Morgunblaðið - 24.02.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.02.2018, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018 Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 FAI varahlutir Ódýrari kostur í varahlutum! stýrishlutir hafa verið leiðandi í yfir 10 ár. Framleiddir undir ströngu eftirliti til samræmis við OE gæði. Sími 577 1313 kistufell.com TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ Opið alla daga vikunnar. Viðburðardagatal á norraenahusid.is Hlýlegtmenningarhús í Vatnsmýrinni ÚR BÆJARLÍFINU Óli Már Aronsson Hellu Gjörvileiki ungmenna er mikils virði og alltaf skemmtilegt þegar ár- angur skilar sér í íþróttum, bæði and- legum og líkamlegum. Tveir piltar á Hellu hafa undanfarið skilað sínu að þessu leyti, svo tekið er eftir. Almar Máni Þorsteinsson varð kjördæm- ismeistari Suðurlands í skólaskák annað árið í röð núna um miðjan febr- úar í eldri flokki og Sindri Seim Sig- urðsson, sem keppti nýlega á Reykja- víkurleikunum 2018 í 600 m hlaupi 15 ára og yngri, varð í öðru sæti. Hann hljóp á tímanum 1:29,88 mín. og bætti sig um 9 sekúndur og sló ársgamalt HSK met. Hamingjuóskir til þeirra.    Rent-leigumiðlun stefnir hrað- byri að því að verða umsvifamikið fyr- irtæki í ferðaþjónustu á Hellu. Nú þegar er fyrirtækið eigandi að nokkr- um eignum, t.d. Hellubíói, þar sem rekin er gistiþjónusta, gamla slátur- húsinu við Þrúðvang og húsnæði á Rangárbakka 2, þar sem áður var verslunin Vörufell. Fyrirhugað er að gera miklar breytingar og endur- bætur á gamla sláturhúsinu og hafa þar veitingastað eða kaffihús á neðri hæð og gistiherbergi á efri hæð. Þá hefur félagið sótt um að byggja smá- hýsi til útleigu á lóðinni á Rang- árbakka 2, en sveitarstjórn hefur hafnað þeim áformum.    Naglafar ehf. er nafn á bygging- arfyrirtæki sem er í eigu Andra Leós Egilssonar og hefur verið nokkuð öfl- ugt í að byggja íbúðarhúsnæði á Hellu undanfarin 12 ár. Í upphafi var byggt parhús við Baugöldu og í fram- haldinu annað svipað hús við Hóla- vang og síðan fylgdi í kjölfarið þriggja íbúða raðhús við Skyggnis- öldu. Nú er Andri að byggja fjögurra íbúða raðhús við Baugöldu sem verð- ur tilbúið í sumar. Fram að þessu hafa allar íbúðirnar selst og ein af þeim fjórum sem nú eru í smíðum. Söluverðið er 270 þúsund á fm og eru íbúðirnar 128 og 137 fm. Þær verða afhentar fullbúnar með grófjafnaðri lóð og eru í sölu hjá fasteignasölunni Fannberg á Hellu.    Á Jarlsstöðum, sem er hluti af jörðinni Stóru-Völlum í Landsveit, er nú verið að byggja tvö 1.800 fm hús sem verða nýtt til alifuglaræktunar. Rangárbú ehf., sem er í eigu Þórs Þorsteinssonar, rekur starfsemina í samstarfi við Reykjagarð á Hellu, sem mun slátra og afsetja afurðirnar. Leggja þarf 1 km veg að húsunum og síðan 4 km af lögnum. Verkið tafðist nokkuð vegna ótta um að staðsetn- ingin hefði áhrif á vatnsgæði í vatns- bólum neðar í sveitinni. Farið var í ít- arlegar rannsóknir á svæðinu sem tóku eitt ár. Þær sýndu að engin áhrif myndu verða af starfseminni gagn- vart vatnsgæðum. Húsin eru upp- steypt með tvöföldum vegg og ein- angrun á milli.    