rigning Orlando 30 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 6. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:27 20:35 ÍSAFJÖRÐUR 6:26 20:45 SIGLUFJÖRÐUR 6:08 20:28 DJÚPIVOGUR 5:55 20:05 Vala Pálsdóttir er nýkjörinn for- maður Lands- sambands sjálf- stæðiskvenna en ný stjórn var kjörin á aukaað- alfundi sam- bandsins sem fór fram í gær. Vala er með B.Sc- gráðu í viðskiptafræði frá Háskól- anum í Reykjavík og meistaragráðu í alþjóðamarkaðssamskiptum frá Emerson College í Boston. Hún hef- ur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og starfaði um árabil á RÚV og sem forstöðumaður fjárfestatengsla hjá Íslandsbanka. Þá var hún kosningastjóri Ólafar Nordal í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins sl. haust og starfaði með henni fram yfir alþingiskosningarnar. Auk Völu voru 14 konur kjörnar í aðalstjórn Landssambands sjálf- stæðiskvenna og hefur stjórnin þeg- ar tekið til starfa og mun sitja fram að næsta aðalfundi sem haldinn verður að ári. Í tilkynningu kemur fram að sjö þeirra komi nýjar inn í félagið. ash@mbl.is Vala Páls- dóttir for- maður LS  Sjálfstæðiskonur kjósa sér nýja stjórn Vala Pálsdóttir Tillaga um að hafist verði handa við að skipu- leggja byggð í Geldinganesi var tekin fyrir á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í fyrrakvöld. Tillagan var felld með 9 atkvæðum meiri- hlutaflokkanna í borgarstjórn: Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknar og flugvallarvina sem greiddu atkvæði með tillögunni. Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokks, sem var flutningsmaður tillögunnar, sagði að mikilvæg forsenda þess að lækka hús- næðiskostnað væri að auka framboð á lóðum í eigu borgarinnar. Úthlutun lóða í Geldinganesi myndi stórauka framboð á byggingarlóðum í Reykjavík á hagstæðu verði og þannig hafa afger- andi, jákvæð áhrif á íbúða- og leigumarkaðinn. Fulltrúar meirihlutaflokkanna sögðu hins veg- ar að í aðalskipulagi Reykjavíkurborgar væri ekki gert ráð fyrir íbúðabyggð í Geldinganesi vegna áhrifa slíkrar byggðar á umhverfi og um- ferð, samgöngukostnað og fleira. Gerð skipulags í Geldinganesi sé engin lausn á núverandi ástandi á húsnæðismarkaði. Samkvæmt aðalskipulaginu er gert ráð fyrir að í Geldinganesi sé almennt útvistarsvæði með tak- markaðri mannvirkjagerð sem þjóni útivist á svæðinu. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Geldinganes Tillagan fékk ekki hljómgrunn. Tillaga um byggð í Geldinganesi var felld BAÐHERBERGIS- ÞITTERVALIÐ Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang. Fullkomin þjónusta, eigið verkstæði. FJÖLBREYTTÚRVALAFHURÐUM,FRAMHLIÐUM, KLÆÐNINGUMOGEININGUM STYRKUR - ENDING - GÆÐI HÁGÆÐADANSKAR Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is INNRÉTTINGAR Opið: Mán. til föstudaga kl. 09 til 18 Laugardaga kl. 11 til 15
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.