Morgunblaðið - 06.04.2017, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Allt frá opnun hefur rekstur Ísgang-
anna í Langjökli notið töluverðra
vinsælda. Farnar eru ferðir í göngin
allt árið um kring sem hefur gefist
vel en var þó ekki gert ráð fyrir í
upphafi. Vegna mikillar eftirspurnar
var í fyrra fjárfest í nýrri sérútbú-
inni jöklarútu og mun önnur ný bæt-
ast í flotann á næstu mánuðum. Þá
mun afkastageta félagsins verða
rúmlega tvöfalt meiri en þegar starf-
semin hófst. Rekstrarafkoma síð-
asta árs var góð og gera áætlanir
ársins 2017 ráð fyrir umtalsverðum
vexti í tekjum og afkomu.
Into the
Glacier
Fjárfestingarverkefni Iceland Tourism Fund frá stofnun sjóðsins árið 2013
Allir Vestfirðirnir eru undir hjá æv-
intýraferðamennsku Borea Advent-
ures, en fyrirtækið er staðsett á Ísa-
firði.
Lögð hefur verið mikil áhersla á
vöruþróun innan félagsins með það
að markmiði að nýta betur innviðina
utan háannatíma, sem hingað til hef-
ur verið vor- og sumarmánuðir, og
hefur það skilað góðum árangri.
Ferðamenn sækja í auknum mæli í
ævintýraferðir og hefur reksturinn
gengið vel. Búast fjárfestar við að
árið 2017 verði enn betra en 2016.
Borea
Adventures
LAVA stendur fyrir uppsetningu
eldfjalla- og jarðskjálftaseturs sem
mun rísa á Hvolsvelli. Áhersla er á
að skapa fjölbreytta upplifunar- og
fræðslusýningu sem helguð verður
eldsumbrotum og jarðskjálftum og
verða eldstöðvum á Suðurlandi gerð
sérstök skil. Vinna við uppsetningu
sýningarinnar stendur nú sem hæst
og er ráðgert að opna í byrjun sum-
ars. Auk sýningarinnar verður í hús-
næðinu rekinn matsölustaður og
ferðamannaverslun og verða þær
einingar reknar af sérhæfðum að-
ilum.
LAVA á
Hvolsvelli
Óbyggðasetrið í Fljótsdal á Austur-
landi hóf starfsemi í byrjun sumars
2016. Aðsókn fyrstu mánuðina var
góð og reksturinn hefur gengið
samkvæmt áætlunum. Gestir stað-
arins hafa almennt verið mjög
ánægðir og hefur verkefnið fengið
jákvæðar viðtökur hjá ferðaskipu-
leggjendum og endursöluaðilum.
Vonir standa til að Óbyggðasetrið
muni festa sig í sessi sem fastur við-
komustaður ferðamanna sem leið
eiga um Austurland, enda um að
ræða metnaðarfulla viðbót við
fremur fábrotið framboð afþrey-
ingar á þessu svæði. Umtalsverð
tækifæri eru sögð til vöruþróunar
og frekari uppbyggingar á fjöl-
breyttri afþreyingu á staðnum.
Óbyggðasetrið í Fljótsdal
Perla norðursins ehf. hefur gert 25
ára samning við Reykjavíkurborg
um leigu á Perlunni. Þar verður
sett upp sýning sem fjalla mun um
það markverðasta sem íslensk nátt-
úra hefur upp á að bjóða. Fengnir
hafa verið til liðs við félagið sýning-
arhönnuðir í fremstu röð, bæði inn-
lendir og erlendir.
Samið hefur verið við Kaffitár
um rekstur veitingastaðar á 5. og 6.
hæð hússins og við Rammagerðina
um rekstur verslunar á 4. hæð.
Verulegar breytingar verða
gerðar á húsnæðinu til að aðlaga
það nýju hlutverki og eru fram-
kvæmdir í fullum gangi.
Perla
norðursins
Á árinu 2016 fjölgaði þeim erlendu
ferðamönnum sem sóttu sýninguna
Whales of Iceland á Granda. Áætl-
anir gera ráð fyrir enn frekari fjölg-
un á þessu ári.
