Morgunblaðið - 24.02.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018
Fyrsta Boeing 737 MAX-flugvél Icelandair, sem
ber einkennisstafina TF-ICE, kemur hingað til
lands á næstu vikum og fer hún í notkun í apríl
nk. Félagið samdi fyrir nokkru við Boeing um
kaup á sextán flugvélum af þessari gerð og
verða þær allar afhentar innan fjögurra ára, en
Icelandair fær þrjár MAX-vélar afhentar á fyrri
hluta þessa árs. Forstjóri Icelandair Group hefur
sagt komu nýju vélanna „mikil tímamót“.
Vélin er komin í einkennisliti Icelandair en
málningarvinna verður hins vegar fullkláruð
eftir komu þotunnar hingað til lands.
Nýjasta viðbót flugfélagsins prófuð yfir verksmiðju Renton skammt frá Seattle í Bandaríkjunum
Ljósmynd/Icelandair
Fyrsta MAX-vél Icelandair væntanleg á næstu vikum
Helgi Bjarnason
Erna Ýr Öldudóttir
Liðlega 53 þúsund laxar drápust í
sjókví Arnarlax í Tálknafirði eftir
skemmdir sem urðu á kvínni í óveðri
í byrjun vikunnar. Það er svipað
magn af laxi og stangveiðimenn
veiddu í öllum ám landsins árið 2016.
Óttar Yngvason lögmaður, sem
kemur fram fyrir hönd Náttúru-
verndarsamtaka Íslands, Náttúru-
verndarfélagsins Laxinn lifi og tíu
veiðiréttarhafa, óskaði eftir upplýs-
ingum hjá Matvælastofnun (MAST)
um skemmdir sem urðu á sjókví
Arnarlax í Tálknafirði á dögunum.
Í svari MAST kemur fram að
stofnunin fékk fyrstu tilkynningu
um atvikið mánudaginn 12. febrúar.
Í kvínni voru 194.259 laxar. Hún
var tæmd og drápust 53.110 laxar.
Til samanburðar má geta að á árinu
2016 voru veiddir á stöng í öllum ís-
lensku laxveiðiánum 53.600 laxar.
„Hluti laxanna drapst því við
ákváðum að færa allan laxinn úr
laskaðri sjókví yfir í örugga kví.
Flothringur kvíarinnar hafði farið í
sundur, en inni í honum eru flotholt
og auk þess er annar hringur sem
heldur kvínni á floti. Það var því ekki
mikil hætta á ferðum, en við vildum
hafa vaðið fyrir neðan okkur og tók-
um ákvörðunina strax,“ segir Vík-
ingur Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Arnarlax. Hann segir af og frá
að laskaða kvíin hafi sokkið eða verið
að sökkva. Allur lax hafi verið fluttur
úr henni í örugga kví. Ráðstöfunin
hafi verið gerð til að gæta fyllstu var-
úðar, m.a. vegna slæmra vetrar-
veðra.
Atvikið tilkynnt strax
„Við daglegt eftirlit með sjókvíun-
um kom í ljós að ein kvíin hafði lask-
ast í illviðri. Við tilkynntum atvikið
strax til MAST og Fiskistofu og upp-
lýstum um fyrirhugaða ráðstöfun, að
færa laxinn. Þar sem ekki var um
mengunarslys að ræða láðist okkur
að tilkynna atvikið Umhverfisstofn-
un og höfum beðist velvirðingar á
því.“
Víkingur segir að flutningur á löx-
unum hafi heppnast eins og best
varð á kosið, en fyrirfram var vitað
að talsverð afföll gætu orðið við að-
gerðina. „Nú er kaldasti tími ársins í
sjónum og laxinn þolir mjög lítið
rask við þær aðstæður.“
Laxinn sé ekki fullvaxinn, en verði
tilbúinn til slátrunar í vor og sumar.
Laxarnir sem drápust verði nú nýtt-
ir í ódýrari afurðir eins og t.d. refa-
fóður. Það sé mögulegt tjón fyrir
Arnarlax, sem hefði getað selt laxinn
í sláturstærð fyrir hæsta verð á
mörkuðum í sumar. Enn sé upphæð
tjónsins ekki vituð eða hver ber það.
