Morgunblaðið - 06.04.2017, Síða 80
80
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Bergljót Friðriksdóttir
beggo@mbl.is
„Gróðurinn kemur vel undan vetri,
eins og búast mátti við eftir óvenju
milt veður, og nú fer að verða
tímabært að hefja vorverkin,“ seg-
ir Steinunn Reynisdóttir, deild-
arstjóri garðyrkjudeildar Garð-
heima. „Reyndar er alltaf spurning
hvernig aprílmánuður verður og
hvort von er á páskahreti með
næturfrosti, en sem betur fer er
gróðurinn ekki kominn almenni-
lega af stað, þökk sé snjónum sem
færði hér allt á kaf í lok febrúar og
stoppaði plönturnar af.
Það þarf að gæta þess að hefja
vorverkin ekki of fljótt og best er
að bíða með sumt fram yfir páska,
eins og til dæmis að hreinsa beðin.
Aftur á móti er tilvalið að ráðast í
stórframkvæmdir á trjám, en besti
tíminn til að saga stórar greinar af
blæðurum, svo sem birki og hlyn,
er frá janúar og fram í lok mars
þegar trén eru enn í dvala. Ef það
næst ekki er skynsamlegt að hlífa
þessum trjátegundum á meðan
safastreymið er sem mest og bíða
með að saga greinar þangað til eft-
ir laufgun, í lok maí eða byrjun
júní.“
Glímt við mosa
Þannig að nú er brátt óhætt að
hreinsa öll beð, vel og vandlega?
„Lauf, mosi og greinar skýla
plöntunum yfir veturinn og það er
mikilvægt að leyfa því að liggja
fram á vor. Núna, þegar frost er að
fara úr jörðu, er hægt að fara
grófa yfirferð yfir beðin, en ráðlegt
er að hlífa viðkvæmari tegundum
þangað til ekki er lengur hætta á
næturfrosti, til aprílloka eða fram í
byrjun maí.“
Hvenær má ráðast í mosann?
„Um miðjan apríl er gott að snúa
sér að mosanum, hjá mörgum
garðeigendum er það fyrsta vor-
verkið að ráðast á grasflötina og
þann mosa sem hefur myndast yfir
veturinn. Mosi þrífst best í skugga
og getur dafnað við mun lægra
hitastig en gras; því á hann auðvelt
með að ná yfirhöndinni yfir köldu
mánuðina. Í vetur hafa verið kjör-
aðstæður fyrir mosann, óvenju
hlýtt og blautt, og því gæti stefnt í
mikið mosavor.
Þegar frost er að fara úr jörðu
er mosinn oft mjög lausgróinn og
hægt að fjarlægja hann á auðveld-
an hátt með garðhrífu. Að því
loknu er gott að stinga aðeins í
flötina með gaffli til að loft, kalk og
áburður eigi greiðari leið niður í
jarðveginn. Því næst er gott að
dreifa kalki á flötina, ég mæli með
Túrbókalki frá Áburðarverk-
smiðjunni. Að viku liðinni er tíma-
bært að bera áburð á flötina, ann-
aðhvort tilbúinn áburð eins og
Blákorn eða lífrænan, til dæmis
þörungamjöl eða búfjáráburð.
Nauðsynlegt er að dreifa vel úr
áburðinum, þannig að áburður eða
kalk sitji ekki eftir í hrúgum á flöt-
inni, en við það brennur hún og
ljótir gulbrúnir flekkir myndast. Í
lok maí eða byrjun júní er síðan til-
valið að strá grasfræi yfir flötina
til að þétta hana og fylla upp í sár-
in sem mosinn skilur eftir sig.“
Lífrænn áburður
Er líka gott að setja reglulega
áburð í öll beð?
„Já, meginreglan er að gefa
áburð einu sinni í mánuði í maí,
júní og júlí. Það á sama við um
beðin og grasflötina og gott að
gefa hvort heldur er tilbúinn áburð
eða lífrænan búfjáráburð.“
Hvenær er tímabært að klippa
limgerði?
„Snemma á vorin, í apríl og fram
í maí, áður en þau fara að laufgast.
Góð regla er að að klippa limgerðið
í svokallað A-form, þannig að það
sé sverast neðst, næst jörðu, og
mjókki eftir því sem ofar dregur.
Með því móti kemst sólin að öllum
greinum og limgerðið þrífst vel.“
Hvað með rósir?
„Það er óhætt að klippa núna í
apríl harðgerðari rósategundir, svo
sem hansarós, fjallarós, þyrnirós
og hjónarós. Best er að bíða fram í
maí með viðkvæmari tegundir; aðr-
ar eðalrósir sem fólk er með upp
við hús. Góð regla er að fjarlægja
þykkar greinar í miðju rósarinnar,
svokallaða myrkrasprota, en halda
eftir fínni greinum því á þær koma
rósarblómin.“
Vinsælir vorlaukar
Forræktun á grænmeti og kart-
öflum, hvenær hefst hún?