Þrátt fyrir að langflestir gesta séu
erlendir ferðamenn hafa Íslendingar
einnig verið duglegir að sækja sýn-
inguna heim og mikið er um heim-
sóknir hópa úr leik- og grunnskólum
af höfuðborgarsvæðinu. Talsvert
hefur verið fjárfest í sýningunni frá
opnun í því augnamiði að styrkja
upplifun gesta og auka virði heim-
sóknarinnar. Fjölmörg tækifæri eru
til frekari þróunar sýningarinnar og
munu nýjungar líta dagsins ljós á
næstu mánuðum.
Whales of
Iceland
Iceland Tourism Fund eignaðist á
árinu meirihluta í Þríhnúkum ehf.
en fyrirtækið hefur staðið að hönn-
un og undirbúningi framkvæmda
við Þríhnúkagíg, skammt frá Blá-
fjöllum, sem miða að því að bæta
aðgengi ferðamanna og gera fleiri
kleift að njóta þeirrar miklu upplif-
unar sem heimsókn í gíginn er.
Þríhnúkar
Welcome Entertainment stendur að
leiksýningu sem ber heitið „The
Sagas in 75 Minutes“. Sýningin er í
léttum dúr, byggð á Íslendingasög-
unum og er fyrst og fremst hugsuð
fyrir erlenda ferðamenn sem hafa
haft úr takmörkuðum kostum að
velja þegar kemur að kvöldafþrey-
ingu í Reykjavík. Sýningar fara
fram í Hörpu og hófust þær sl. vor.
Sýnt er allt árið um kring og er
tíðnin mest yfir sumarið en nokkru
minni yfir vetrartímann.
Welcome Entertainment
Raufarhóll ehf. stendur að uppbygg-
ingu ferðaþjónustu í og við Rauf-
arhólshelli, sem er í Þrengslum á
milli Reykjavíkur og Þorlákshafnar.
Gerður hefur verið langtímaleigu-
samningur við landeigendur, en
landið er í einkaeigu.
Hugmyndin er að bjóða ferða-
mönnum upp á ferðir í hellinn í fylgd
leiðsögumanns og verður ráðist í
umtalsverðar framkvæmdir til að
bæta aðgengið inn í hellinn með
smíði palla og gerð stíga. Einnig
verður komið fyrir sérhannaðri lýs-
ingu sem kalla mun fram það mark-
verðasta sem fyrir augu ber, byggt
þjónustuhús til móttöku gesta og
bílastæði stækkuð. Lögð er áhersla
á að öll mannvirki falli sem best inn í
náttúruna og unnið er í nánu sam-
starfi við yfirvöld í skipulagsmálum
og náttúruvernd.
Raufarhóll
Hestagarðurinn í Fákaseli í Ölfusi
hefur nú verið í rekstri í um þrjú ár,
en þar var hægt að kynnast íslenska
hestinum við bestu aðstæður.
Reksturinn hefur ekki gengið vel
og að svo stöddu hefur Fákaseli ver-
ið lokað tímabundið, allar sýningar
fallið niður og önnur þjónusta er
ekki í boði að svo stöddu, samkvæmt
heimasíðu fyrirtækisins.
Fákasel
Fjárfestingar Iceland Tourism Fund
HVALASÝNINGIN
Á GRANDA
HESTAGARÐURINN
FÁKASEL Í ÖLFUSI
ÍSGÖNGIN Í
LANGJÖKLI
ÓBYGGÐASETRIÐ
Í FLJÓTSDAL
BOREAADVENTURES
Á ÍSAFIRÐI
SÝNINGIN
„THE SAGAS IN 75
MINUTES“
ELDFJALLASETRIÐ
LAVA Á HVOLSVELLI ÞRÍHNÚKAGÍGUR RAUFARHÓLSHELLIR PERLA NORÐURSINS
100% 93% 70%88% 60%
60% 55% 51% 39% 26%