MAST telur sig hafa skýrar upp-
lýsingar um atvikið og viðbrögð fyr-
irtækisins, að því er fram kemur í
svarinu til Óttars, og álítur út frá
þeim gögnum og ljósmyndum sem
hún hefur fengið frá Arnarlaxi að
fyrirtækið hafi brugðist rétt við til að
fyrirbyggja frekara tjón. Starfs-
menn stofnunarinnar fara vestur til
eftirlits um leið og veður leyfir og
gera frekari úttekt á sjókvíunum og
viðbrögðum fyrirtækisins.
53 þúsund laxar drápust
Svipaður fjöldi laxa drapst hjá Arnarlaxi og veiddist á stöng árið 2016 Atvikið megi rekja til örygg-
isráðstafana MAST telur sig hafa fengið skýrar upplýsingar um atvikið og viðbrögð fyrirtækisins
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Arnarlax Laxar drápust hjá fyrir-
tækinu við flutning milli kvía.
Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út í gærkvöldi að
Hlemmi í Reykjavík en þar losnaði um stórt skilti fram-
an á stórbyggingu sem þar er. Mikill viðbúnaður var við-
hafður, því skiltið er fjórir metrar á lengd og tvö hundr-
uð kílóa þungt.
Sitthvað fór úr skorðum í óveðrinu í gær. Síðdegis valt
sendiferðabíll á Breiðholtsbraut þegar vindhviða reif í
kassa bílsins, tók hann niður og lagði á hliðina.
Starfsfólk sveitarfélaga og slökkviliðsmenn á höfuð-
borgarsvæðinu þurftu að sinna ýmsum útköllum í gær
vegna vatnsveðursins. Úrhellið olli því til dæmis að í
slökkum á vegum mynduðust miklir pollar og höfðu nið-
urföll og ræsi ekki undan á tímabili.
„Þetta veður er nú ekkert meira en venjulegur góður
vetrarstormur með suðaustanátt, hlýindum og rign-
ingu,“ sagði Óli Þór Árnason veðurfræðingur í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi. Klukkan 21 var uppsöfnuð
sólarhringsúrkoma í Reykjavík orðin 15 millimetrar en
44 millimetrar á Kvískerjum í Öræfasveit. Slíkt er mikið
en þó ekkert met. Óveðurshvellurinn átti að ganga niður
í nótt og næstu daga má vænta skaplegrar veðráttu;
nokkurra stiga hita og rigningar, svo snjó á láglendi ætti
að taka upp að mestu – en víða er þegar marauð jörð.
sbs@mbl.is
Skilti losnaði og bíll valt
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Aðgerðir Björgunarmenn fóru á ystu nöf og út á skiltið.
Viðbúnaður við Hlemm Stormur og ausandi úrkoma
Jarðskjálftahrinan við Grímsey,
sem staðið hefur síðustu daga, er í
rénun. Enn mælist þó fjöldi lítilla
skjálfta sem koma jafnvel í lotum
og ná allt að 3 að styrkleika.
Í fyrrinótt mældust til að mynda
tveir skjálftar, 2,8 að stærð, sem
áttu upptök um 13 kílómetra norð-
ur af Grímsey. Á fimmtudag varð
skjálfti af stærð 3,6 úti á Öxarfirði,
en sá átti aðrar upptakastöðvar en
hræringarnar við Grímsey.
sbs@mbl.is
Jarðskjálftahrina
virðist að fjara út
Eigum til á lager ítalskt skrautjárn
semhentar í handrið o.fl.
Getumeinnig sérpantað smíðajárn.
ÍTALSKT
SMÍÐAJÁRN
Ingi@jarnprydi.is | Gsm: 822 1717
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði nokkrar kannabisræktanir
í umdæminu. Lagt var hald á nærri
400 kannabisplöntur í iðnaðarhús-
næði í Kópavogi ásamt sex kílóum
af kannabisefnum til sölu og búnaði
til ræktunar. Þrír voru handteknir.
Í bílskúr í austurborginni var lagt
hald á um 250 kannabisplöntur
ásamt ræktunarbúnaði og hálfu
kílói af kannabisefnum. Einn var
handtekinn. Rúmlega 70 kannabis-
plöntur fundust í fjölbýlishúsi í
vesturborginni og var einn hand-
tekinn. Loks lagði lögreglan hald á
eitt og hálft kíló af kannabisefnum
til sölu við húsleit í iðnaðarhúsnæði
í Hafnarfirði, ásamt ætluðu kókaíni
og MDMA, auk fjármuna. Einn var
handtekinn. Málin eru óskyld og
teljast öll upplýst.
Nokkrar kannabis-
ræktanir stöðvaðar