Hleðslustöðvar fyrir rafmagns- bíla spretta nú upp eins og gorkúlur um allt land, en ekkert bólar á þeim á Hellu, a.m.k. ekki hingað til. Sveitar- stjóri segist vonast til að í samstarfi við þjónustuaðila á Hellu verði þetta að veruleika innan skamms. Hreiðar Hermannsson, hótelstjóri og eigandi Stracta hótels, segir að slík stöð hafi verið á áætlun um nokkurt skeið og verði vonandi að veruleika í samstarfi við ON, Orku náttúrunnar, áður en langt um líður.    Álagning fasteignagjalda hef- ur nú farið fram í Rangárþingi ytra sem annars staðar. Inni í fast- eignagjöldum fyrir heimili á Hellu eru nokkur gjöld og skattar; fast- eignaskattur, lóðarleiga, holræsa- gjald, vatnsgjald, sorpeyðingargjald og sorphirðugjald. Þrjú þau síðast- nefndu standa í stað á milli ára, en þrjú fyrstnefndu hækka um 6-7% milli 2017 og 2018. Það byggist á því að fasteigna- og lóðamat hefur hækk- að á milli ára og sveitarstjórn heldur sömu álagningarprósentu árið 2018 og árið áður, þrátt fyrir að almennar verðhækkanir hafi verið talsvert minni og jafnvel hefur heyrst að t.d. matarverð hafi lækkað sl. 2 ár.    Sveitarstjórnarkosningar nálgast og flokkar eru farnir að hugsa sér til hreyfings. Í Rangárþingi ytra voru tveir listar í boði fyrir fjórum ár- um, Á-listi, listi áhugafólks um sveit- arstjórnarmál, og D-listi sjálfstæðis- manna. Að sögn efstu manna á þessum listum munu báðir listarnir bjóða fram aftur. Stefnt er að prófkjöri hjá D- listanum, en umræðan er skemmra á veg komin hjá Á-listanum og ekki ljóst enn þá hvaða leið verður farin við uppstillingu. Ágúst Sigurðsson, efsti maður á D-lista, gefur kost á sér áfram, en Þorgils Torfi Jónsson, odd- viti hreppsnefndar, gefur ekki kost á sér á framboðslistann. Yngvi Karl Jónsson, efsti maður Á-lista, sagðist ekki vera búinn að ákveða hvort hann gæfi kost á sér að nýju. Morgunblaðið/Óli Már Aronsson Hella Sindri Seim Sigurðsson og Almar Máni Þorsteinsson eru efnilegir. Efnileg ungmenni á Hellu Klúbbastarfsemi í vanda Guðmundur hefur starfað í Rótarýklúbbi Borgarness í rúm þrjátíu ár. Hann segir að klúbburinn hafi verið ansi öflugur en félögum hafi fækkað og þeir séu nú rétt rúm- lega tuttugu. Félagsmenn hafi ekki verið svo fáir í annan tíma. Nú er verið að reyna að fjölga í hópnum á ný. Almennt á kúbbastarfsemi undir högg að sækja, að sögn Guðmundar. Hann segir að unga fólkið sé meira á ferðinni en áður var. Það sé yfirleitt vel virkt í klúbbnum en standi líklega styttra við en þeir eldri. „Þegar leitað er eftir yngra fólki í félagsskapinn finnum við fyrir vel- vild og áhuga fólks á klúbbnum. En það er margt sem togar í fólk, margir eru mjög bundnir í vinnu sem oft þarf að sækja um langan veg, og það þarf líka tíma með fjölskyldunni sem er auðvitað skiljanlegt sjónarmið. Svo tekur netið líka sinn tíma frá fólki.