Morgunblaðið - 06.04.2017, Page 87

Morgunblaðið - 06.04.2017, Page 87
MINNINGAR 87 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017 ✝ Sigurbjörg Sig-urðardóttir fæddist 26. janúar 1950 í Reykjavík. Hún lést 30. mars 2017 á Landspítal- anum við Hring- braut. Foreldrar hennar voru Sigurður Nor- mann Júlíusson, vaktmaður í Reykja- vík, f. 14. júlí 1918 á Patreksfirði, d. 25. desember 1981 í Reykjavík, og kona hans Guðfinna Eugenía Magnúsdóttir, húsfreyja, f. 11. október 1921 í Ytri-Njarðvík, d. 6. júlí 2009. Sigurbjörg var næstyngst fjögurra systkina, þau eru: Magnea Áslaug Sigurðardóttir, f. 23. febrúar 1947, Erling Jó- hann Sigurðsson, f. 10. júní 1948, og Gunnar Þór Sigurðsson, f. 15. október 1956. þeirra: Adam Ingi og Viktor Sölvi. d) Axel Kristinsson háskóla- nemi, f. 27. desember 1988, kvæntur Rán Ólafsdóttur há- skólanema. Dóttir þeirra: Sara. Sigurbjörg lauk skyldunámi og eftir það vann hún ýmis versl- unarstörf. Meirihluta starfsævi sinnar vann hún sem dagmóðir, eða í rúm 35 ár. Sem dagmóðir lagði hún áherslu á að öll börn fengju nóg af ást og umhyggju, sem hún veitti óspart. Sigurbjörg sem alltaf var köll- uð Sibba, eða amma Sibba, var mikil fjölskyldukona og traust bakland barna sinna og barna- barna. Hún var sérfræðingur í allri handavinnu hvort sem það var prjónaskapur, útsaumur eða kortagerð. Útför Sibbu fer fram frá Sel- tjarnarneskirkju í dag, 6. apríl 2017, og hefst athöfnin kl. 13. Sigurbjörg giftist Kristni Hraunfjörð Hugasyni, f. 1. des- ember 1944, stræt- isvagnastjóra, hinn 25. apríl 1968. Börn þeirra: a) Dagbjört H. Krist- insdóttir, hjúkrun- arfræðingur, f. 8. apríl 1968, gift Páli Bragasyni rafeinda- virkja. Dætur þeirra: Lilja Dís, Guðbjörg Eva og Katla Sigurást. b) Magnús H. Kristinsson hug- búnaðarsérfræðingur, f. 24. des- ember 1969, kvæntur Gígju Sig- urðardóttur leikskólakennara. Börn þeirra: Sigurður Gunnar, Freyja og Björk. c) Bjarki H. Kristinsson tölv- unarfræðingur, f. 9. janúar 1982, í sambúð með Jónu Björk Viðars- dóttur næringarfræðingi. Synir Hún sem ég unni er horfin í rúm og tíma, þannig reit faðir minn að móður minni látinni og nú vil ég heimfæra þessa setn- ingu á mig og mína. Okkar fyrstu kynni voru árið 1966 þegar glæsileg stúlka með koparrauða lokka var að vinna á Hótel Skjaldbreið við Austur- völl. Ég féll í stafi er ég fékk hana að sjá, var strax skotinn í henni og gaf henni undir fótinn. Ekki þótti henni það verra en svo að stuttu síðar var hún orð- in heimagangur í húsi foreldra minna þar sem ég bjó. Henni var vel tekið af öllum heima og heiman. Vorið 1968 giftum við okkur, eignuðumst frumburðinn og okkar fyrstu íbúð að Langholts- vegi 93. Árið 1977 fluttum við okkur um set yfir í eldra ein- býlishús, Blómvelli við Nesveg á Seltjarnarnesi, þá komin með tvö börn. Síðar bætast við tveir drengir í viðbót. Árið 2007 færð- um við okkur um set á Nesinu yfir í Hofgarða með tvo yngstu drengina. Sibba sá fljótt að mín verka- mannalaun dygðu skammt til að framfleyta fjölskyldunni svo hún fór að vinna sem dagmóðir og vann við það í 35 ár, eða þar til hún veiktist. Ekki lét hún hugfallast við erfiða geisla- og