Morgunblaðið - 24.02.2018, Side 1
lega var hvellurinn í gær sá síðasti að sinni, því spáð er ró-
legra veðri á næstunni.
Á þeim tæplega fjórum mánuðum sem liðnir eru frá því að
Veðurstofan tók upp nýtt viðvörunarkerfi hefur mátt sjá app-
elsínugular viðvaranir hátt í tíu sinnum. Gular viðvaranir
hafa á þessum tíma nánast verið daglegt brauð en Veður-
stofan hefur ekki enn gefið út rauða viðvörun um óveður af
sjaldgæfum styrk, en það er hæsta stigið. »6
Morgunblaðið/RAX
Þrátt fyrir misjafnt veður undanfarnar vikur hefur lítið lát
verið á straumi ferðafólks um Suðurland. Á fimmtudag var
fjöldi ferðamanna við Dyrhólaey þó svo að Vetur konungur
minnti á sig, en úti fyrir voru loðnuskip að veiðum. Hugsan-
Vetur, vertíð
og ferðafólk
Snappstjarnaí að lh
Sagan öll
25. FEBRÚAR 2018SUNNUDAGUR
Sænska leik-konan SofiaHelin hefurhlotið heims-frægð fyrirtúlkun sína áSögu Norén ísjónvarps-þættinumBrúnni 8
Leiðarvísirhamingju
Hamingjan er fallvölt en vísindamenn
segja þó ýmsar aðferðir í boði til að
skera sér sneið af henni 16
Frísklegirlitir að
vori
Sandlitaðog ljósbrúntverður
áberandi 26
L A U G A R D A G U R 2 4. F E B R Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 47. tölublað 106. árgangur
MAMMÚT
FÉKK FLESTAR
TILNEFNINGAR SMÁIR EN KNÁIR FUGLAR
LANGFÖRULL HAFTYRÐILL 16ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNIN 57
Umboðsmaður borgarbúa þarf að
jafnaði að bíða í 80 daga eftir svör-
um frá umhverfis- og skipulags-
sviði Reykjavíkurborgar en aðeins
13 daga sé erindum beint til ann-
arra sviða borgarinnar. Málafjöldi
og flókin stjórnsýsla eru sögð með-
al skýringa á þessu. »5
Bíður eftir svörum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tafir á „losun byggingarlands“ í
Vatnsmýri hafa aukið þrýsting á
flutning landfrekrar og grófrar iðn-
aðarstarfsemi úr Ártúnshöfða.
Þetta kemur fram í endurmati á
aðalskipulagi Reykjavíkur. Færa á
iðnað lengra út á jaðarsvæðin. Það er
ein mesta breytingin á skipulagi
borgarinnar síðustu áratugi. Mun
hún fela í sér tilflutning starfa.
Hjálmar Sveinsson, formaður um-
hverfis- og skipulagsráðs, segir
þetta hluta af þeirri stefnu að upp-
bygging íbúða fari fyrst og fremst
fram á þéttingarsvæðum. „Ég lít á
þetta sem endurreisn borgarinnar.
Hún er öll á þéttingarsvæðum.“
Þarf samkomulag um lóðir
Hjálmar segir vægi iðnaðar fara
minnkandi í höfuðborginni. Það kalli
á endurmat iðnaðarsvæða. Nú séu
aðeins tvö sveitarfélög, Reykjavík og
Hafnarfjörður, með „alvöruiðnaðar-
svæði“ á höfuðborgarsvæðinu. Sveit-
arfélögin þurfi að koma á samkomu-
lagi og finna jafnvægi í því hver
útvegar lóðir undir slíka starfsemi.
Þá þurfi að bera saman ávinninginn
af íbúðar- og iðnaðarsvæðum.
Spurður um þá gagnrýni Eggerts
Þórs Kristóferssonar, forstjóra N1,
að verið sé að ýta bílaleigum út úr
Reykjavík segir Hjálmar land orðið
of verðmætt til að leggja stór svæði
undir stæði fyrir bílaleigur. Það sé
því „ekki óeðlilegt að slíkri aðstöðu
sé komið fyrir við Keflavíkurflug-
völlinn“. Þar séu ferðamennirnir.
Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæð-
ismanna í borginni, hefur gagnrýnt
hæga fjölgun nýrra íbúða. Hjálmar
segir nú standa yfir „mesta upp-
byggingarskeið í sögu borgarinnar“.
Tafir í Vatnsmýri þrýsta
á byggingu nýrra hverfa
Formaður skipulagsráðs segir iðnað fara á jaðarsvæði
Morgunblaðið/RAX
Flugvöllur Lóðir hafa losnað hægar
í Vatnsmýrinni en borgin ráðgerði.
Um 440 á ári
» Íbúum Reykjavíkur fjölgaði
um 4.419 árin 2008 til 2017,
eða um ríflega 440 á ári.
» Það er 3,7% íbúafjölgun.
» Til samanburðar fjölgaði
íbúum í Kópavogi um 22%.
» Fjölgun íbúða í Reykjavík
sömu ár er hlutfallslega
minnst á höfuðborgarsvæðinu.
MNýja hagkerfið þarf nýtt … »10
Hilmar Janusson er forstjóri líf-
tæknifyrirtækisins Genis á Siglu-
firði, sem er í eigu Róberts Guð-
finnssonar athafnamanns.
Hilmar segir í viðtali við Morgun-
blaðið í dag að fyrirtækið undirbúi
nú næstu stóru skrefin á markaði og
til að svo megi verða hafi fyrirtækið
samið við Gamma ráðgjöf, sem muni
koma að því að afla allt að tveggja
milljarða króna, bæði frá alþjóð-
legum og innlendum fjárfestum.
Genis markaðssetti í fyrrasumar
fæðubótarefnið Benekta inn á Bret-
landsmarkað og á Íslandi. »4
Genis í
stórsókn
Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfa-
dóttir iðnaðar- og
nýsköpunar-
ráðherra hefur
ákveðið að gefa
kost á sér sem
varaformaður
Sjálfstæðisflokks-
ins á landsfundi í
næsta mánuði. Hún greinir frá þessu
í pistli sem hún skrifar í sunnudags-
blað Morgunblaðsins í dag.
Gefur kost á sér
sem varaformaður
Þórdís K. Reykfjörð
Gylfadóttir