“ helgi@mbl.is „Þegar við fórum að ræða saman um hugmyndirnar urð- um við sammála um að beina sjónum okkar að netnotkun unglinga. Margir eru á því að netnotkun unglinga og jafnvel fullorðinna sé orðin ansi mikil og við sáum ástæðu til að benda foreldrum á nokkur atriði til um- hugsunar, til dæmis varðandi notkun barna á snjall- símum,“ segir Guðmundur Þór Brynjúlfsson, forseti Rótarýklúbbs Borgarness. Árlegur Rótarýdagur er í dag. Rótarýklúbbar víða um land efna þá til viðburða undir yfirskriftinni „Látum rödd Rótarý heyrast“. Almenn kynning er á störfum Rótarýhreyfingarinnar og klúbbarnir leggja áherslu á að kynna framlag sitt til samfélagsþjónustu og kosti þess að starfa í góðum félagsskap. Að þessu sinni verður athygl- inni einnig beint að málefnum ungs fólks með tilliti til ásóknar og áhrifa samfélagsmiðla. Dreifa örpistlum Rótarýdagurinn var fyrst haldinn á árinu 2015. Rótarýumdæmið hefur ætíð hvatt klúbbana til þess að taka fyrir ýmis samfélagsleg málefni. „Við höfum því fram að þessu efnt þrisvar sinnum til Rótarýdags í okkar klúbbi og auglýst opna fundi með vandaðri dagskrá í öll skiptin. En aðsókn hefur því miður verið alltof dræm þrátt fyrir að athyglisverð málefni hafi verið á dagskrá. Því datt okkur í hug að standa öðruvísi að málum nú.“ Klúbburinn hyggst koma sjónarmiðum sínum í sam- bandi við netnotkun unglinga á framfæri á vefnum. Dreift verður ellefu örpistlum um málefnið og klúbb- félagar beðnir um að dreifa þeim sem víðast á Facebook og öðrum samfélagsmiðlum. „Þetta eru ábendingar og við ætlum ekki að fara út í umræður. Við vonum að þetta framtak komi að gagni,“ segir Guðmundur. Vekja foreldra til umhugsun- ar um netnotkun barna  Rótarýklúbbur Borgarness kemur skilaboðum á framfæri Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Framkvæmdir við breikkun Vestur- landsvegar gætu hafist í haust ef vel gengur og af fullum krafti vorið 2019. Þetta er þó háð fjárveitingum til verksins. Þetta kom fram í erindi Jón- asar Snæbjörns- sonar, fram- kvæmdastjóra þróunarsviðs Vegagerðarinnar, á opnum íbúa- fundi á Kjalarnesi í fyrrakvöld. Jónas upplýsti jafnframt að í sum- ar yrði malbikað á Vesturlandsvegi fyrir 100 milljónir króna. Viðhald slitlags á veginum hefur verið í lág- marki vegna áætlana um stórar framkvæmdir. Mikið hefur verið kvartað yfir djúpum rásum í vegin- um. Að sögn Jónasar eru Reykjavík- urborg og Vegagerðin að undirbúa deiliskipulag fyrir breikkun Vestur- landsvegar, þar sem gerð er grein fyrir staðsetningu gatnamóta, hring- torga og hliðarvega. Þegar deili- skipulag liggur fyrir á eftir að verk- hanna veginn. Samningar við landeigendur mun fylgja verkhönn- un. Þetta verður 2+1 vegur í upphafi, en 2+2 vegur síðar. Skipulagið verð- ur samfellt frá Leirvogsá að gatna- mótum Hvalfjarðarvegar, samtals um 13,5 kílómetrar. Þar af verður kaflinn frá Esjubergi að Hvalfjarð- arvegi um 9 kílómetrar og kostnaður við breikkun þess kafla er áætlaður 3.000-3.500 milljónir króna. Fram hefur komið að framkvæmdatími geti orðið 3-4 ár. Ný samgönguáætl- un er í vinnslu og þegar hún verður lögð fyrir Alþingi skýrist hvort fjár- veiting fæst til verksins. Í sumar er ráðgert að gera hring- torg á Esjumelum, sem tengir iðn- aðarsvæðið og Álfsnesveginn. Jafnframt verða gerð undirgöng fyrir gangandi og ríðandi. Stoppi- stöðvar fyrir Strætó verða einnig lagfærðar. Kostnaður er áætlaður um 200 milljónir króna og fjárveiting er fyrir hendi. Breikkun gæti hafist í haust  Vesturlandsvegur deiliskipulagður Morgunblaðið/Ómar Vesturlandsvegur Verja á 100 milljónum til lagfæringa á malbiki. Jónas Snæbjörnsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.