lyfjameðferð, heldur ætlaði að sigrast á meininu. En 30. mars síðastliðinn sigraði meinið hana. Hún sem ég unni er horfin í rúm og tíma og heimurinn tapar að missa af slíkri sem þér. Blessuð sé minning þín elsku, Sibba mín. Kristinn Hraunfjörð. Það er erfitt að sjá á eftir móður sinni á degi sem þessum, en ég er viss um að hún er kom- in á góðan stað þar sem hún getur haldið áfram að gleðjast með öðrum. En mitt í þessum erfiðleikum koma upp í huga minn allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Þar er af miklu af taka, en efst í huga mér eru ferðalög okkar saman um ósnortin víð- erni Íslands. Allt frá Skoda með tjald upp í Rússajeppa húsbíl var farið á ólíklegustu staði. Lífið er lítið sandkorn í tímaglasi, liðast áfram innan um öll hin. Við finnum fyrir margra annarra fasi, og föngum þeirra gleði skin. Færumst til og tengjumst nýjum, töpum sumra vina dögum. Færumst nær himnahliðum hlýjum, og hugum að loka drögum. Gegnum síu lífsins loksins sleppum, lokum bók og kveðjum vini. Því eigi lengur við lífið við keppum, heldur lifum í vina skini. Magnús H. Kristinsson. Elsku mamma. Ég var hinn týpíski vanþakkláti unglingur sem kunni ekki að meta þig né hið góða líf sem þú gafst mér. Það var ekki fyrr en ég eign- aðist börn sjálfur að ég fór fyrst að skilja allt það sem þú hefur gert fyrir mig og alla þína nánustu. Þú varst manneskja sem hugsaðir fyrst og fremst um hvað þú gætir gert fyrir aðra. Þínar eigin þarfir voru auka- atriði. Ég vona að ég geri þig stolta og ég mun gera mitt besta til að veita fjölskyldu minni jafn mikla ást og þú gafst okkur. Ég á erfitt með að koma tilfinn- ingum mínum í orð en samdi þetta fyrir þig. Með vorinu kemur sólin sem skín, stundir af birtu fyllast. En ljóssins logar ná ei til mín, láta af vegi villast. Söknuð slíkan fundið hef ekki, er skapast við brottför þína. Myrkrið máttugt núna ég þekki, mömmu ég vil aftur mína. En lífsins lærdóm núna ég flyt, til lærlinga tveggja minna. Ást, alúð, umhyggju‘og vit, áfram til ömmustráka þinna. Bjarki Hraunfjörð Kristinsson. Elsku mamma, þú varst svo einstök manneskja að svo mörgu leyti. Þú varst með ein- dæmum jákvæð, dugleg, hug- rökk og glaðlynd, en það sem einkenndi þig sennilega mest var að þú varst skilyrðislaust góð við allt og alla í kringum þig og bara það að þurfa að skrifa um það í fortíð er þyngra en tárum taki. Í dauðanum erum við sam- ansafn af þeim áhrifum sem við höfum ennþá á heiminn í gegn- um hugsanir og gjörðir ann- arra. Ég trúi því einlægt að flestir, ef ekki allir, sem hafa fengið þann heiður að kynnast þér séu betri einstaklingar fyrir það að einhverju ráði. Allt frá því að hugsa jákvætt þótt á móti blási, eins og þú gerðir stanslaust í veikindum þínum, í það að hafa einstaka þolinmæði gagnvart mistökum, eða í það atriði sem sennilega allir sem þú passaðir gera enn í dag; klára matinn sinn áður en maður fær sér eftirrétt. Þá er ég viss um það að ef við til- einkum okkur hugsunarhátt þinn og framkomu verður heim- urinn sannarlega betri staður. Góða nótt mamma, ég sakna þín og ég elska þig, alltaf. Axel Kristinsson. Fyrir okkur var amma okkar miklu meira en bara