„Gott er að huga að forræktun á
grænmeti núna, í byrjun apríl, og í
Garðheimum erum við með mikið
úrval af grænmetisfræjum. Kart-
öfluútsæði þarf að láta spíra áður
en því er plantað. Heppilegast er
að láta kartöflur spíra í birtu en
ekki miklum hita og bílskúr með
glugga er til dæmis upplagður til
þess.“
Tími vorlaukanna er væntanlega
líka runninn upp?
„Flestir vorlaukar blómstra síð-
sumars og því er forræktun nauð-
synleg, til að tryggja blómstur fyr-
ir fyrstu haustfrost. Meðal
vinsælla tegunda eru anemónur,
dalíur, begóníur, gladíólur og lilj-
ur. Best er að byrja með for-
ræktun í eldhúsglugganum en færa
laukana svo yfir í kaldara rými, svo
sem í bílskúrinn þar sem nýtur
dagsbirtu og hægt er að lofta vel.
Það er líka skemmtilegt að sá
fyrir sínum eigin sumarblómum og
oft borgar sig að forrækta þau
inni. Byrja í febrúar í eldhúsglugg-
anum, venja plönturnar svo við
með því að flytja þær í vermibeð
og þaðan út í garð í maí eða byrjun
júní. Reikna má með fjórum til
átta vikum þar til hægt er að
planta til dæmis alísu, morgunfrú
og flauelsblómi út á vaxtarstað.
Aðrar plöntur þurfa lengri tíma,
svo sem stjúpur, silfurkambur og
petúnía.“
Aspirnar felldar
Er mikilvægt að nota réttu verk-
færin í garðavinnunni, sérstaklega
þegar um stærri verk er að ræða,
til dæmis trjáklippingar?
„Já, það er lykilatriði og í Garð-
heimum bjóðum við upp á vönduð
verkfæri og tól, allt frá litlum
handklippum upp í stór tæki og
keðjusagir. Hjá okkur er breitt
vöruúrval og verkfæri sem henta
bæði garðeigendum og stórum
garðverktökum.“
Trjáfellingar – er öspin enn víða
til vandræða í húsagörðum?
„Aspir þóttu eitt sinn góðar
plöntur í garða en nú eru þær ein-
mitt víða frekar til ama. Þær
skyggja á annan gróður, skjóta
rótum um allt og taka næringu frá
öðrum plöntum. Þegar fella þarf
stór tré í görðum er nauðsynlegt
að úthugsa verkið áður en hafist er
handa svo ekki hljótist tjón af. Það
þarf að finna út hvert tréð á að
falla og saga stofninn með tilliti til
þess; tryggja að tréð falli ekki á
plöntur eða jafnvel hús eða bíl ná-
grannans. Fyrir þá sem ekki
treysta sér í verkið er gott að leita
til fagaðila.“
Forræktun
í eldhús-
glugganum
Steinunn Reynisdóttir, deildarstjóri í Garðheimum, segir
skemmtilegt að sá fyrir sínum eigin sumarblómum og oft
borgi sig að forrækta þau inni. Byrja í febrúar í eldhúsinu,
venja plönturnar svo við með því að flytja þær í vermibeð
og þaðan út í garð í maí eða byrjun júní.
Morgunblaðið/RAX
Mosavor Steinunn Reynisdóttir, deildarstjóri í Garðheimum: „Mosi þrífst best í skugga og getur dafnað við mun
lægra hitastig en gras, því á hann auðvelt með að ná yfirhöndinni yfir köldu mánuðina. Í vetur hafa verið kjör-
aðstæður fyrir mosann, óvenju hlýtt og blautt, og því gæti stefnt í mikið mosavor.“
Undirbúningur Ágætt er að byrja forræktun á grænmeti í aprílmánuði.
Verkfæraskápur 188 verfæri
Inniheldur 1/4", 3/8" & 1/2" topplykasett.
Splittatangir, skrúfjárn, fastir lyklar,
tangir, meitlar, sexkantar, rennimál og þjalir.
Þolir skrúfstykki, 7 skúffur.
Vörunúmer: USG FIR7B
Verkfærasalan - Síðumúla 11 - Dalshrauni 13 - 560-8888 - www.vfs.is
107.900
Tilboð
87.900
Tilboð
Verkfæraskápur 172 verfæri
Inniheldur 1/4", 3/8" & 1/2" topplykasett.
Splittatangir, skrúfjárn, fastir lyklar, skralllyklar
tangir, meitlar, sexkantar, rennimál og þjalir.
Þolir skrúfstykki, 7 skúffur.
Vörunúmer: USG FIR7B-FOAM
VORVERKIN