amma. Þegar við vorum yngri fórum við ávallt heim til hennar í stað þess að fara heim eftir skóla. Þar beið hún yfirleitt með svuntu um mittið, nýbúin að baka eitthvað eða í miðjum bakstri og við fengum að hjálpa, þó að hjálpin fælist oft- ar en ekki í því að borða deig- ið svo það væri minna til að baka, svo var afraksturinn borðaður og farið út í garð því það var alltaf gott veður á Blómvöllum. Amma sýndi okkur hvernig ætti að lifa lífinu. Ekki eyða tíma í að gera hluti sem þér finnst ekki skemmtilegir, ekki eyða tárum í þá sem eru ekki þess virði, lifðu þínu lífi eins og þú vilt. Þessi orð endur- spegla þessa mögnuðu konu sem ávallt hélt hátíðlega upp á hvert afmæli, sama hve gömul hún varð, því það þýddi að hún væri enn á lífi. Eftir að afi veiktist eyddum við mun meiri tíma með ömmu, þó var hún aldrei ein því ávallt voru margir sem heimsóttu hana og var risa- stóra innkeyrslan hjá henni oftar en ekki full. Amma var fyrirmynd allra, blíð, hlý, góð, glaðlynd og lét ekkert á sig fá. Eitt sinn sagði nágrannakonan við ömmu að hún vildi verða eins amma og hún, hafa alltaf líf í húsinu. Orð fá því ekki lýst hversu sárt hennar verður saknað, hvert eigum við nú að leita ef við læsum okkur úti, vantar eitthvað í baksturinn, langar í bollubrauð eða bara hlýja nærveru? Að missa ömmu er eins og að missa útlim, við verðum nú að aðlaga okkur til að geta lif- að án hennar. Amma var okk- ur meira en bara amma, hún var hetjan okkar. Lilja Dís, Guðbjörg Eva og Katla Sigurást Pálsdætur. Í dag kveðjum við ömmu Sibbu. Margs er að minnast, amma virtist þekkja alla á Nesinu, hvort sem það var þegar hún fór til læknis eða út í búð, enda passaði amma margar kynslóðir barna af Nesinu. Amma var eiginlega Disn- ey-uppskrift að því hvernig ömmur eiga að vera; þolinmóð, jákvæð, góðhjörtuð kona sem bakaði og föndraði. Því að amma gladdist í raun í gegn- um aðra. Allt sem hún föndr- aði var handa öðrum; kortin, kassarnir og myndirnar; öll listaverkin hennar. Minningarnar lifa um allar veislurnar sem haldnar hafa verið á Blómvöllum og Hof- görðum í gegnum árin. Siggi bjó líka hjá ömmu um skeið þegar afi veiktist og amma var ein í sínu stóra húsi og á þaðan yndislegar minn- ingar. Það var bakað, eldað og rólegum kvöldum eytt fyrir framan sjónvarpið, ásamt því að skoða úrvalið af föndurvör- um á netinu. Þegar við fengum að gista hjá þeim ömmu og afa var horft á Disney-myndir á spól- um eða DVD-diskum. Þá var alltaf Cocoa Puffs í morgunmat en ef það var ekki til þá korn- flex með sykri. Það var alltaf eitthvað skap- andi gert heima hjá ömmu enda nægur efniviður til. Kortagerð og að teikna, lita eða perla, að ekki sé nú minnst á bakstur. Amma hafði að sjálfsögðu verið veik mjög lengi en í okk- ar huga var hún aldrei sjúk- lingur. Hún kvartaði aldrei heldur hélt alltaf í gleðina, já- kvæðnina og þolinmæðina. Við kveðjum ömmu með sorg í hjarta en full af þakklæti fyr- ir tímann sem við fengum með henni. Sigurður (Siggi), Freyja og Björk. Sibba var góð kona. Sibba var góð móðir og hún var ynd- isleg amma. Hún var líka ein- staklega barngóð. Heima hjá okkur er hún aldrei kölluð ann- að en amma Sibba. Og Kiddi er aldrei kallaður annað en afi Kiddi. Þau störfuðu saman í mörg ár sem dagforeldrar og börnin okkar þrjú voru svo lán- söm að vera í gæslu hjá þeim hjónum sín fyrstu skref á leið- inni út í lífið. Þar var vel hugs- að um þau og þar leið þeim vel. Það var eins og að vera í pöss- un hjá ömmu og afa. Það er alltaf erfitt fyrir ný- bakaða foreldra að treysta ókunnugu fólki fyrir gullmol- unum sínum en hjá Sibbu og Kidda voru börnin okkar eins og blómi í eggi. Umhyggja og væntumþykja Sibbu fylgdi börnunum áfram og tengslin rofnuðu aldrei. Börnin okkar minnast ömmu Sibbu sem góðrar og hjartahlýrrar konu og það komu tár á hvarma við tíðindin um að hún hefði kvatt að sinni. Sibba var mjög stolt af fjöl- skyldu sinni og afkomendum. Hún mátti líka alveg vera það enda hafa þau erft þann dugn- að og eljusemi sem hefur ein- kennt Sibbu og Kidda alla tíð. Sibba var kona sem hefði átt skilið að eiga rólegt og áhyggjulaust ævikvöld eftir vel unnin störf og allt það góða sem hún hafði gefið af sér. En það er því miður ekki alltaf spurt um sanngirni þegar lífið á í hlut. Við sendum afa Kidda og fjölskyldu ömmu Sibbu okkar innilegustu samúðarkveðjur með þakklæti í hjarta fyrir það að hafa fengið að kynnast þess- ari góðu konu. Við gleymum ömmu Sibbu aldrei. Sigrún (Silla), Sigþór (Siddi), Sveinn, Arnar og Íris. Sigurbjörg Sigurðardóttir Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR, Bóa í Tjörn. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili Akranesi, fyrir góða umönnun og hlýhug. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnþórunn Aðalsteinsdóttir ✝ Pétur Gíslasonfæddist 4. jan- úar 1968. Hann lést 19. mars 2017. Foreldrar hans eru Auður Ár- mannsdóttir Carl- son, f. 7. maí 1948, d. 28. mars 2015, og Gísli Dagbjartsson, f. 31. mars 1947. Hálfbræður Péturs, sammæðra, eru Konstantín Moraidis, f. 26. des- ember 1978, og Alexander Moraidis, f. 1. mars 1980, báðir búsettir í Lundi í Svíþjóð, og Benjamín Carlson, f. 10. sept- ember 1990, d. 28. apríl 2010. Hálfbróðir Péturs, samfeðra, er Sturla Freyr Gíslason, f. 14. júní 1990. Pétur kvæntist Mariu En- arsson, f. 9. nóvember 1964 í Lundi, Svíþjóð. Foreldrar Mariu eru Rolf Enarsson og Ingrid En- arsson. Börn Péturs og Mariu eru Clara Saga Pétursdóttir, f. 23. apríl 1998, og Viggó Ármann Pétursson, f. 5. nóvember 2003. Maria átti fyrir tvær dætur. Pét- ur ólst upp í Sví- þjóð, bjó lengst af í Lundi við nám og störf, starfaði m.a. fyrir flugfélag og ferðaskrifstofu, fyrir utan tvö ár sem hann bjó með móður sinni, fóstur- föður og tveimur bræðrum í Thessa- loniki í Grikklandi. Hann dvaldi í nokk- ur sumur í Mývatnssveit hjá afa sínum Ármanni Péturssyni, bónda í Reynihlíð, og vann þar ýmis störf. Pétur flutti ásamt fjölskyldu sinni í Mývatnssveit haustið 2002, tók þar við og rak landareign afa síns Ármanns Péturssonar, auk þess sem hann átti og rak Hótel Reykjahlíð frá 2004 til 2012. Pétur var bæði góður briddsspilari og skák- maður og keppti í hvoru tveggja auk þess sem hann hafði mikla ánægju af veiðiskap. Útför Péturs fór fram í kyrr- þey frá Fossvogskapellu 29. mars 2017. Ég kynntist Pétri Gíslasyni þegar hann var 9 ára. Hann kom einsamall frá Svíþjóð til að vera hjá afa sínum í Mývatnssveit. Hann var svo duglegur þessi litli drengur, fékk t.d. að vaska upp á hótelinu (Reynihlíð) og fékk í staðinn franskar kartöflur, hann bað ekki um meira. Hann var skapmikill og lét ekki vaða yfir sig, óprúttnir einstaklingar gerðu sér að leik að reita hann til reiði, sem ekki var erfitt, þeir gerðu hann svo reiðann að hann henti grjóti í hvað sem fyrir varð. Hann varðist með grjótinu, hann hafði lært það að hann þurfti að verja sig sjálfur, það var enginn annar til þess. Mér þótti strax vænt um Pétur, svo fallegur, dug- legur, hafði mikinn áhuga á fót- bolta og þarfnaðist svo hlýju. Hann var hrifinn af frænda sín- um, „Stóra“ (Pétri) bar mikla virðingu fyrir honum og var oft með okkur í för. Hann var líka hjá okkur þegar mamma hans flúði frá Grikklandi fyrir nær 40 árum með hann elst- an þriggja bræðra. Hann átti ekkert nema eitt lítið ferðatafl og fötin sem hann stóð í þegar hann kom. Hann ríghélt í taflið sitt sem var vafið með teygju til að það opnaðist ekki. Hann faðmaði svo fast og hélt í höndina á mér eins og það væri síðasta hálmstráið. Seinna var hann oft hjá okkur, passaði stelpurnar okkar, vann hjá okkur og við deildum með honum gleði og sorg. Við „Stóri“ fórum líka í brúðkaupið hans í Svíþjóð, þar sem hann giftist henni Maríu sinni. Yndislegt brúðkaup og brúðkaupsveisla, mamma hans var innilega glöð og við hlógum og skemmtum okkur. Mér fannst hann líka svo glaður og ég óskaði þess innilega að hann eignaðist gleðiríkt og gæfusamt líf. Með Maríu eignaðist hann síðan börn- in sín tvö þau Viggó og Clöru sem hann var svo stoltur af. Pétur var mikill veiðimaður, skákmaður bridgespilari og tungumálamaður, talaði meðal annars grísku. Hann átti og rak hótel og heillaði túrista sem leið- sögumaður. Hann var fæddur sölumaður, einstaklega brosmild- ur, greindur og sannfærandi. En það var á brattann að sækja hjá honum, lífið bar hann einhvern veginn ofurliði. Hann hafði aldrei þá bakhjarla sem hans viðkvæma hjarta þurfti. Þrátt fyrir eiginkonu, börnin og marga vini þá dugði það ekki. Uppvöxturinn var svo erfiður, óöryggið og fátæktin, allsleysið og mikill blóðhiti varð sennilega til þess að Pétur minn höndlaði ekki lífið. Hann missti móður sína á besta aldri og sinn yngsta bróð- ur ungan að aldri og skildi líka við Maríu. Hann eignaðist peninga en tapaði þeim. Hann var heims- maður en samt lítill og viðkvæm- ur. Hann hafði kannski aldrei haft forsendur til að farnast vel en átti þó margar góðar stundir. Hann var alla tíð mikill bridge- spilari og hélt dauðahaldi í það, dreymdi um að verða bridgespil- ari í Ameríku, í liði sem væri kostað af einhverjum „forríkum“. Hann var heilsuveill og einn þeg- ar við hittumst síðast á Akureyri í hádegismat fyrir rúmum tveimur árum. Mér þótti alltaf jafnvænt um hann og þykir enn. Ég sendi Maríu, börnunum hans þeim Viggo og Clöru, bræðrum hans Alex og Konna mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hvíl í friði, vin- ur minn. María Rúriksdóttir. Pétur Gíslason Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.